Skagablaðið - 13.03.1995, Side 7
Skagablaðið
Af lífí og sál
13. mars 1995 7
fí döfinni
Mánudagur 13.03.
Skagaleikflokkurinn sýnir
Óvitana í Bíóhöllinni kl. 20.30
Bæjarmálafundur Alþýðu-
flokksins í Röst kl. 20.30.
Bæjarmálafundur Alþýðu-
bandalagsins í Rein kl. 20.30.
Miðvikudagur 15.03.
Fyrirlestur um hreyfiþroska
barna á vegum foreldrafélaga
leikskólanna á sal Brekkubæj-
arskóla kl. 20.
Skagaleikflokkurinn sýnir
Óvitana í Bíóhöllinni kl. 20.30
Fimmtudagur 16.03.
Brynja Einarsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Listahorni
upplýsingamiðstöðvar ferða-
manna að Skólabraut 31.
Laugardagur 18.03.
Blakmót öldunga í íþróttahús-
inu við Vesturgötu.
Kvöldvaka Sambands borg-
firskra kvenna í Heiðarborg
kl. 20.30.
Sunnudagur 19.03.
Alþýðubandalagið opnar kosn-
ingaskrifstofu sína fyrir alþing-
iskosningarnar í Rein kl. 14.
Fjögur brúðkaup
■ hittír i mark!
0
Fáar myndir hafa komið jafn
mikið á óvart á síðustu árum og
breska gamanmyndin Fjögur
brúðkaup og jarðaför. Þær
miklu vinsældir sem myndin
hefur hlotið hefur ekki síður
komið framleiðendum hennar
að óvörum. Kvikmyndin var
framleidd fyrir smáaura miðað
við þær risa fjárhæðir sem lagð-
ar eru í kvikmyndir sem eiga
fyrirfram að njóta vinsælda.
Richard Curtis handritshöf-
undur myndarinnar er tvímæla-
laust sá sem á heiðurinn að sig-
urför hennar. Curtis sem m.a.
hefur skrifað mikið fyrir Rowan
Atkinson (Mr. Bean), sem á-
samt leikstjóranum, Mike
Newell leikur sér með hinn hár-
fína breska húmor og hittir
beint í mark.
Myndin segir frá vinahóp
sem kemur saman eins og nafn
myndarinnar segir til um í fjór-
um brúðkaupum og einni jarð-
arför. Gengur þar á ýsmu og
margt fer öðruvísi en ætlað var,
en myndin er umfram
allt bæði fyndin og
mannleg.
Hugh Grant og Andie
McDowell eru ágæt í hlutverk-
um sínum og ekki síðri eru brá-
bærir breskir leikara í smærri
hlutverkum, eins og Rowan
Atkinson og og Mary Parker.
★★★
HIJCH
Grant
ANDIE
MACDOWELL
Skemmtilegur Maverick
Það voru margir efms þegar
Richard Donner hóf að leik-
stýra og framleiða kvikmyndina
um konung spilaborðsins í
villta vestrinu, Bret Maverick.
En Donner hefur sannarlega
ekki valdið aðdáendum Maver-
icks vonbrigðum með þessari
mynd. Hún er einstaklega vel
heppnuð og saman fer hraði,
spenna og grín og úr verður
stórskemmtileg mynd.
Leikaraliðið er vel valið. Mel
Gibson er frískur í hlutverki
Bret Mavericks og Jodie Foster
bregst ekki sem endra nær og
sýnir á sér nýja hlið sem gam-
anleikona og James Gamer er
að sjálfsögðu ómissandi í þess-
ari mynd.
Jodie Foster lét hafa það eftir
sér þegar tökum lauk á Maver-
ick að hún hefði aldrei skemmt
sér eins vel við vinnu sína og í
þessari mynd.
★★★
Já, ráðherra!
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, var heiðursgestur Knatt-
spymufélags ÍA á herrakvöldi
félagsins um fyrri helgi. Hann
fetaði þar í fótspor samráðherra
sinna og flokksbræðra, Þor-
steins Pálssonar og Davíðs
Oddssonar, sem vora í hlutverki
hans í fyrra og árið þar á undan.
Fremur en fyrri heiðursgestir
félagsins á þessum skemmtun-
um brást ráðherrann ekki von-
um manna og reytti af sér
brandara og spaugyrði á báða
bóga þannig að gestir veltust
um af hlátri. Húsfyllir var á
herrakvöldinu eins og jafnan
þau sex skipti sem það hefur
verið haldið.
Skagablaðið smellti þessari
mynd af fjármálaráðherra er
hann tók fyrir ýmsa núverandi
og fyrrverandi þingmenn og
stældi þá ýmist í ræðu eða hátt-
um.
Gangur lífsins
cfQKomuíheiminn
25.febrúar, drengur, 3.380 g,
51 sm. Foreldrar: Arna Böðv-
arsdóttir og Arni Ivar Ivarsson,
Einigrand 29, Akranesi.
3. mars, stúlka, 4.785 g, 57 sm.
Foreldrar: Hólmfríður Rósa
Jósefsdóttir og Sigurður Geirs-
son, Mávakletti 8, Borgarnesi.
4. mars, drengur, 3.690 g, 53
sm. Foreldrar: Þóra Svanhildur
Þorkelsdóttir og Einar Þór
Skarphéðinsson, Böðvarsgötu
12, Borgamesi.
6. mars, drengur, 4.090 g, 55
sm. Foreldrar: Bergþóra Jóns-
dóttir og Böðvar Bjarki Magn-
ússon, Hrútsstöðu, Dalabyggð.
Skírð
Þorkell Már, f. 4. mars 1995,
skírður 8. mars. Foreldrar: Þóra
Svanhildur Þorkelsdóttir og
Einar Þór Skarphéðinsson,
Böðvarsgötu 12, Borgarnesi.
I/insælustu
myndböndin
Listi Myndbandaleigunnar As
yfir vinsælustu myndböndin í
síðustu viku:
1. TraeLies
2. Wolf
3. Lightning Jake
4. Beverly Hills Cop 3
5. Fjögur brúðkaup og
jarðarför
6. Getting even with Dad
7. Maverick
8. Bad Girls
9. The Getaway
10. Ace Ventura
Leiðrétting
Olöf Guðjónsdóttir, önnur
tveggja stúlkna frá Akranesi,
sem taka þátt í keppninni um
Ungfrú Island í vor, var rang-
lega sögð Guðmundsdóttir í
síðasta blaði. Þá er hún við nám
í Kennaraháskóla Islands, ekki
Háskóla Islands. Skagablaðið
biðst velvirðingar á þessum
missögnum.
------------------------------------------í brennidepli
Rafn Hafberg Guðlaugsson er fæddur á Akranesi 28. júlí
1968. Unnusta hans er Lísa Greipsdóttir. Þau eiga engin
börn en Rafn segir verslunina Roxy í rauninni barnið sitt.
Bifreið: Toyota Corolla.
Myndirðu nota göng undir Hvalfjörð? Já, ekki
spurning.
Attu reiðhjól? Já og nota það stundum.
Starfog laun: Búðarloka í gervi verslunareig-
anda og laun samkvæmt því.
Helsti kostur: Sætur og skemmtilegur.
Matur og drykkur í uppáhaldi? Fylltar grísa-
lundir og kók.
Uppáhaldstónlist: Ég er alæta á tónlist.
Hvað gerir þú ífrístundum? Hugsa.
Uppáhaldsíþróttamaður? Hjalti „Ursus“ Arna-
son.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ólafur Ragnar
Grímsson.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir og sápuóperur
(t.d. Melrose Place).
Leikari í uppáhaldi? Andie McDowell.
Hvaða bók ertu að lesa? Ég er að lesa Slátrar-
ann eftir Dean Koonzt.
Hvaða kvikmynd sástu síðast? Bad girls.
Ertufarinn að skipuleggja sumarfríið? Já, ég er
aðeins farinn að spá í það.
Hvað meturþú mest ífari annarra? Jákvæðni
og heiðarleika.
Tekst þér að ná endum saman í heimilisbók-
haldinu? Svona sæmilega.
Hvað líkar þér best við Akranes? Góður staður
að búa á.
Hvað veitir þér besta afslöppun ? Svefn.
Hvað viltu að bœjarstjórn leggi höfuðáherslu
á? Atvinnumál og gott útlit á miðbænum.
Flokkarðu sorp? Nei.
Stundarðu líkamsrækt? Ég fer stundum í eró-
bikk.