Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.07.2019, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 08.07.2019, Qupperneq 2
Veður Austlæg átt 3-8 í dag. Skýjað að mestu á landinu og dálitlar skúrir á víð og dreif, einkum síðdegis, en léttir heldur til norðaustan- og austanlands í kvöld. SJÁ SÍÐU 16 Buslað í blíðunni Það er ekkert lát á veðurblíðunni á Vestur- og Suðurlandi þessa dagana. Í gær fór hitinn yfir tuttugu gráðurnar í höfuðborginni og nánast logn. Hlýjast var þó á Suðausturhorninu. Mikið var um að vera í ísbúðum og nánast alls staðar utandyra. Elliðaárdalurinn var engin undantekning. Þessi ungmenni voru svo brött að þau stungu sér í fossinn sér til gamans. Munu þau hafa buslað í ánni nánast allan daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA MEÐ HÁLFU FÆÐI VERÐ FRÁ 249.900 KR. NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000 Á KANARÍ Úrvalsfólk 12. - 26. NÓVEMBER LÖGREGLUMÁL Grunur leikur á að miklu af vörum hafi verið stolið úr byggingavöruversluninni Bau- haus í Grafarholti. Einnig að brotin hafi staðið yfir í langan tíma. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eru að minnsta kosti tveir menn tengdir málinu. Annar þeirra byggingaverktaki af landsbyggð- inni. Í vor fóru fram lögregluaðgerðir á tveimur stöðum. Í versluninni sjálfri og í heimabæ verktakans. En ekki liggur fyrir hvort eða hversu mikið af verðmætum var endur- heimt. Rannsókn lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu lauk í júní og er málið nú komið inn á borð til ákærusviðs. María Káradóttir hjá ákærusviði vildi ekki tjá sig efnis- lega um málið en tjáði Fréttablað- inu að ákvörðun um ákæru hefði ekki verið tekin né hversu margir væru grunaðir í málinu. „Vegna rannsóknarhagsmuna getum við ekki tjáð okkur um málið á þessu stigi,“ segir María. „Þetta mál er nú í skoðun hjá okkur. Stundum þarf að vísa málum aftur til lögreglu til frekari rannsóknar.“ Verðmæti þeirra eigna sem grunur leikur á að hafi verið stolið liggur ekki fyrir en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það umtalsvert. – khg Miklu stolið úr Bauhaus Lögregluaðgerðir fóru fram í Bau- haus í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Reiðhjól sem er stolið utandyra þarf að hafa verið læst til að bætur fáist frá tryggingafélögum. Einnig þarf að fylgja með kvittun og lögregluskýrsla. Líkt og  Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi gengur nú yfir bylgja hjól- reiðaþjófnaðar á höfuðborgarsvæð- inu. Grunar lögregluna að um skipu- lagða glæpastarfsemi sé að ræða. Í flestum tilfellum finnast hjólin ekki aftur og gefur lögreglan þá eig- endum afrit af skýrslu þess efnis. Sé eigandi tryggður getur hann fengið þetta bætt. Ólafur Þór Ólafsson, forstöðu- maður eignatjónadeildar hjá Sjóvá, segir að félagið hafi bætt um 50 reið- hjól á þessu ári. „Þegar okkur berast tilkynningar frá viðskiptavinum er óskað eftir lögregluskýrslu og kvittun fyrir kaupum á reiðhjóli. Forsenda fyrir bótaskyldu er að hjólið hafi verið læst, hafi það staðið utandyra,“ segir Ólafur Þór. – khg Hjól þurfa að vera læst REYKJAVÍK „Það seldist allt upp hjá okkur á laugardeginum. Við neyddumst til að loka fyrr en við áætluðum,“ segir Róbert Aron M ag nú s s on , sk ipu leg g ja nd i Reykjavík Street Food sem sér um matarmarkaðinn í Laugardal. Matarmarkaðurinn var opnaður fyrst á laugardaginn og kláraðist þá allur maturinn á öllum stöð- unum sem og bjórinn í bjórvagn- inum. „Ég held að yfir daginn á laugar- dag hafi komið á milli fjögur og fimm þúsund manns, frá því við opnuðum á hádegi til klukkan sjö þegar allur maturinn var búinn,“ segir Róbert Aron og hlær. „Það var ekki hægt að selja meira. Við seldum líka allan bjórinn sem við ætluðum að eiga á sunnudeginum. Sem betur fer fengum við meira.“ Markaðurinn er undir suður- enda áhor fendastúk unnar á Laugardalsvelli og verður aftur á sama stað næstu helgi. Helgina þar á eftir verður hann á Mið- bakkanum við gömlu höfnina í Reykjavík. „Það verður aðeins öðruvísi skipulag við Miðbakk- ann. Þar verður götubitahátíð og keppni um besta bitann. Það verður svaka partí.“ Um er að ræða samstar fs- verkefni Reykjavíkurborgar og Reykjavik Street Food. Verkefnið var kosið af íbúum í kosningunum á vef Reykjavíkurborgar, Hverfið mitt, í fyrra. Alls voru sautján söluaðilar á markaðnum um helg- ina. Var hægt að gæða sér á alls kyns mat, humri, hamborgurum, taco, frönskum, íslensku sinnepi ásamt vegan valkosti. Einnig er hægt að kaupa íslenskar vörur beint frá býli á matarmarkaðnum. Boðið var upp á skemmtiatriði, hoppukastala og andlitsmálningu fyrir börn. Aðspurður hvað laði fólk að segir Róbert Aron það meira en bara svengd. „Þetta er búið að tröllríða heiminum, einfaldar útfærslur á mat í skemmtilegu umhverfi. Fyrir utan þetta fína veður, það umturnast allt á Íslandi í þegar það er sól og við erum búin að vera gríðarlega heppin þessa helgina.“ arib@frettabladid.is Kláruðu allan matinn á matarmarkaðinum Mörg þúsund manns heimsóttu matarmarkaðinn í Laugardalnum um helg- ina. Um er að ræða verkefni sem valið var af íbúum hverfisins í kosningum. Loka þurfti markaðinum snemma á laugardag þar sem maturinn kláraðist. Matarmarkaðurinn í Laugardal verður aftur á sama stað um næstu helgi, en færist niður á Miðbakkann helgina eftir það. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég held að yfir daginn hafi komið á milli fjögur og fimm þúsund manns, frá því við opnuðum á hádegi til klukkan sjö þegar allur maturinn var búinn. Róbert Aron Magnússon, Reykjavík Street Food 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 1 -0 1 3 8 2 3 6 0 -F F F C 2 3 6 0 -F E C 0 2 3 6 0 -F D 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.