Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 9
SANDGERÐI GARÐUR Framtíð Suðurnesjabæjar Hugmyndasamkeppni um nýtt aðalskipulag Suðurnesjabær er yngsta sveitarfélag landsins og efnir til opinnar hugmyndasamkeppni um mótun nýs aðalskipulags.Við erum að leita að spennandi og framsæknum hugmyndum en keppnin er einnig liður í vali á ráðgjafa til að vinna að gerð aðalskipulagsins. Þú finnur keppnislýsingu og öll gögn á sudurnesjabaer.is/is/hugmyndasamkeppni. Skilafrestur er til 4. október nk. Mótaðu framtíðina með okkur. Guðmundur Steingrímsson Í DAG Eitthvað það eftirminnilegasta sem ég lærði í bókmenntafræði í íslenskudeildinni í háskól- anum á árum áður var viss greinar- munur sem málaður var sterkum litum í einum snilldarfyrirlestr- inum hjá Matthíasi heitnum Viðari Sæmundssyni, að mig minnir, á milli spennusögu og hryllingssögu. Munurinn er þessi: Í spennusögu er vitað hverjir eru persónur og leikendur. Hetjan á sér andstæðing sem allir vita hver er, eða tekst á við hættur sem eru fyrirliggjandi og öllum ljósar. Í hryllingi hins vegar er þessu öðruvísi farið. Þá er ekki vitað hver ógnin er. Andstæðingurinn er hulinn eða sveipaður það mikilli dulúð að eðli hans er ráðgáta. Hetjan kljáist við duldar ógnir, einhvers konar drauga eða yfirskilvitlegar ófreskjur jafnvel. Úr verður mar- traðarkenndur hryllingur. Stundum finnst mér Ísland vera svona martraðarkenndur hryllingur. Það eru vissulega stór orð, en þau eru sögð í þessu tiltekna bókmennta- fræðilega samhengi. Íslenskt sam- félag ber stundum, að mínu mati, þessi einkenni hryllingssögunnar að því leyti til, að oft er eins og viss upptök böls eða hryllings séu falin. Maður veit ekki hvaðan hið vonda kemur. Hver vill senda börnin burt? Þetta er auðvitað ekki meginein- kenni á íslensku samfélagi, svo hjálpi okkur almættið. Svo langt leiddur af svartsýni er ég ekki. Margt er hér fag- urt og gott. Né heldur er ég viss um að þetta tiltekna einkenni sé á ein- hvern hátt sérstakt fyrir Ísland. Ég held að öll samfélög þurfi að búa við svona martraðir í mismiklum mæli, að orsakir vondra huta — öfl sem stuðla að óhamingju — eru hulin og þar með illa upprætanleg. Þessar spaklegu hugsanir um samfélagið ól ég með mér í vaxandi mæli undir fréttaflutningi liðinnar viku. Enn og aftur berast fregnir af því að vísa eigi börnum á flótta úr landi. Slíkar fréttir skekja íslenskt samfélag oftsinnis. Maður verður ákaflega mikið var við það, að fólki misbýður þessi harðneskja. Skiljan- lega. Af hverju getur samfélagið ekki tekið fólki opnum örmum sem býr við neyð annars staðar? Hvar er mannúðin? Að senda eigi börn aftur í ömurleikann og ógnirnar, slíkt hugnast manni ekki. Og þá fer maður að hugsa, og ég er viss um að margir hugsa það sama: Hver ákvað þetta? Hver ber ábyrgð á þessari stefnu? Af hverju er sá aðili ekki lát- inn svara? Eiga þessar ákvarðanir sér kannski engan málsvara? Við blasir allt í einu hin bók- menntafræðilega skilgreining á hryllingssögu. Ófreskjan er óþekkt. Hún er falin. Auglýst eftir málsvara Ég geri því ekki skóna að einhvers staðar í kerfinu bruggi yfirskilvitleg ófreskja launráð, en það stappar nærri. Eitt er alla vega á hreinu: Sé það stefna íslenskra yfirvalda að vísa eigi börnum úr landi sem hingað hafa komið með fjölskyldum sínum úr lífshættulegu umhverfi heima- landa sinna og náð jafnvel að skapa tengsl við íslenskt samfélag, eignast vini og lífsviðurværi, þá verður ein- hver ráðamaður þjóðarinnar að stíga fram og upplýsa okkur hin um að hann beri ábyrgð á þeirri stefnu og að hann styðji svona aðgerðir heilshugar. Út af einhverju. Við Íslenska martröðin þann sama aðila er þá hægt að taka rökræðuna, og baráttan fyrir breyt- ingum á stefnunni verður á allan hátt heilbrigðari. Ísland verður spennu- saga, ekki martröð. Ástandið er fáránlegt Það er ríkis- stjórn í landinu. Vill hún vísa börn- unum burt? Vill forsætisráðherra það? Ef svo er, þá segi hún það. Ef svo er ekki, þá segi hún það líka. Það er ekki hægt að búa svo um hnútana þegar kemur að umdeildum og sárum mannúðarmálum að einhvers konar kerfislæg nauðung skyldi Íslendinga til þess að vera andstyggilegir við börn. Samfélagið skal vera mannanna verk, ekki flókið og óskiljanlegt vél- virki þar sem tölvan segir nei. Ráðherra stígur fram Um helgina steig dómsmálaráð- herra fram. Og jú, hún freistaði þess að útskýra stefnuna. Fjölskyldurnar fengu vernd í Grikklandi upphaf- lega og þangað verða þær því að fara aftur. Og jafnt skal yfir alla ganga. Það eru 9.000 börn með sömu stöðu í Grikklandi. Eigum við að taka við þeim öllum? spurði Þórdís Kolbrún. Ég hef tilhneigingu til að svara þeirri spurningu játandi. Ég efast hins vegar um að spurningin sé í nægum tengslum við raunveruleik- ann til að hafa einhverja þýðingu. Ísland og Grikkland eru ekki einu löndin í heiminum. Ólíklegt er að allir vilji koma til Íslands. Mann grunar að ráðherra freisti þess hér að hlaupa með umræðuna út í móa. Svo er það líka þetta með að jafnt skuli yfir alla ganga. Ég staldra við. Ef öll börn eiga að fá sömu meðferð, hver er þá sú meðferð? Leyfa þeim að vera í skóla hér smá, eignast vini, finna von um nýtt og betra líf. Vísa þeim svo burt? Ráðherra gerði rétt að stíga fram og reyna að svara, en ég hef það á til- finningunni að hún hafi ekki talað með hjartanu. Eftir stendur martröð- in óbreytt: Hver raunverulega — af heilum hug — vill þetta? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 1 -1 4 F 8 2 3 6 1 -1 3 B C 2 3 6 1 -1 2 8 0 2 3 6 1 -1 1 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.