Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.07.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 08.07.2019, Qupperneq 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er ekki rétt hjá Pútín að hin frjálslyndu gildi sem byggð eru á rétti og frelsi einstaklinga séu úrelt. Þau eru enn aflvaki aukinna lífskjara og framþró- unar. Auknir fjármunir og allur heims- ins fagurgali duga því skammt ef meiningin er að herða enn á ómannúð- legri stefnu. Davíð Stefánsson david@frettabladid.is SANDBLÁSTUR Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning Vladímír Pútín Rússlandsforseti var í afar fróðlegu sjónvarpsviðtali The Financial Times í síðustu viku. Í einn og hálfan tíma fór forsetinn yfir ærin verkefni heima fyrir, skattkerfisbreytingar, uppbyggingu innviða og menntakerfis, og ekki síst tæknivæðingu atvinnu- greina. Meginstraumar alþjóðakerfisins og hlutur Rússa þar voru fyrirferðarmiklir. Það sem upp úr stendur eru lok viðtalsins. Þar ræðst Pútín að þeim stjórnmálalegu grunngildum sem ráðið hafa mótun og þróun vestrænna lýðræðisríkja frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Hann segir þau frjáls- lyndu gildi sem reist séu á rétti og frelsi einstaklinga hafa gengið sér til húðar. Dregið hafi úr vægi frjálslyndis Vesturlanda. Þaðan komi fáar forsagnir lengur. Rússneski leiðtoginn lofar uppgang popúlista og sagði hugmyndir um fjölmenningu ekki eiga við í nútímanum. Pútín afskrifar þannig þau frjálslyndu grundvallarvið- horf, sem sett hafa sterkan svip á líf okkar síðustu ára- tugi, á borð við vernd flóttamanna og málefni hinsegin fólks. Þau stangist á við viðhorf meirihluta íbúa um heim allan. Dæmi um það er hvernig Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hafi hleypt flóttamönnum inn í landið í bága við hagsmuni yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Pútín vísar til staðfestu Trumps forseta gagnvart Mexíkó: „Þessar frjálslyndishugmyndir fela í sér að ekkert þurfi að gera. Innflytjendur geti drepið, rænt og nauðgað án refsingar vegna þess að réttindi þeirra sem innflytjenda verði að vernda,“ segir Pútín. Það er auðvitað rangt hjá Pútín að meirihluti íbúa heimsins deili skoðunum hans um málefni flóttamanna. Kannanir sýna að meirihluti fólks í þeim ríkjum sem fá til sín flesta innflytjendur sér fremur í því styrk en byrði. Jákvæðni eykst eftir því sem fólk fær að kynnast innflytj- endum persónulega. Það er ekki rétt hjá Pútín að hin frjálslyndu gildi sem byggð eru á rétti og frelsi einstaklinga séu úrelt. Þau eru enn aflvaki bættra lífskjara og framþróunar. Við höfum til að mynda séð á síðustu áratugum hvernig séreignar- réttur og aukið frelsi einstaklinga hafa komið um 600 milljónum Kínverja yfir fátæktarmörkin. Samfélag margbreytni er ekki bara skemmtilegra held- ur knýja fjölbreytnin og frelsið fram nýjar hugmyndir og umbreytingar. Sköpunarkraftur nýrrar hugsunar brýtur niður og byggir upp. En það er ekki bara sótt að frjálslyndisstefnu. Hin hefðbundna íhaldsstefna raunsæis og manngildis er heldur ekki í tísku. Varfærni víkur þar fyrir upplausn og efa um mikilvægi sannleikans og jafnvel vísinda. Til ótt- ans sækja leiðtogar fylgi sitt, til svartsýni og afturhalds. Auk Pútíns raðast á bekkinn Trump, ungverski Orbán, ítalski Salvini, franska Le Pen og Brexit-hreyfingin. Bolsonaro í Brasilíu vill ólmur vera þar líka. Það kom í hlut Evrópusambandsins að mótmæla orðum Pútíns. Tusk, forseti leiðtogaráðs þess, var kjarn- yrtur þegar hann lýsti sig innilega ósammála Rússlands- forseta: „Hver sá sem fullyrðir að frjálslynd lýðræðisríki séu úrelt segir samtímis að frelsi sé úrelt, að lög séu úrelt og mannréttindi séu úrelt,“ sagði Tusk. – Orð í tíma töluð. Viðtal við Pútín Hvar voru nöfnin? Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með viðbrögðum hinna og þessara þingmanna í kringum umræðurnar um brottvísanir. Nú hefur lög- gjafinn það í hendi sér að veita hverjum sem honum dettur í hug íslenskan ríkisborgararétt. Vakti það því nokkra furðu þegar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, steig fram og vildi láta endur- skoða verklag við brottvísanir. Sá hinn sami á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd, sem afgreiðir hið reglulega ríkis- borgarafrumvarp. Ef hann, eða aðrir þingmenn, er svona miður sín yfir málum fjölskyldnanna, hvers vegna voru nöfn þeirra ekki á listanum? Kvöld- og helgarvaktir Ríkisbatteríið sem á að hafa yfirumsjón með dómstólum landsins hefur áhyggjur af því að Landsréttur klári ekki öll málin sem eru á borði réttarins. Alls bíða nærri 500 mál og er talið að það muni taka meira en eitt ár að klára þau öll, meira að segja með þeim fjórum af fimmtán dómurum sem eru núna á bekknum þökk sé Mann- réttindadómstólnum. Spurning hvort það þurfi ekki að taka upp kvöld- og helgarvaktir til að klára bunkann? Og láta þá fá strangan yfirmann á af kasta- tengdum launum. arib@frettabladid.is Nýjar yfirlýsingar um að setja eigi meira fé í málaflokk flóttafólks og rýmka reglur um efnismeðferð eru í sjálfu sér ánægjulegar en fela ekki í sér varanlega lausn á málefnum flótta- barna. Til þess þarf meiriháttar stefnubreytingu, en ekki bara flýta málsmeðferð og afgreiða börn svo hratt, til baka út úr tilveru okkar, að þau komi ekki róti á tilfinningar landans. Samkvæmt reglugerð um útlendinga er t.d. enn, þrátt fyrir nýjustu breytingar, heimilt að senda börn til óöruggra landa. En alvarlegast er líklega að börn fá ekki sjálfstæða málsmeðferð. Tekin er afstaða til umsókna foreldra um vernd og síðan dregin sú ályktun að það sé barninu fyrir bestu að fylgja for- eldrum. Krafan er að staða barna sé metin sérstak- lega og þau fái þannig notið eigin mannréttinda. Við þinglokasamning haustið 2017 gerðu for- menn flokka samkomulag um að strax á nýju kjör- tímabili yrði ráðist í endurskoðun útlendingalaga og framkvæmd þeirra. Meðal annars með tilliti til stöðu barna og fólks í viðkvæmri stöðu. Ríkis- stjórnin hefur setið í eitt og hálft ár og ber því fulla ábyrgð á að árangur af þverpólitískri þingmanna- nefnd er enginn. Ekki er nóg með að þetta sleifar- lag hafi verið látið viðgangast, heldur afgreiddi ríkisstjórnin nýtt frumvarp um útlendingalög þann 2. apríl, sem lagt var fram á Alþingi nokkrum dögum síðar. Í því er jafnvel gengið enn lengra í átt að ómannúðlegri stefnu og liðkað fyrir brottvísun barna. Auknir fjármunir og allur heimsins fagurgali duga því skammt ef meiningin er að herða enn á ómannúðlegri stefnu. Ég geri mér grein fyrir því að hjónaband VG og Sjálfstæðisflokksins byggir frekar á hagkvæmnis- sjónarmiðum en ástríðu og eldheitri ást. En það þvingaði þau enginn í þetta samband og þau bera því fulla ábyrgð á þeim slæmu málamiðlunum sem í því eru gerð. VG á því tvo leiki í stöðunni: Að knýja fram manneskjulegar úrbætur á málefnum flótta- fólks eða gera stefnu VG í málaflokkum fullkomlega marklausa. Vinstri græn eiga leik Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 1 -2 3 C 8 2 3 6 1 -2 2 8 C 2 3 6 1 -2 1 5 0 2 3 6 1 -2 0 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.