Fréttablaðið - 08.07.2019, Qupperneq 14
Ég vann fyrir RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík í mörg ár. Ég var því búin að
koma mér upp ágætis tengslaneti
og safna mér þekkingu í þessum
bransa. Þegar ég hæti hjá RIFF
2016 eða 17 var ég pínu týnd í smá-
stund. Mig langaði að nýta mér
áfram þessa þekkingu sem ég hafði
aflað mér,“ segir Ingibjörg.
Það var svo þegar Ingibjörg hitti
Hall Örn Árnason, kunningja sinn,
í bíó að hugmyndin um heimildar-
myndahátíð kom upp. „Við sáum
mjög góða heimildarmynd og
fórum að tala um að okkur fyndist
að það ættu að vera fleiri áhorf-
endur í salnum. Okkur fannst eins
og fólki kynni ekki nógu vel að
meta heimildarmyndir. Á öðrum
frumsýningum er fullt af fólki en
okkur fannst heimildarmyndir
ekki fá þá athygli sem þær eiga
skilið,“ segir Ingibjörg og segir
hlæjandi að þau hafi orðið mjög
æst yfir þessu þegar þau fóru að
ræða þetta og velta því fyrir sér af
hverju þetta væri svona.
„Það endaði með því að við
ákváðum bara að gera eitthvað í
þessu. Ég fæ svona milljón hug-
myndir á dag um að gera eitthvað
en geri það ekkert endilega. En
Hallur sendi mér svo skilaboð
daginn eftir og spurði: „Jæja, hvað
eigum við þá að gera?“ Það varð til
þess að ýta á mig að láta vaða. Ég er
ekki mikið fyrir að láta vaða. En í
þetta skipti gerði ég það.“
Ingibjörg segist strax hafa sagt
að ef þú ætluðu að halda heim-
ildarmyndahátíð yrði hún að
vera á Akranesi. „Ég nenni ekki
lengur að keyra fram og til baka til
Reykjavíkur á hverjum degi,“ bætir
hún við hlæjandi.
Ingibjörg og Hallur, kunningi hennar, ákváðu að stofna kvikmyndahátíð þegar þau hittust í bíó og ekki kom annað til greina en að halda hana á Akranesi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Akranes hefur allt til alls
„Ég fór einu sinni á vikulangt nám-
skeið í stjórnun hátíða, í Edinborg.
Þar var farið út í öll smáatriði sem
gera hátíð góða. Eitt af þeim var
að til að hátíð standi upp úr þarf
hún að hafa einhverja sérstöðu og
Akranes hefur allt til alls,“ útskýrir
Ingibjörg.
Ingibjörg er úr Hvalfjarðarsveit-
inni og Akranes stendur henni því
nærri. Þar er gott bíóhús og góður
samfélagsandi. „Það eru allir til í að
hjálpa manni. Þess vegna ákváðum
við að það væri sniðugt að halda
hátíðina þar.“
Hallur kannaðist við mann sem
vann við kvikmyndagerð uppi
á Akranesi. Þau höfðu samband
við hann og það varð úr að þau
voru þrjú sem hrintu hátíðinni í
framkvæmd, Ingibjörg, Hallur og
Heiðar Mar Björnsson. „En þessi
hópur er alltaf að stækka og ég held
að við séum núna orðin 15 í starfs-
mannahópnum,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg segir að mörgu að
huga þegar hátíð sem þessari er
komið í gang. Það þarf að passa að
hátíðin rekist ekki á aðrar hátíðir.
Ekki bara á Íslandi heldur erlendar
hátíðir líka. Fjöldi erlendra gesta
kemur á IceDocs og því skiptir
tímasetningin miklu máli. Ingi-
björg segir júlí hafa orðið fyrir
valinu þar sem þá er lítið um aðrar
hátíðir og svo er hægt að skapa
skemmtilega stemningu á björtum
sumarnóttum.
Á hátíðinni verður fjölbreytt
dagskrá fyrir alla aldurshópa. Það
verða sýndar yfir 50 heimildar-
myndir í heild. Þar af þrjátíu í fullri
lengd. Boðið verður upp á spurt og
svarað sýningar með stórum hluta
myndanna. Þá geta áhorfendur
spurt leikstjóra myndanna, eða
aðra aðstandendur þeirra, spjör-
unum úr.
Vilja sýna fjölbreytnina
„Við verðum með mjög fjöl-
breyttar heimildarmyndir. Fólk
sér kannski fyrir sér sjónvarps-
heimildarmyndir með sögumanni
eða þul. En okkur langar að sýna
hversu fjölbreyttur þessi miðill
getur verið. Það má alveg búast við
myndum þar sem fólk talar beint
við myndavélina og myndum sem
notast við þul en líka myndum þar
sem myndefninu sjálfu er leyft að
segja söguna.
Umfjöllunarefnin eru víð og
breið. Helsta áherslan er að það sé
eitthvað skapandi í öllum mynd-
unum sem við sýnum, að miðillinn
sé notaður til að segja söguna,“
segir Ingibjörg.
„Heimildarmyndir geta sagt
miklu meira en leiknar myndir og
sýnt miklu meira. Það er nefni-
lega oft þannig að þegar maður
sér leiknar myndir hugsar maður
„oh, þetta er svo ótrúlegt“. En í
heimildarmynd er það alvöru
fólk að gera það sem þú horfir á í
myndinni, þannig að þó það virki
ótrúlegt þá færðu svona raunveru-
leikatilfinningu. Þannig leyfist
heimildarmyndagerðarmönnum
að gera miklu meira og sýna okkur
skrýtnari hluti.“
Skemmtileg barnadagskrá
Ingibjörg tekur fram að börnin
verði ekki skilin út undan á hátíð-
inni. Það verður sérstök barnadag-
skrá sem ber yfirskriftina Akranes
með okkar augum. „Það verða
barnasýningar á morgnana og
fræðsla í kringum þær. Við verðum
líka með ratleik. Markmiðið með
ratleiknum er að krakkarnir
festi sitt sjónarhorn af Akranesi á
filmu. Þau geta notað eigin síma
eða búnað sem við útvegum þeim.
Myndirnar verða svo myllumerkt-
ar og sýndar í beinni útsendingu á
torginu,“ segir Ingibjörg.
Á kvöldin verður svo skemmti-
dagskrá. „Til að hafa ofan af fyrir
öllum erlendu gestunum okkar,“
segir Ingibjörg hlæjandi. „Það
verður til dæmis miðnæturbíó og
ball og ýmislegt f leira skemmti-
legt.“
Ingibjörg segir að bæjarbúar
hafi tekið þeim opnum örmum.
Bæði hefur hátíðin fengið stuðning
frá bæjarfélaginu sjálfu en svo er
fólk úti í búð sem hefur gefið sig á
tal við hana og sagst spennt fyrir
hátíðinni. „Við höfum gert góða
samstarfssamninga við fólk og
fyrirtæki sem eru að hjálpa okkur.“
En hátíðin er ekki bara fyrir
Akurnesinga. Ingibjörg tekur fram
að það sé alls ekki langt að keyra til
Akraness frá Reykjavík og hátíðin
því kjörið tækifæri fyrir höfuð-
borgarbúa til að kynnast bænum
og sjá alla þá flottu uppbyggingu
sem er í gangi þar.
„Það er um að gera að gera sér
ferð upp á Akranes. Skella sér
í Guðlaugu, nýja heita laug við
fjöruna á Langasandi, skreppa út
að borða og fara svo í bíó.“
Dagskrá hátíðarinnar og nánari
upplýsingar eru væntanlegar á
vefsíðunni icedocs. is.
Framhald af forsíðu ➛
Á öðrum frum-
sýningum er fullt
af fólki en okkur fannst
heimildarmyndir ekki fá
þá athygli sem þær eiga
skilið.
Ingibjörg Halldórsdóttir
Eitt kort
34 vötn
7.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
ÞETTA ER BYRJAÐ!
www.veidikortid.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
0
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
1
-1
E
D
8
2
3
6
1
-1
D
9
C
2
3
6
1
-1
C
6
0
2
3
6
1
-1
B
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K