Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 30
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5055.
Elsku engillinn okkar, mamma,
tengdamamma, amma og langamma,
María Sigurborg Jonný
Rósinkarsdóttir
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Melseli 8,
kvaddi á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 1. júlí.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju 18. júlí kl. 15.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar og B2 fyrir
fagmennsku, alúð og manngæsku.
Ottó K. Ólafsson Björk Baldursdóttir
Jakob Ólafsson Helena S. Leósdóttir Little
Rósinkar S. Ólafsson Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir
Guðný Ólafsdóttir Ómar Þ. Gunnarsson
Ásgeir K. Ólafsson Aðalheiður Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma,
langamma og sambýliskona,
Eygló Anna Sigurðardóttir
Suðurgötu 85,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þann 26. júní sl.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju 11. júlí kl. 13.
Ágústa Árnadóttir Sigurður Bjarnason
Þorbjörg Sólbjartsdóttir Árni Freyr Einarsson
Fannar Sólbjartsson Erla Ösp Lárusdóttir
Einar Ingi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Heiðrún Jónsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Jóhannesi Sigurðssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Reyni að læra að njóta
frekar en þjóta,“ segir
athafnakonan Heiðrún
Jónsdóttir frá Húsavík sem
verður fimmtug á morgun.
Heiðrún Jónsdóttir, lög-maður og athafnakona, fæddist 9. júlí 1969 á Húsavík. „Hidda“ eins og hún var kölluð af f jölskyldunni framan
af eða „Heidda“ eins og vinirnir kalla
hana, fór 16 ára í Samvinnuskólann að
Bifröst þaðan sem hún lauk verslunar-
prófi. Að loknu stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla íslands 1989 hélt hún til vetr-
ardvalar í Þýskalandi. Hún lauk síðan
kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla
Íslands árið 1995, prófi í starfsmanna-
stjórnun frá Háskólanum á Akureyri
1999, löggildingu í verðbréfamiðlun
2006 og síðan AMP stjórnunarnámi frá
IESE Business School 2017.
Í dag starfar Heiðrún sem lögmaður
en hefur einkum starfa af setu í stjórn-
um nokkurra stærstu fyrirtækja lands-
ins.
Ræturnar
„Ræturnar eru fyrir norðan,“ segir
Heiðrún og ljómar öll. „Foreldrar mínir,
hjónin Jón Helgi Gestsson og Halldóra
María Harðardóttir, búa enn á Húsavík.
Þar hafa þau búið í sama húsinu í 50 ár,
ef frátalin eru árin 1978-1979 þegar við
bjuggum í Svíþjóð.
Heiðrún giftist Jóhannesi Sigurðs-
syni árið 2014. Hann er dómari við
Landsrétt. Hún á tvö börn, þau Jón
Hallmar Stefánsson fæddan 1998 og
Heiðveigu Björgu Jóhannesdóttur
fædda 2005. Stjúpsynir eru þrír, þeir
Sigurður Logi lögmaður, Andrés Már
viðskiptafræðingur og Tómas Hrafn
tölvunarfræðingur.
Aðspurð um áhugamál segir Heið-
rún þau séu aðallega útivist, ferðalög og
fjölskyldan. „Að vera úti í náttúrunni
á Íslandi er best af öllu, sérstaklega á
sumrin. Trúlega er stutt í sveitastelp-
una, en ég var mikið í sveit hjá ömmu
Heiðveigu og afa Gesti í Múla í Aðal-
dal.“ Annars hefur Skorradalur átt
talsverðan tíma hennar frá árinu 2007.
„Þar á fjölskyldan fallegt sumarhús. Þar
er gott að vera,“ segir hún. „Þegar við
ferðumst á Íslandi þá viljum við allra
helst vera á fámennum stöðum frekar
en yfirfullum tjaldstæðum. Ef ég á að
uppljóstra um uppáhaldsstaðinn þá
myndi ég segja Flateyjardalur í Þing-
eyjarsýslu. Þaðan var Emilía langamma
mín en hún var fædd árið 1903. Það er
eitthvað við dalinn, söguna og að horfa
yfir í Flatey á Skjálfanda. Í fyrra fórum
við hjónin á Hornstrandir og gengum
um í fjóra daga. Þá er alltaf gott að
koma heim á Húsavíkina og nauðsyn-
legt að komast á sjóstöng með Geira
frænda,“ segir Heiðrún.
Heilræðið
Uppáhaldsborgir Heiðrúnar eru nokkrar.
„Eftir vetrardvöl í Þýskalandi stendur
München upp úr ásamt Berlín, en þar
var ég stödd þegar múrinn féll í nóvem-
ber 1989. Þá er Barcelona frábær borg og
ég naut þess að vera þar í náminu við IESE
Business School. Áhugaverðasta landið
sem við höfum farið til er þó Víetnam.“
En eru ekki miklar annir vegna setu í
öllum þessum stjórnum? „Jú, það er rétt
en þetta er fjölbreytt og skemmtilegt,“
segir hún. „Það er mér mikilvæg leið-
sögn að taka verkefnin alvarlega og gefa
engan afslátt af því, en taka mig sjálfa
ekki alvarlega um of. Mikilvægasta
heilræðið sem ég hef fengið er trúlega
frá Heiðveigu ömmu sem var efnislega
eitthvað á þessa leið: „Aldrei verða geð-
lurða, mér leiðist fólk sem hefur engar
skoðanir.“ Ég læt svo lesendum eftir að
lesa í hvaða merkingu orðið geðlurða
hefur haft í Þingeyjarsýslu á síðustu
öld,“ segir Heiðrún brosandi.
Afmælið
Hvað ætlar athafnakonan að gera af
þessu tilefni? „Á föstudagskvöldið
síðasta fagnaði ég með fjölskyldunni,
vinum og góðu samferðafólki með
veislu í Kópavogi.
Á sjálfan afmælisdaginn ætla ég hins
vegar að láta lítið fyrir mér fara og hafa
það rólegt.“
En hvernig leggst þessi aldur í þig? „Ég
er þakklát fyrir hvert ár, það er ekkert
sjálfgefið. Ég er að reyna að læra að
njóta fremur en að þjóta,“ segir afmæl-
isbarnið og athafnakonan Heidda frá
Húsavík. david@frettabladid.is
Amma sagði mér að
verða aldrei geðlurða
Athafnakonan
Heiðrún Jónsdóttir
Heiðrún hefur víðtæka reynslu af
stjórnarsetu frá árinu 1998. Hún
hefur meðal annars verið formaður
stjórna Norðlenska, Íslenskra
verðbréfa, Gildis lífeyrissjóðs og
stjórnarmaður í stjórnum Ístaks,
Reiknistofu bankanna, Arion verð-
bréfavörslu, Þekkingar, Landssam-
bands lífeyrissjóða og Símans. Þá
sat hún í stjórn Lögmannafélags
Íslands og var varaformaður þess
síðasta ár.
Heiðrún hefur verið stjórnar-
maður í Icelandair frá mars 2018, í
bankastjórn Íslandsbanka frá apríl
2016, í stjórn Olíuverzlunar Íslands
hf. frá nóvember 2013 og í stjórn
Regins frá mars 2019.
Það var glatt á hjalla 4. júlí þegar 24 íslenskir læknanemar útskrifuð-
ust frá Jessenius-háskólanum
í Martin í Slóvakíu. Þetta er
annar íslenski útskriftar-
árgangurinn. Alls eru um 150
íslenskir nemendur í skól-
anum.
Runólfur Oddsson, ræðis-
maður Slóvakíu, sem hefur
haft milligöngu um sam-
starfið síðan árið 2012 og
hefur fylgst grannt með
framvindunni. Hann segir
að hækkanir á skólagjöldum
í Ungverjalandi hafi gert Slóv-
akíu vinsælli en tungumálið
er einnig auðveldara.
Árið 2012 innrituðust
8 íslenskir læknanemar í
Jessenius. Ári síðar var talan
rokin upp í 48 og í dag eru
Íslendingar næstfjölmennasti
hópur erlendra nema, á eftir
Norðmönnum. Nú er hægt
að þreyta inntökupróf fyrir
Jessenius bæði í MK og MA.
Námsefnið í háskólanum er
kennt á ensku.
Anja Rún Egilsdóttir er ein
af þeim sem hófu nám árið
2013 og útskrifast nú. Martin
er 55 þúsund manna bær en
lítill að f latarmáli og allt í
göngufæri að sögn Önju.
„Við Íslendingarnir höld-
um hópinn. Þegar ég var á
öðru ári var stofnað sérstakt
nemendafélag fyrir íslenska
læknanema, FÍLS. Við höldum
okkar árshátíð, förum í skíða-
ferðir, pöbbkvis og fleiri við-
burði. Einnig erum við í sam-
skiptum við Landspítalann
varðandi verknám.“ Hún
segir námið mjög krefjandi.
„En þetta er líka búið að vera
mikið ævintýri og ég mæli
hiklaust með þessum skóla.“
Hún segir langflesta fara heim
í kandídatsnám. – ds
Stór árgangur Íslendinga
útskrifast í Slóvakíu
Það var glatt á hjalla hjá íslensku nemunum sem útskrifuðust
úr læknanámi frá Jessenius-háskólanum í Martin í Slóvakíu.
8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
1
-0
6
2
8
2
3
6
1
-0
4
E
C
2
3
6
1
-0
3
B
0
2
3
6
1
-0
2
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K