Fréttablaðið - 08.07.2019, Page 34
Heitustu
grillin!
weber.is
Kolagrill
Gasgrill
Rafmagns
grill
www.hókuspókus.is
Verslun og vefverslun
Laugavegi 69 S. 551-7955
Grímur og skraut
Helíum frá 2990
BÆKUR
Hernaðarlistin
Höfundur: Sun Tzu
Þýðandi: Brynjar Arnarson
Blaðsíður: 118
Útgefandi: Ugla
Samkvæmt rótgróinni staðal
ímyndinni hugsa Kínverjar aldir
ef ekki árþúsund fram í tímann,
ólíkt bleiknef junum á Vestur
löndum sem mega teljast góðir ef
framtíðarsýn þeirra nær fram yfir
næstu mánaðamót. Gæti haft eitt
hvað að gera með það að á meðan
okkar heimshluti er á hraðferð lóð
beint til andskotans er gula hættan
í stórsókn, meira að segja með hin
voldugu Bandaríki í efnahagslegu
hálstaki.
Sun Tzu skrifaði kverið Hernað
arlistin fyrir 2.500 árum eða svo en
þar fór hann yfir nokkur grundvall
aratriði sem geta á vígvellinum skil
ið milli milli feigs og ófeigs, sauðina
frá höfrunum og sigurvegarana frá
töpurunum. Og þegar horft er yfir
heimskortið bendir ýmislegt til
þess að Kínverjar eigi jafn auðvelt
með að skilja Hernaðarlistina og við
hérna megin Litlu gulu hænuna.
Tröllatrú höfundar á verki sínu og
herkænsku var slík að hann mark
aðssetti hana með loforði um að
hver sá sem les bókina vandlega og
tileinkar sér speki hennar bara geti
ekki tapað. Hvorki orrustu né stríði.
Fólk trúir þessu enn enda sjálfsagt
engu logið ef tekið er tillit til þess að
þarna horfði stríðsherrann fram hjá
hugsanlegum veikleikum og göllum
lesenda sinna.
The Art of War hefur löngum
verið aðgengileg í enskum þýð
ingum en er nú loksins komin út í
aðgengilegri og auðlesinni íslenskri
þýðingu sem Hernaðarlistin. Vel til
fundið og síðan er það í höndum
hvers og eins hversu vel bókin
gagnast þeim í átökum.
Pissað í vínið
Hinn heimspekilega sinnaði og
djúptþenkjandi stríðsherra Sun
Tzu leggur mikla áherslu á að
þekking á veðurfari, staðháttum
og pólitík geti skipt sköpum
þegar til átaka kemur. Þá er
voðinn alveg vís ef herforingjar
þekkja ekki óvininn jafn vel, ef
ekki betur, en sjálfa sig. Hégómi,
skapofsi og tilfinningasemi eru
til dæmis veikleikar sem upplagt
er að nýta gegn óvininum og sam
kvæmt Sun Tzu er það óvinurinn
sem skapar þér tækifærin til sigurs.
Blekkingar, lygar, njósnarar
og gagnnjósnarar, mútur og mis
vísandi upplýsingar eru beitt vopn
og árangursríkar andlegar hernað
araðgerðir geta vegið þyngra en
liðsstyrkur.
Reiður andstæðingur sem ryðst
fram í bræði og fljótfærni á vígvelli
sem þú hefur valið þér er búinn að
tapa áður en á hólminn er komið.
Upplagt til dæmis í aðdraganda
orrustu að upplýsa óvininn um að
þú hafir verið búinn að pissa í hrís
grjónavínið sem hann drakk í gær.
Skák og mát!
Lífsbaráttan
Stríðskeisarinn og taparinn annál
aði Napóleón Bónaparte var að
sögn ákaflega hrifinn af Hernaðar
listinni og þeir sem vilja þykjast
voða klárir og herkænir hafa undar
lega tilhneigingu til þess að vitna í
Napóleon og orð hans um að maður
eigi aldrei að trufla andstæðinginn
á meðan hann er að gera mistök. Sá
stutti lærði þetta að vísu af Sun Tzu
og fékk síðan að gera sín
mistök ótruflaður.
Lífið er stríð, endalaus barátta
alla daga þannig að speki Sun Tzu
er í raun ein merkilegasta og gagn
legasta sjálfshjálparbók sem til
er. Hernaðarfræði eru til dæmis
grunnur allrar markaðsfræði en á
þeim vígvelli, rétt eins og í öllum
viðskiptum, skiptir öllu að sjá fleiri
leiki fram í tímann en keppinautur
inn, vita meira en hann og auðvitað
helst að geta blekkt hann, reitt til
reiði, koma fáti á hann þannig að
hann missi sig í f ljótfærni.
Stjórnendur fyrirtækja, þjálf
arar íþróttaliða og í raun allir með
mannaforráð eða sem eiga góðan
árangur undir sterkri og einbeittri
liðsheild geta lært margt af hug
myndum Sun Tzu um hvernig her
foringjar geta hámarkað árangur
hersins, þjappað fólki að baki sér
og fengið sem mest út úr hverjum
og einum. Í þeim efnum mælir Sun
Tzu til dæmis ekki með að gullið sé
sparað. Rétt að halda því vandlega
til haga.
Listin að lesa til gagns
Þótt margir hafi eða þykist hafa
lesið bókina virðist boðskapur
inn vefjast leiðinlega oft fyrir
fólki. Sun Tzu sagði til dæmis: „Í
stríði er alla jafna best að ná ríki
ósködduðu; að leggja það í rúst
er síðri kostur.“
Þetta vefst eitthvað fyrir
stríðsherrum vorra tíma. Að
maður tali ekki um þessa aug
ljósu staðreynd: „En að sigra
hundrað sinnum í hundrað orr
ustum er ekki æðsta stig her
kænsku. Að buga óvininn án
vopnaviðskipta, það er snilld.“
Hér er ég vitaskuld kominn í
algera mótsögn við sjálfan mig
og leyfi skyldu gagnrýnandans
að slæva dómgreind mína. Ef ég
færi að ráðum Sun Tzu myndi ég
vitaskuld gefa bókinni 0 stjörnur,
dæma hana úr leik og ráða fólki
eindregið frá því að lesa hana.
Vegna þess að auðvitað styrkir
það mig í væringum daglegs lífs,
hafandi lesið Hernaðarlistina, að
sem fæstir geri slíkt hið sama. Víg
staða þess sem þekkir þessi fræði er
auðvitað betri en þess sem ekkert
veit í sinn stríðshaus.
Hjónaskilnaður sem ég fór í
gegnum fyrir mörgum árum er
gott dæmi. Við erum bæði bókelsk
í meira lagi og mest gekk á þegar
kom að því að skipta bókasafni
upplausnarheimilisins.
The Art of War var eina bókin
sem við þurftum ekki að rífast um
vegna þess að við áttum hvort sitt
eintakið. Eitt er þó að lesa og annað
að skilja. Hún hirti bílinn, ísskáp
inn, sófasettið, vínskápinn (ég
var að vísu búinn að tæma hann),
þvottavélina, þurrkarann, plötu
spilarann minn og magnarann. Ég
náði helmingi skuldanna og mínu
eintaki af Hernaðarlistinni. Þann
ig að ekki þarf að hafa mörg orð um
hvort okkar er gleggri lesandi.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Hernaðarlistin e í raun
yfir gagnrýni og stjörnugjöf hafin, haf-
andi sannað sig í 2.500 ár sem eitursnjall
lífsleiðarvísir sem hefur verið færður í
letur. Algert lykilrit í hernaði sem getur
einnig skipt sköpum í viðskiptum, stjórn-
málum og á öllum öðrum átakasvæðum
tilverunnar.
Sjálfshjálparbók sigurvegara
Napóleon las Hernaðarlistina af miklum áhuga.
Hver er toppurinn á
þínu sumri?
8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
1
-2
8
B
8
2
3
6
1
-2
7
7
C
2
3
6
1
-2
6
4
0
2
3
6
1
-2
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K