Fréttablaðið - 08.07.2019, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Bjarni Þór
Georgsson
dressaði sig
heldur betur
upp fyrir
opnunina hjá
Jóni Óskari
og toppaði
sjálfan lista-
manninn
sem er yfir-
leitt alltaf sá
langflottasti.
Margt var um mann-inn og mikið fjör í Eyjum um helgina þegar hjónin Jón Óskar og Hulda
Hákon opnuðu annars vegar einka-
sýningu Jóns í Eldheimum og sam-
sýninguna Fjallið eina og önnur verk
í Safnahúsinu.
Jón Óskar segist í samtali við
Fréttablaðið bera hlýjar og sterkar
taugar til Eyja, enda er hann ættaður
þaðan og þau Hulda dvelja þar mikið
í leik og starfi. Bæði eru þau stór nöfn
í íslenskum myndlistarheimi en Jón
Óskar segir að þeim finnist Vest-
mannaeyjar þó síður en svo of litlar
fyrir sýningarnar þeirra.
„Maður er náttúrlega alltaf í
höfuðborginni og mér fannst bara
mjög kræsilegt að sýna hérna enda er
ferðamannastraumurinn heilmik-
ill. Það fer alveg gríðarlegur fjöldi í
gegnum Eldheima þar sem einka-
sýningin mín er,“ segir Jón og bætir
við að sýningin standi út september.
„Þannig að mér finnst þetta bara
frábært dæmi. Ég er líka búinn að
vera hérna það lengi og mikið að mér
finnst eiginlega hálfgerð þegnskylda
að maður sýni fólki hérna það sem
maður er að gera.“
Plöstuð verk í Herjólfi
Jón Óskar segir verkin á sýningunni
unnin bæði í Eyjum og á vinnustof-
unni í Reykjavík. „Á báðum þessum
sýningum er þetta oft dót sem ég fer
með fram og til baka. Eitthvað sem
ég byrja á hérna og klára heima eða
öfugt.“
Jón Óskar á það til að leika sér á
stórum strigum en hann segir verkin
á sýningunum hafa hentað ágætlega
í þessu ferli. „Það er voða einfalt mál
að flytja þetta á milli. Maður setur
bara Vitawrap-plast utan um þau
og sendir með Herjólfi.“
Hulda segir að á samsýning-
unni ægi saman verkum á ýmsum
vinnslustigum. Hún sýni afsteypur,
mót og hluti sem hafa ekki orðið að
neinu, í bland við fullsköpuð lista-
verk. Þar á meðal eru þrjú ný smá-
verk sem eru fjölfeldi og þar má
finna Fjallið eina.
„Jón Óskar sýnir eitt stórt verk
sem er í vinnslu og tvö fullunnin. Þau
voru unnin í samvinnu við schaefer-
tíkina Heiðu Berlín III. Tíkin bjó til
mótin. Gróf holur í fíngerða ösku
Eyjafjallajökuls og Jón Óskar steypti
í þær og fínpússaði.“
Gamlar hetjur
Einkasýning Jóns Óskars er sölu-
sýning en öðru máli gegnir um hans
þátt í samsýningunni. „Á sýningu
okkar Huldu sýni ég verk sem eru
ekki til sölu enda er ég eiginlega að
sýna þar hvernig ég vinn. Þetta eru
sem sagt myndir sem eru hálfklár-
aðar og sumar verða kannski aldrei
myndir. Ég veit það ekki. Þetta er
svona vinnuferli og ég er að fikta
við hina og þessa panela, stilla þeim
upp saman og bara svona máta mig
áfram.“
Jón Óskar bætir við að sig hafi allt-
af langað til að sýna „svona hluti sem
mér finnst vera mjög fallegir. Ég veit
hins vegar að þetta er ekki eitthvað
sem fólk myndi stökkva á, sko. Þetta
er eins og uppkast að einhverju.“
Hann segir Huldu vera í svipuðum
pælingum að einhverju leyti en hún
sé ólíkt honum með fullkláruð verk
til sölu. „Þannig að hennar ferli er
meira heildstætt, frá upphafi til
enda, á meðan mitt er meira bara
svona frosið móment í vinnsluferli.
Þetta eru eiginlega abstraksjónir
á meðan á samsýningunni eru í
og með svona gamlar hetjur, John
Wayne og Ringo Starr og eitthvað.
Þessar klisjur sem ég dreg alltaf á
eftir mér.“
Jón Óskar segist ætíð standa vörð
um sinn mann, Ringo, þegar heitir
aðdáendur fara með fjórmenning-
ana frá Liverpool í mannjöfnuð. „Að
sjálfsögðu. Maður fer ekkert ofan af
því. Hann er flottastur.“
toti@frettabladid.is
Frosin augnablik og
gamlir kunningjar
Myndlistarhjónin Hulda Hákon og Jón Óskar taka virkan þátt í gosloka-
og 100 ára afmælisgleðinni í Eyjum með tveimur sýningum þar sem
ægir saman verkum á ýmsum vinnslustigum, ókláruð og fullunnin. Þá á
schaefer-tíkin þeirra, Heiða Berlín III, hluta í verkum Jóns.
ÉG ER LÍKA BÚINN AÐ
VERA HÉRNA ÞAÐ
LENGI OG MIKIÐ AÐ MÉR FINNST
EIGINLEGA HÁLFGERÐ ÞEGN-
SKYLDA AÐ MAÐUR SÝNI FÓLKI
HÉRNA ÞAÐ SEM MAÐUR ER AÐ
GERA.
Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, gerði sér ferð
til Eyja til þess að skoða list Huldu Hákon og Jóns Óskars. Á milli hans og
Huldu er Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eldheima.
8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
20-50%
af öllum
púðum
útsala
70%
sparaðu allt að
af völdum vörum
BALL loftljós. Hvítt með 7 kúplum. Ø18 cm. 79.995 kr. Nú 23.999 kr.
STEEL hægindastóll.
Rauður. 44.900 kr.
Nú 29.900 kr.
FANO sófaborð. Ø60 cm. Hvítolíuborið.
19.900 kr. Nú 12.900 kr.
0
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
1
-1
0
0
8
2
3
6
1
-0
E
C
C
2
3
6
1
-0
D
9
0
2
3
6
1
-0
C
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K