Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.07.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.07.2019, Qupperneq 6
Allt í kringum Michele Ballarin eru blekkingarleikir. Keith Kloor, höfundur ítarlegrar greinar um Ballarin í Washington Post Epstein var nýlega handtekinn vegna nýrra ásakana um mansal sem á að hafa átt sér stað upp úr síðustu áramótum. D-vítamínbætt nýmjólk frá MS fæst nú einnig án laktósa NÝTT VIÐSKIPTI Atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið birti í gær áform um lagabreytingu á lögum um neyt- endalán á samráðsvef stjórnvalda. Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var settur á laggirnar fyrir ári og er fyrirhuguðu frumvarpi ætlað að bregðast við niðurstöðum hópsins. Niðurstaða starfshópsins var sú að smálán væru þau lán sem valda neytendum mestum vanda og til- lögur hópsins eru þær að óheimilt verði að innheimta gjöld og kostnað af lánunum sem er hærri en lög- bundið hámark af hlutfallstölu kostnaðar. Frumvarpinu er ætlað að koma í veg fyrir að hægt verði að krefja þá sem taka smálán um óhóf- legan kostnað. Opið er fyrir umsagnir um laga- breytinguna á vef Alþingis til 2. ágúst 2019. – bdj Vilja breytt lög um smálán VEIÐI Gæftaleysið í laxveiðiánum heldur áfram og endurspeglast í nýjustu veiðitölum á vef Landssam- bands veiðifélaga. Eins og komið hefur fram leggst mikið þurrkasumar ofan á það að fiskifræðingar sáu fyrir rýrar laxagöngur að þessu sinni. Í Laxá í Kjós héldu menn þó ótrauðir áfram að leggja línurnar fyrir laxinn í morgun. Á miðvikudagskvöld höfðu verið færðir 42 laxar þar til bókar. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst þar 276 laxar. Og þannig er sagan af laxveiðinni um vestanvert og norðvestanvert landið. Af lahæsta veiðistöðin hingað til er Urriðafoss í Þjórsá þar sem reyndar var ekki veitt á stöng fyrr en sumarið 2017. Þar voru 502 laxar skráðir í veiðibækur í lok miðviku- dags. – gar Lítil uppörvun í nýjum laxveiðitölum Flugu kastað í afar vatnslítinn Kvíslafoss í Laxá í Kjós. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 42 laxar hafa veiðst í Laxá í Kjós það sem af er sumri. BANDARÍKIN Alexander Acosta, atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði af sér í gær. Acosta hefur sætt harðri gagnrýni fyrir það hvernig hann hélt utan um kynferðis- brotamál gegn auðjöfrinum Jeffrey Epstein er hann gegndi embætti ríkissaksóknara í Miami árið 2008. Epstein var nýlega handtekinn vegna nýrra ásakana um mansal Málið þar sem Acosta kom við sögu snerist um ásakanir um kynferðis- brot gegn fjörutíu stelpum undir lög- aldri. Acosta náði samkomulagi við Epstein um að hann þyrfti einungis að sitja inni í þrettán mánuðiog þótti mörgum það of væg refsing. – þea Enn einn fyrir borð hjá Trump VIÐSKIPTI Michele Lynn Golden- Ballarin er á allra vörum í íslensku viðskiptalífi eftir að það kvisaðist út að hún væri kaupandi allra eigna sem tengjast flugrekstri úr þrotabúi WOW air. Af fréttum og greinum sem um konuna hafa verið ritaðar á síðustu árum er ljóst að skoðanir þeirra sem eitthvað hafa haft af henni að segja eru mjög skiptar. Lýsa sumir henni sem montnum en velmeinandi mannúðarfrömuði en aðrir mis- kunnarlausum og gráðugum mála- liða eða njósnara. Ballarin er bandarísk athafna- kona, fædd árið 1965. Hún ræktar hesta og selur fasteignir í Virginíu- fylki og hefur nýverið sett þar á laggirnar fyrirtæki sem sérhæfir sig í heilnæmu mataræði. Hún er skráð stjórnarmaður í fyrir tækinu Select Armor, sem framleiðir skotheld vesti, og í félag- inu Oasis Aviation Group, sem flýg- ur milli Bandaríkjanna og afríska smáríkisins Djibútí. Mesta frægð hefur Ballarin getið sér fyrir tilraunir sínar til að miðla málum milli sómalskra mannræn- ingja og úkraínskra stjórnvalda um síðustu aldamót en hún hafði þá tekið Sómalíu í hálfgert fóstur, og gengur þar undir nafninu Prinsessa Ballarin (Amira Ballarin). Boðberi mannúðar í Sómalíu eða miskunnarlaus málaliði Michele Ballarin er sögð nýjasta von Íslendinga í lággjaldaflugi. NORDICPHOTOS/GETTY Athafnakonan Mich ele Ballarin er hergagna- framleiðandi og sjálf- skipaður samningamað- ur í mannránum. Hún hefur þegið greiðslur frá Pentagon og boðið að- stoð í stríði gegn hryðju- verkum. Nú ætlar hún að endurreisa WOW air. Tilraunir hennar til að bjarga gísl- um hinna sómalísku sjóræningja gengu reyndar ekki betur en svo að forsætisráðherra Úkraínu bað Hill- ary Clinton, sem þá var utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, um að koma konunni úr þessu sjálfskipaða hlutverki sínu. Mannræningjarnir hefðu ókyrrst mjög við afskipti hennar og hækkað kröfur sínar um lausnargjald upp úr öllu valdi. Keith Kloor skrifaði ítarlega grein um Ballarin í Washington Post Magazine árið 2013 og fjallar þar meðal annars um samskipti hennar við bæði leyniþjónustu Bandaríkj- anna (CIA) og Pentagon en í bréfi sem hún sendi CIA árið 2007 kynnti hún sig sem stjórnarformann Gulf Security Group, félags skráðu í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum, sem hafi það að markmiði að elta uppi og eyða Al Kaída hryðjuverka- hópum í Afríku. Í svari CIA var boð hennar um aðstoð í stríðinu gegn hryðjuverk- um afþakkað. Ballarin sneri sér þá til hersins. Hún átti fund með emb- ættismönnum í Pentagon vorið 2008. Á fundinum kynnti hún sig sem forstjóra fyrirtækisins Blackst- ar og kynnti áform þess um að setja á laggirnar matargjafa- og mannúð- arstarf í Sómalíu. Ekki væri þó um raunverulegt mannúðarverkefni að ræða heldur njósnastarfsemi fyrir Bandaríkjastjórn. Sómalar, sem þæðu matargjafir, þyrftu að gefa upp nöfn sín og aðrar upplýsingar um sig sem færu í gagnagrunna Pentagon með það að markmiði að gagnast stríðinu gegn hryðju- verkum. Og Bandaríkjastjórn beit á agnið. Blackstar var lofað 200 þús- und dollurum til að byrja með, með fyrirheitum um meira ef verkefnið skilaði árangri. Samningnum var hins vegar slitið áður en langt um leið, enda leit njósna planið aldrei dagsins ljós. Nánar um Ballarin á frettabladid.is. adalheidur@frettabladid.is 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -5 8 7 8 2 3 6 C -5 7 3 C 2 3 6 C -5 6 0 0 2 3 6 C -5 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.