Fréttablaðið - 13.07.2019, Qupperneq 20
Elín Agla Briem, hafnar-stjóri í Norður f irði, kveðst lengi hafa átt sér þann draum að stofna þjóðmenningarbýli og -skóla í Árneshreppi.
„Ég er þjóðmenningarbóndi en
vantaði jarðnæði. Í fyrra fékk ég
styrk til að kaupa mongólskt tjald
og líka leyfi hjá Drangamönnum til
að setja það upp á Seljanesi. Tjaldið
kom norður í fyrrasumar og undir-
búningur fyrir uppsetningu þess
hófst 19. maí í vor. Seljanes er svo-
lítið utan alfaraleiðar, þangað er um
hálftíma keyrsla frá Norðurfirði og
ég hefði aldrei getað þetta nema af
því að margt gott fólk hefur hjálpað
mér. Það komast engar vinnuvélar
á svæðið heldur er bara handaflið
sem gildir en það er mikil gleði í
þessu verkefni því allir hjálpast að
og það kveða við dillandi hlátra-
sköll. Svo er hitað kaffi og sumir fá
sér rauðvín.
Tjaldið er sem sagt þjóðmenning-
arbýli sem ber nafnið Þetta Gimli
og þar er fyrirhugað að halda nám-
skeið og veislur, rifja upp handverk,
segja sögur, fara með kveðskap,
syngja og spila tónlist, allt það sem
hefur gætt líf okkar gleði og gildum
gegnum aldirnar. Það er það sem við
erum að hlúa að.“
Einhverra hluta vegna bitu virkj-
anasinnar þó í sig að helsta ógn við
virkjunina væri þetta tjald, að sögn
Elínar Öglu. „Fyrst heyrði ég sögu-
sagnir um að tjaldið ætti að verða
mótmælendabúðir og maður á
níræðisaldri sem erfði hluta af Selja-
nesi, en á ansi bágt með skapið í sér,
hótar mér lögreglu og vinnuflokki
til að taka tjaldið niður – á minn
kostnað.“
Þú hefur þó ekki verið áberandi
undanfarið í baráttu gegn virkjun-
inni, bendi ég á. „Nei, alls ekki og
hef í raun aldrei barist gegn henni.
Þegar fyrst var talað um virkjun
fylgdi sögunni að nýr vegur yrði
lagður í hreppinn og einhver störf
sköpuðust í sveitinni, og úr því sam-
félagsáhrifin áttu að verða svona
jákvæð setti ég mig ekki upp á móti
henni. En fyrir opinberan fund í
hreppnum á vegum VesturVerks
í apríl 2017 settist ég yfir skýrslur
um málið og sá að þessar forsendur
voru fallnar svo ég fylltist efa-
semdum. Ég bý jú þarna og kannski
má ég hafa skoðun á þessu. Við Val-
geir Benediktsson í Árnesi stóðum
fyrir málþingi í júní þetta ár þar
sem öllum var gert kleift að tjá sig,
þar voru fulltrúar frá Orkubúinu og
Landsneti og Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, sem þá var formaður
Landverndar en nú umhverfisráð-
herra. Sama sumar kom ég í viðtal
í Fréttablaðinu. Síðan hef ég ekki
tjáð mig, hvorki á Fésbók né nokk-
urs staðar svo að gera mig að for-
ystumanni alls andófs og þann sem
verður að taka niður til að virkjunin
fái framgang sýnir bara að menn eru
gengnir af göflunum – ég er nýbúin
að læra að það þýðir að hús hrynji
og bara gaflarnir standi eftir. Við
erum bara að tala um mongólskt
tjald sem stendur í tvo mánuði, gegn
milljarða framkvæmd og hundr-
uðum ferkílómetra sem fara undir.
Þetta eru andstæðurnar.“
Fagnaður í dag í tjaldinu
Tjaldið var reist 30. júní og Elín
Agla kveðst búin að sofa í því. „Það
var bara dásamlegt,“ segir hún
brosandi. Kveðst svo hafa skutlast
í bæinn til að sækja tvær vinkonur
sínar frá Kanada sem ætli að taka
þátt í samkomu í tjaldinu í dag,
13. júlí. „Þá bjóðum við til fagnaðar
handverksfólki til heiðurs, bæði úr
sveitinni og víðar að, það er fyrsti
viðburðurinn.
Það næsta sem gerist er að Steph-
en Jenkinson, sem ég hef gengið í
skóla hjá í Kanada síðustu sjö ár, er
að koma í þessum mánuði í þriðja
sinn í Árneshrepp. Hann kom með
80 manns í fyrra frá Bretlandi á
fimm daga námskeið en nú er hann
að túra með hljómsveit um Banda-
ríkin, Ástralíu og England og ásamt
honum koma fjórir úr hljómsveit-
inni. Þeir kalla prógrammið Nights
of Grief & Mystery, það snýst um
tónlist og sögur sem Stephen segir.
Stephen er mesta kraftaskáld
og umbreytingarafl sem ég þekki,
skrifar bækur og heldur fyrirlestra
úti um allan heim. Hann mun fjalla
um sögu okkar frá landnámi til
okkar daga, um baráttuna í heim-
inum sem snýst um ágang á auð-
lindir jarðar, að græða og rífa á hol
jörðina, um stóru átökin og erfiðar
hliðar mannlífsins.
Þetta er lokabaráttan og eins og
annað kemur hún síðast í Árnes-
hrepp. Rafmagnið kom þangað
ekki fyrr en 1977, vegurinn ekki
fyrr en 1966. Allt kemur síðast
þangað, þess vegna lifir eitthvað
þar sem er dáið annars staðar, þar
er fólk fætt af þessu landi og hefur
verið þar kynslóð fram af kynslóð
og yrkt landið í auðmýkt. Nú á að
breyta Árneshreppi í gull. Í Völuspá
er okkur sagt hvernig þetta gerist,
lokastríðið kviknar út af gullinu
og í ragnarökum brennur jörðin.
Stríðið stendur á mörgum stöðum,
núna er það í Árneshreppi og á sama
AÐ HANN SKULI FARA
SVONA GEGN MÉR OG
ÞESSU LITLA TJALDI ER
BARA ÓTRÚLEGT.
Þar munu
göldróttir
og goð lifa
Veglegt tjald setur nú svip á Seljanes, milli
Ingólfsfjarðar og Ófeigsfjarðar á Ströndum.
Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi og
hafnarstjóri í Norðurfirði, á það og reisti
með góðra manna hjálp. Tjaldið hefur vak-
ið tortryggni virkjunarsinna og því er vert
að spyrja hana hvað hún hyggist fyrir.
Elín Agla efnir til veislu í tjaldinu í dag, handverksfólki til heiðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það komast
engar vinnu-
vélar á svæðið
heldur er bara
handaflið sem
gildir en það
er mikil gleði í
þessu verkefni,“
segir Elín Agla
um uppsetn-
ingu tjaldsins.
tíma og lokaorrustan geisar rís tjald
sem heitir Þetta Gimli því Gimli er
staður í ragnarökum þar sem hlé er
frá eldinum. Þar munu göldróttir og
goð lifa. Þetta er ekki ný saga.“
Sleit sambandi við náttúrusinna
Elín Agla tekur fram að íbúar Árnes-
hrepps séu almennt ekki að hljóta
gull með þessari virkjun, ekki nema
landeigandinn, hann sé líka reiðast-
ur allra. „Að hann skuli fara svona
gegn mér og þessu litla tjaldi er
bara ótrúlegt og ég held að enginn
af sveitungunum taki undir hans
sjónarmið, því þeir eru vinir mínir.
Ég hef búið hér í tólf ár og barnið
mitt er fætt hér. Þegar náttúru-
verndarbaráttan hófst 2017 vildu
margir eigna sér mig – hafa íbúann
með sér – en þegar ég heyrði á tal
öfgafullra náttúrusinna, hvernig
þeir töluðu um fólkið í Árneshreppi
þá sleit ég öllu sambandi við þá, því
það var mjög óþægilegt. Þess vegna
hef ég ekki sagt orð eða tekið þátt
í neinu starfi. Ég set ekki nafn mitt
við þannig öfgar.
Ég hef unnið að því síðustu tvö ár
að reyna að viðhalda þorpsvitund
og samfélagi, þannig að það að
ráðast gegn mér ber vott um mikla
hugsanavillu og rembu. En þessar
deilur hafa óhjákvæmilega afleið-
ingar í samfélaginu. Það er ekki
hægt að taka allt til baka sem sagt
er. Sumt hefur orðið og mun alltaf
hafa orðið.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-5
D
6
8
2
3
6
C
-5
C
2
C
2
3
6
C
-5
A
F
0
2
3
6
C
-5
9
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K