Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 20
Elín Agla Briem, hafnar-stjóri í Norður f irði, kveðst lengi hafa átt sér þann draum að stofna þjóðmenningarbýli og -skóla í Árneshreppi. „Ég er þjóðmenningarbóndi en vantaði jarðnæði. Í fyrra fékk ég styrk til að kaupa mongólskt tjald og líka leyfi hjá Drangamönnum til að setja það upp á Seljanesi. Tjaldið kom norður í fyrrasumar og undir- búningur fyrir uppsetningu þess hófst 19. maí í vor. Seljanes er svo- lítið utan alfaraleiðar, þangað er um hálftíma keyrsla frá Norðurfirði og ég hefði aldrei getað þetta nema af því að margt gott fólk hefur hjálpað mér. Það komast engar vinnuvélar á svæðið heldur er bara handaflið sem gildir en það er mikil gleði í þessu verkefni því allir hjálpast að og það kveða við dillandi hlátra- sköll. Svo er hitað kaffi og sumir fá sér rauðvín. Tjaldið er sem sagt þjóðmenning- arbýli sem ber nafnið Þetta Gimli og þar er fyrirhugað að halda nám- skeið og veislur, rifja upp handverk, segja sögur, fara með kveðskap, syngja og spila tónlist, allt það sem hefur gætt líf okkar gleði og gildum gegnum aldirnar. Það er það sem við erum að hlúa að.“ Einhverra hluta vegna bitu virkj- anasinnar þó í sig að helsta ógn við virkjunina væri þetta tjald, að sögn Elínar Öglu. „Fyrst heyrði ég sögu- sagnir um að tjaldið ætti að verða mótmælendabúðir og maður á níræðisaldri sem erfði hluta af Selja- nesi, en á ansi bágt með skapið í sér, hótar mér lögreglu og vinnuflokki til að taka tjaldið niður – á minn kostnað.“ Þú hefur þó ekki verið áberandi undanfarið í baráttu gegn virkjun- inni, bendi ég á. „Nei, alls ekki og hef í raun aldrei barist gegn henni. Þegar fyrst var talað um virkjun fylgdi sögunni að nýr vegur yrði lagður í hreppinn og einhver störf sköpuðust í sveitinni, og úr því sam- félagsáhrifin áttu að verða svona jákvæð setti ég mig ekki upp á móti henni. En fyrir opinberan fund í hreppnum á vegum VesturVerks í apríl 2017 settist ég yfir skýrslur um málið og sá að þessar forsendur voru fallnar svo ég fylltist efa- semdum. Ég bý jú þarna og kannski má ég hafa skoðun á þessu. Við Val- geir Benediktsson í Árnesi stóðum fyrir málþingi í júní þetta ár þar sem öllum var gert kleift að tjá sig, þar voru fulltrúar frá Orkubúinu og Landsneti og Guðmundur Ingi Guð- brandsson, sem þá var formaður Landverndar en nú umhverfisráð- herra. Sama sumar kom ég í viðtal í Fréttablaðinu. Síðan hef ég ekki tjáð mig, hvorki á Fésbók né nokk- urs staðar svo að gera mig að for- ystumanni alls andófs og þann sem verður að taka niður til að virkjunin fái framgang sýnir bara að menn eru gengnir af göflunum – ég er nýbúin að læra að það þýðir að hús hrynji og bara gaflarnir standi eftir. Við erum bara að tala um mongólskt tjald sem stendur í tvo mánuði, gegn milljarða framkvæmd og hundr- uðum ferkílómetra sem fara undir. Þetta eru andstæðurnar.“ Fagnaður í dag í tjaldinu Tjaldið var reist 30. júní og Elín Agla kveðst búin að sofa í því. „Það var bara dásamlegt,“ segir hún brosandi. Kveðst svo hafa skutlast í bæinn til að sækja tvær vinkonur sínar frá Kanada sem ætli að taka þátt í samkomu í tjaldinu í dag, 13. júlí. „Þá bjóðum við til fagnaðar handverksfólki til heiðurs, bæði úr sveitinni og víðar að, það er fyrsti viðburðurinn. Það næsta sem gerist er að Steph- en Jenkinson, sem ég hef gengið í skóla hjá í Kanada síðustu sjö ár, er að koma í þessum mánuði í þriðja sinn í Árneshrepp. Hann kom með 80 manns í fyrra frá Bretlandi á fimm daga námskeið en nú er hann að túra með hljómsveit um Banda- ríkin, Ástralíu og England og ásamt honum koma fjórir úr hljómsveit- inni. Þeir kalla prógrammið Nights of Grief & Mystery, það snýst um tónlist og sögur sem Stephen segir. Stephen er mesta kraftaskáld og umbreytingarafl sem ég þekki, skrifar bækur og heldur fyrirlestra úti um allan heim. Hann mun fjalla um sögu okkar frá landnámi til okkar daga, um baráttuna í heim- inum sem snýst um ágang á auð- lindir jarðar, að græða og rífa á hol jörðina, um stóru átökin og erfiðar hliðar mannlífsins. Þetta er lokabaráttan og eins og annað kemur hún síðast í Árnes- hrepp. Rafmagnið kom þangað ekki fyrr en 1977, vegurinn ekki fyrr en 1966. Allt kemur síðast þangað, þess vegna lifir eitthvað þar sem er dáið annars staðar, þar er fólk fætt af þessu landi og hefur verið þar kynslóð fram af kynslóð og yrkt landið í auðmýkt. Nú á að breyta Árneshreppi í gull. Í Völuspá er okkur sagt hvernig þetta gerist, lokastríðið kviknar út af gullinu og í ragnarökum brennur jörðin. Stríðið stendur á mörgum stöðum, núna er það í Árneshreppi og á sama AÐ HANN SKULI FARA SVONA GEGN MÉR OG ÞESSU LITLA TJALDI ER BARA ÓTRÚLEGT. Þar munu göldróttir og goð lifa Veglegt tjald setur nú svip á Seljanes, milli Ingólfsfjarðar og Ófeigsfjarðar á Ströndum. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi og hafnarstjóri í Norðurfirði, á það og reisti með góðra manna hjálp. Tjaldið hefur vak- ið tortryggni virkjunarsinna og því er vert að spyrja hana hvað hún hyggist fyrir. Elín Agla efnir til veislu í tjaldinu í dag, handverksfólki til heiðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það komast engar vinnu- vélar á svæðið heldur er bara handaflið sem gildir en það er mikil gleði í þessu verkefni,“ segir Elín Agla um uppsetn- ingu tjaldsins. tíma og lokaorrustan geisar rís tjald sem heitir Þetta Gimli því Gimli er staður í ragnarökum þar sem hlé er frá eldinum. Þar munu göldróttir og goð lifa. Þetta er ekki ný saga.“ Sleit sambandi við náttúrusinna Elín Agla tekur fram að íbúar Árnes- hrepps séu almennt ekki að hljóta gull með þessari virkjun, ekki nema landeigandinn, hann sé líka reiðast- ur allra. „Að hann skuli fara svona gegn mér og þessu litla tjaldi er bara ótrúlegt og ég held að enginn af sveitungunum taki undir hans sjónarmið, því þeir eru vinir mínir. Ég hef búið hér í tólf ár og barnið mitt er fætt hér. Þegar náttúru- verndarbaráttan hófst 2017 vildu margir eigna sér mig – hafa íbúann með sér – en þegar ég heyrði á tal öfgafullra náttúrusinna, hvernig þeir töluðu um fólkið í Árneshreppi þá sleit ég öllu sambandi við þá, því það var mjög óþægilegt. Þess vegna hef ég ekki sagt orð eða tekið þátt í neinu starfi. Ég set ekki nafn mitt við þannig öfgar. Ég hef unnið að því síðustu tvö ár að reyna að viðhalda þorpsvitund og samfélagi, þannig að það að ráðast gegn mér ber vott um mikla hugsanavillu og rembu. En þessar deilur hafa óhjákvæmilega afleið- ingar í samfélaginu. Það er ekki hægt að taka allt til baka sem sagt er. Sumt hefur orðið og mun alltaf hafa orðið.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -5 D 6 8 2 3 6 C -5 C 2 C 2 3 6 C -5 A F 0 2 3 6 C -5 9 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.