Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 22
Me t s ö l u l i s t a r byggðir á sölu í bókabúðum landsins birtast reg lu leg a en hvaða bæk u r
eru það sem áhugasamir lesendur
næla sér í á bókasöfnum? Blaða-
maður ákvað að forvitnast um það.
Sunna Dís Másdóttir, sem nýverið
lét af starfi verkefnastjóra bók-
mennta á Borgarbókasafninu, tók
að sér á síðustu vikum sínum í starfi
að rýna í tölfræðina og tók saman
lista yfir topp 10 bækurnar á sex
bókasöfnum í Reykjavík: Grófinni,
Kringlunni, Sólheimum, Spönginni,
Árbæ og Gerðubergi. Bækurnar eru
flokkaðar í fullorðinsbækur, barna-
bækur og unglingabækur. Taka skal
fram að hér er ekki um hávísinda-
lega könnun að ræða, hún er gerð til
skemmtunar en ætti þó um leið að
vera nokkuð upplýsandi.
Breytt hlutverk
Blaðamaður hitti Sunnu Dís og
Guttorm Þorsteinsson bókavörð í
Kringlunni og spurði þau um áhuga
fólks á bókasöfnum og listarnir
góðu komu vitanlega einnig til tals.
„Ég held að það fari ekki fram hjá
neinum sem stunda bókasöfn að það
hefur heilmikið breyst í starfi þeirra
síðustu fimm til tíu árin. Alls konar
viðburðahald hefur stóraukist og
bókasöfnin vinna markvisst að því
að vera menningarhús. Það eru mörg
og fjölbreytt verkefni í gangi. Meðal
nýjunga hjá Borgarbókasafninu má
til dæmis nefna tilraunaverkstæði
þar sem unnið er með tæknilæsi
barna og þeim meðal annars kennt
að forrita,“ segir Sunna Dís.
Guðrún
frá Lundi,
Potter og
Andrés önd
Sunna Dís Másdóttir og Guttomur Þorsteinsson með stafla af vinsælum bókum á Bókasafninu í Sólheimum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 Dalalíf
Guðrún frá Lundi
2 Myrkrið veit
Arnaldur Indriðason
3 Mistur
Ragnar Jónasson
4 Ekki vera sár
Kristín Steinsdóttir
5 Óvelkomni maðurinn
Jónína Leósdóttir
6 Þorsti
Jo NesbØ
7 Saga Ástu
Jón Kalman Stefánsson
8 Sonurinn
Jo NesbØ
9 Gatið
Yrsa Sigurðardóttir
10 Elín, ýmislegt
Kristín Eiríksdóttir
Fullorðinsbækur
1 Fairy tail
Hiro Mashima
2 Harry Potter
og viskusteinninn
J.K. Rowling
3 Harry Potter
og leyniklefinn
J.K. Rowling
4 Vertu ósýnilegur:
Flóttasaga Ishmaels
Kristín Helga Gunnarsdóttir
5 Harry Potter
og eldbikarinn
J.K. Rowling
6 Ég gef þér sólina
Jandy Nelson
7 Harry Potter og
fanginn frá Azkaban
J.K. Rowling
8 Harry Potter
og Fönixreglan
J.K. Rowling
9 Vetrarfrí
Hildur Knútsdóttir
10 Hin illa arfleifð
Thomas Enger
Unglingabækur
1 Myndasögusyrpa
2014
2 Dagbók Kidda klaufa:
furðulegt ferðalag
Jeff Kinney
3 Útsmoginn Einar Áskell
Gunilla Bergström
4 Skrímsli á toppnum
Áslaug Jónsdóttir
Kalle Güettler
Rakel Helmsdal
5 Andrés Önd
2014
6 Myndasögusyrpa
2013
7 Skrímsli í vanda
Áslaug Jónsdóttir
Kalle Güettler
Rakel Helmsdal
8 Dagbók Kidda klaufa
Jeff Kinney
9 Einar Áskell og ófreskjan
Gunilla Bergström
10 Andrés Önd
2013
Barnabækur
Blaðamanni Frétta-
blaðsins lék forvitni
á að vita hvaða
bækur njóta mestra
vinsælda á bóka-
söfnum á höfuð-
borgarsvæðinu. Gott
fólk lagði honum
lið og hér birtast
niðurstöðurnar.
„Stór hluti af starfi mínu felst í
að halda utan um viðburði sem
eru orðnir að föstum liðum eins og
leikhúskaffi, sögustundir og fyrir-
lestrar,“ segir Guttormur.
Þau segja alla hópa sækja söfnin,
en einn hópur er þar afar áberandi.
„Á bókasöfnum gildir það sama
og á öllum menningarviðburðum
landsins, það eru konur á miðjum
aldri og uppúr sem halda uppi
menningarlífinu,“ segir Guttormur.
Sunna bætir við að mikið sé um að
foreldrar komi með börn sín og nýti
sér safnkostinn, en á söfnunum eru
mjög góð svæði fyrir börnin. „Það
er dálítið mismunandi eftir söfnum
hvernig gestahópurinn er. Bóka-
safnið í Sólheimum er hverfissafn
með fastagesti úr nánasta umhverfi,
í Kringluna kemur mikið meira fólk
sem er á leiðinni milli bæjarhluta og
í Grófinni er mikið um ferðamenn
og fólk sem sækir í miðbæinn,“ segir
Sunna.
Dalalíf á toppnum
En hvað vill fólk helst lesa? Topp
10 listarnir sýna það nokkuð vel.
„Þegar kemur að bókum fyrir full-
orðna kom ekki sérstaklega á óvart
að einu sinni sem oftar er Dalalíf
eftir Guðrúnu frá Lundi í efsta
sæti í fjórum af sex söfnum.
Undantekningin er Grófin
þar sem eru myndasögur
fyrir fullorðna í fjórum
efstu sætunum, en þar
er stærsta myndasögu-
safn á Íslandi og mikið
stundað af þeim sem hafa
áhuga á þeim. Svo tókst Jo
NesbØ að skáka Guð-
rúnu frá Lundi
í Árbænum,“
segir Sunna
Dís. „Guðrún
f r á Lu nd i
hefur verið
vinsæl ára-
Guðrún frá
Lundi hefu
r í
áratugi not
ið gríðarleg
ra
vinsælda m
eðal lesend
a
og ekkert v
irðist geta
breytt því.
tugum saman og manni finnst það
fallegt og skemmtilegt að hún tróni
á toppnum ár eftir ár. Við vorum
með sýningu um hana sem hefur
farið víða um land og þegar við
vorum að setja hana upp í Grófinni
fann maður hvað það er mikill
áhugi á Guðrúnu.“
Potter og Andrés önd
Þegar kemur að unglingabókum er
myndasaga í efsta sæti, en Harry
Potter og viskusteinninn er í öðru
sæti og ekki munar miklu á þeim.
Segja má að Harry Potter einoki
listanna en fimm bækur í bóka-
flokknum eru á topp 10 listanum.
Japanska manga myndasagan
Fairy tail er gríðarlega vinsæl, þar
er rétt að hafa í huga að þar er um að
ræða mörg eintök úr seríunni – það
er ekki ein og sama bókin sem er svo
oft í útláni, heldur nokkrar bækur í
f lokknum.
Á barnabókalistanum eru Andr-
és önd, Einar Áskell og Kiddi klaufi
hvað vinsælastir. Á bak við Andrés
Önd eru ansi mörg eintök, og Syrpa
2014 nær til tólf eintaka, en þetta
sýnir engu að síður að Andrés og
félagar njóta gríðarlegra vinsælda
hjá yngstu kynslóðinni. „Ég þekki
þetta af eigin raun þar sem ég á einn
svona splunkunýjan lesanda.
Ég næ ekki sambandi við
hann tímunum saman ef
hann er með nefið ofan
í syrpu – fyrir hann eru
syrpurnar töfrahlið inn
í lesturinn og ég þykist
viss um að þær séu það
fyrir f leiri,“ segir
Sunna Dís.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-4
9
A
8
2
3
6
C
-4
8
6
C
2
3
6
C
-4
7
3
0
2
3
6
C
-4
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K