Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 24

Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 24
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@ frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Hera segist afar sátt við að vera flutt hingað til lands. Hér liggja ræturnar. „Ég kom í maí en á undanförnum árum hef ég mikið verið á f lakki á milli Nýja-Sjálands og Íslands,“ segir hún. Hera var á ferð um gullna hringinn með vinafólki frá Nýja-Sjálandi þegar við náðum tali af henni. „Ég hef verið að vinna plötuna mína með Barða Jóhannssyni auk þess sem ég hef unnið með tónlistarmönnum frá Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum. Núna er loksins farið að sjá fyrir endann á þessu verkefni og platan nánast tilbúin. Útgáfudagur er ekki negldur niður en vonandi í lok sumars. Ég er að byrja að túra um landið og fyrstu tónleikarnir verða í Skyrgerðinni í Hveragerði 18. júlí. Þaðan fer ég á Djúpavog og í Neskaupstað en síðan ætla ég að halda áfram í kringum landið,“ segir hún. Öll ellefu lögin á plötunni eru eftir Heru og eru þau flutt á ensku. Á tónleikunum mun hún flytja eitthvað af nýju lögunum í bland við eldri tónlist. „Ég hef unnið með mörgum frábærum listamönnum að þessari plötu. Svo er Barði alveg yndislegur en hann útsetur plötuna. Þetta er fyrsta platan mín í rúm átta ár.“ Á flakki um heiminn Hera hefur verið mikið á f lakki um heiminn að undanförnum árum. Hún hefur starfað með ýmsum þekktum tónlistar- mönnum á Nýja-Sjálandi, séð um undirbúning og skipulagningu tónleikaferða og tónleikahátíða. Hún hefur sömuleiðis starfað sem umboðsmaður og skipuleggjandi. Unnið með fjöllistamönnum í Ástralíu og fór með þeim til Filippseyja en heimildarmynd var gerð um það ferðalag. Þá hefur hún spilað á Balí og komið fram í New York. Hera kom fram í dúett á Airwaves árið 2014. „Ég hef unnið við fjöldann allan af tónlistartengdum verkefnum auk þess að kenna lagasmíðar. Það er alltaf nóg að gera hjá mér. Nú hlakka ég mest til að kynna nýju plötuna og halda tónleika fyrir Íslendinga. Ég verð ein til að byrja með en þegar platan kemur út fæ ég fleiri í lið með mér,“ segir hún. „Annars finnst mér ekkert eins skemmtilegt og að ferðast um og spila.“ Hera segir að lögin á nýju plötunni hafi nýtt sánd miðað við fyrri lög hennar. „Þetta er nýr hljóð- heimur sem lögin eru sett í og ég hef aldrei áður tekið jafn langan tíma í vinnslu. Ég mun kynna plötuna seinna á Nýja-Sjálandi og í öðrum löndum. Ég hlakka mikið til að ferðast um fallega Ísland á næstu vikum. Íslensk náttúra gefur manni innblástur og það verður gaman að koma á nýja staði. Hér er ótrúlega mikill sköpunarkraftur og orka í fólkinu. Það er aðeins meiri kyrrð á Nýja-Sjálandi en hér,“ segir hún. Lögin á nýju plötunni eru persónuleg og Hera segist aldrei áður hafa gefið svona mikið af sér. Eftir að hafa búið í 25 ár á Nýja-Sjálandi er Hera nú flutt heim. Hera hefur verið í tónlist frá unglingsárum. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Alltaf útlendingur „Það er annars alveg sama hvar ég er í heiminum, ég er alltaf útlend- ingur. Hér er ég alltaf stelpan frá Nýja-Sjálandi en þar er ég alltaf Íslendingurinn,“ útskýrir Hera og bendir á að Nýsjálendingar séu mun rólegra fólk en Íslendingar. Hera fæddist á Íslandi árið 1983 en árið 1991 ákvað fjölskyldan að fara til Nýja-Sjálands í tíu mánaða frí. „Við fluttum alfarin árið 1994 og okkur hefur líkað vel þar. Reyndar varð gríðarlegur jarðskjálfti þar fyrir átta árum og enn er verið að byggja borgina eftir þær hamfarir. Annars er margt mjög líkt á Íslandi og Nýja-Sjálandi, landslagið og þetta dramatíska að búa á eyju en það magnar sköpunarkraftinn í fólkinu. Öllum sem hingað koma frá Nýja-Sjálandi líður eins og þeir séu heima. Ég á stóra fjölskyldu hér, frænkur og frændur,“ segir Hera en þess má til gamans geta að það tekur 29 klukkustundir að ferðast til Nýja-Sjálands. Þegar Hera kom heim í maí fór hún fyrst í gegnum Singapúr og síðan London til að komast hingað. Herasing á Instagram Hera ætlar að setja myndbönd á Instagram-síðu sína og bendir fólki á að fylgja sér þar undir instagram.com/herasings. „Þegar ég var fjórtán ára var stúlka sem var að setja upp heimasíður sem merkti mig alltaf sem Hera Sings og það festist við mig,“ útskýrir hún. Hera lærði fyrst á klassískan gítar sem barn og hélt áfram námi á Nýja-Sjálandi hjá djassgítar- leikara. Hún var aðeins sextán ára þegar hún byrjaði að koma fram opinberlega. „Nýja platan mín verður númer tíu en er samt númer eitt. Ég hef gefið út þó nokkuð en aldrei gert plötu á þennan hátt áður. Mér finnst hún alveg einstök enda mikil vinna sem liggur að baki. Ég er rosalega ánægð með útkomuna og Barði er snillingur. Á plötunni er strengja- sveit en sá hluti var tekinn upp í Bandaríkjunum. Einnig eru þrír gítarleikarar frá Nýja-Sjálandi og bakraddir þaðan auk píanóleik- ara. Platan er tekin upp á fimm stöðum í heiminum og sett saman í Bretlandi. Það er allt hægt í dag,“ segir hún. „Ég er líka tilbúin með myndband.“ Persónuleg lög Þegar Hera er spurð hvort lögin fjalli um eitthvað sérstakt, svarar hún því játandi. „Undanfarin ár hafa verið tími breytinga hjá mér. Lífið hefur snúist í að minnsta kosti fjóra hringi. Margt hefur breyst og lögin eru persónuleg. Ég hef aldrei áður gefið svona mikið af mér í lögin. Það verður auðvelt að lesa í þau,“ segir hún. „Allt sem skiptir máli hjá mér er að lifa í núinu, ekki hafa áhyggjur af fortíðinni eða framtíðinni. Við erum hérna – núna,“ ítrekar hún. „Ég er mjög hamingjusöm og þykir of boðslega vænt um að fá að ferðast um Ísland, syngja og segja sögur. Það veitir manni hlýju í magann,“ segir Hera. Undanfarin ár hafa verið tími breytinga hjá mér. Lífið hefur snúist í að minnsta kosti fjóra hringi. Margt hefur breyst og lögin eru persónuleg. Ég hef aldrei áður gefið svona mikið af mér í lögin. Hera Hjartardóttir Framhald af forsíðu ➛ EKKERT BRUDL Senseo Switch K affivél Kaupauki Gevalia 500 g + Senseo Strong 16 stk. kr.13.900 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -3 5 E 8 2 3 6 C -3 4 A C 2 3 6 C -3 3 7 0 2 3 6 C -3 2 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.