Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 31
Vélvirki / Járnsmiður
Ný tækni - Ný tækifæri
Hafnareyri ehf. óskar eftir að ráða vélvirkja eða járnsmið
til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins. Um er að ræða
fjölbreytt störf í öflugum hópi starfsmanna sem vinnur m.a.
við tæki, eftirlit, viðhald, þróun og endurbætur.
Við leitum að starfsmanni:
• Sem getur unnið sjálfstætt og með lausnamiðaða
hugsun.
• Með áhuga á tækni og nýjungum.
• Með menntun, reynslu eða í námi sem nýtist í starfi.
• Sem er stundvís og með góða samskiptahæfileika.
Hafnareyri býður upp á margbreytileg störf og fjölbreytt
verkefni þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna
gegnir lykilhlutverki. Framtíð okkar byggist á framúrskar-
andi starfsfólki sem skapar öruggan og eftirsóttan vinnu-
stað. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Trausti Hjaltason, framkvæmda-
stjóri í síma 488 8000 eða á netfangið trausti@vsv.is.
Umsókn ásamt ferilskrá skal skilað með tölvupósti á
netfangið: trausti@vsv.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí nk.
Hafnareyri ehf. er alhliða þjónustufyrirtæki við sjávarútveg sem rekur
frystigeymslu, ísframleiðslu, löndunarþjónustu og þjónustuverkstæði.
Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 45 starfsmenn. Hafnareyri ehf. er
dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum.
Hafnareyri ehf.
Hafnargötu 2, 900 Vestmannaeyjum
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Félagið Geðhjálp var stofnað 9. október 1979
og er baráttu- og hagsmunasamtök einstaklinga
sem glíma við geðheilbrigðisvandamál,
aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig
málaflokkinn varða.
Tilgangur félagsins er að vinna að
geðheilbrigðismálum með valdeflingu og með
bættan hag barna og fullorðinna sem eiga við
geðheilbrigðisvandamál að stríða að leiðarljósi.
Félagið vinnur að tilgangi sínum meðal annars
með því að sinna hagsmunagæslu, að standa
vörð um mannréttindi og eflingu samtakamáttar.
Gildi félagsins eru:
Hugrekki - Mannvirðing - Samhygð.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á
www.gedhjalp.is
Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225.
Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá
og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Gætt er trúnaðar varðandi fyrirspurnir
og umsóknir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Áhugi á geðheilbrigðismálum
• Þekking á stjórnsýslu og starfsemi hins
opinbera
• Færni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti sem og
gott vald á ensku
• Reynsla af stefnumótun, áætlanagerð og
verkefnastjórnun æskileg
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Ábyrgðarsvið:
• Daglegur rekstur og umsjón með starfi félagsins
• Talsmaður félagsins, ásamt stjórn á opinberum
vettvangi
• Þátttaka í nefndum og hópum fyrir hönd
félagsins
• Fjáröflun og áætlanagerð
Félagið Geðhjálp óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn félagsins. Starfshlutfall er 100%.
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Lögfræðingur á sviði
upplýsingaréttar
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings á
skrifstofu löggjafarmála til að gegna starfi ritara úrskurðarnefndar
um upplýsingamál.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ritaraþjónusta úrskurðarnefndar um upplýsingamál, þ.m.t.
samnings draga að úrskurðum í kærumálum, umsjón með málaskrá
nefndarinnar, störfum nema og verktaka fyrir nefndina, samskipti
við málsaðila og opinbera aðila sem í hlut eiga. Stefnumótun
á sviði upplýsingaréttar og stuðningur við stefnumótun á
sviði stjórnsýsluréttar. Gerð árlegrar skýrslu um framkvæmd
upplýsingalaga og stuðningur við aukna birtingu upplýsinga
að frumkvæði stjórnvalda. Önnur verkefni á málefnasviðum
skrifstofunnar samkvæmt ákvörðun skrifstofustjóra hverju sinni.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Einstaklingar
eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 29. júlí 2019.
Nánari upplýsingar um starfið
má finna á Starfatorgi og
heimasíðu Capacent.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 L AU G A R DAG U R 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9Atvinnuauglýsingar Sölufulltrúar Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625
Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
Job.is
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
C
-7
1
2
8
2
3
6
C
-6
F
E
C
2
3
6
C
-6
E
B
0
2
3
6
C
-6
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K