Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 32
hagvangur.is Upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. FÉLAGSMÁLASTJÓRI Félagsþjónusta Stranda- og Reykhóla auglýsa lausa til umsóknar stöðu félagsmálastjóra frá 1. september 2019. Starfið Félagsmálastjóri hefur umsjón með framkvæmd stefnumörkunar í þeim málum sem heyra undir hans málaflokk og eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða um félagsþjónustu. Hann situr í verkefnahópi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, hefur yfirumsjón með barnaverndar- málum samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 og sér um eftirfylgd og ráðgjöf samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálastjóri vinnur náið með sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra, hefur yfirumsjón með fundum nefndarinnar auk þess að sitja í þverfaglegum teymum og ráðum. Félagsmálastjóri ber ábyrgð á rekstri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, gerð fjárhagsáætlana auk annarra tilfallandi verkefna sem heyra undir hans fagsvið. Starfið kallar því á talsverða teymisvinnu og samskipti við fagfólk og aðra á svæðinu auk sjálfstæðra vinnubragða. Helstu hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg • Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærileg störf mikilvæg • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Leitað er eftir einstaklingi sem hefur vilja og getu til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Starfið krefst ferðalaga um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf og bíl til umráða. Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps var stofnuð 1. febrúar 2011. Fjögur sveitarfélög sameinast um félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur. Félagsmálastjóri hefur aðsetur á Hólmavík en hefur auk þess haft fasta viðveru á Reykhólum einn dag í viku. Sex málaflokkar heyra undir félagsmálastjóra en þeir eru: Barnavernd • Félagsleg heimaþjónusta • Félagsleg ráðgjöf Fjárhagsaðstoð • Málefni aldraðra • Málefni fatlaðra Viltu taka þátt í að breyta ímynd Borgarbókasafnsins? Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur- spegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni. Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra kynningar- og markaðsmála hjá Borgarbókasafninu. Borgarbókasafnið hefur markað sér skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn og miklar breytingar eru í farvatninu hvað varðar starfsemi, ímynd og miðlun bókmennta og allra þeirra fjölbreyttu viðburða sem boðið er upp á. Lögð er áhersla á alþýðumenningu, barnamenningu og fjölmenningu, með samveru, upplifun, miðlun og menningarlæsi að leiðarljósi. Verkefnastjóri heyrir undir fræðslu- og miðlunardeild og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins og hefur frumkvæði að og umsjón með verkefnum á sviði kynningar- og markaðsmála, stefnumótun, skipulagningu og hugmynda- vinnu og sinnir þjónustu við notendur Borgarbókasafnsins. Verkefnastjóri tekur virkan þátt í framkvæmd og þróun verkefna er tengjast stefnumótun Borgarbókasafnsins og því breytingaferli sem almenningsbókasöfn ganga nú í gegnum. Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 16. september n.k. Upplýsingar um starfið gefur Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri fræðslu og miðlunar, gudrun.dis.jonatansdottir@ reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hæfniskröfur - háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi - þekking og reynsla af kynningar- og markaðsstörfum á sviði menningarmála, reynsla á sviði fjölmiðlunar kostur en ekki skilyrði - skapandi hugsun sem sjáist í öllu starfi - frumkvæði og geta til að fylgja hugmyndum og verk- efnum eftir - mikil og góð hæfni í mannlegum samskiptum - mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á nýmiðlun - þekking og reynsla af myndatökum, gerð myndbanda og myndvinnslu kostur en ekki skilyrði. - framúrskarandi íslenskukunnátta, góð enskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti / kunnátta í fleiri tungu- málum kostur en ekki skilyrði - geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum í einu - mjög góðir skipulagshæfileikar og fagmennska í vinnu- brögðum Nánari upplýsingar um helstu verkefni og ábyrgð er að finna á vef Reykjavíkurborgar. 2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -7 6 1 8 2 3 6 C -7 4 D C 2 3 6 C -7 3 A 0 2 3 6 C -7 2 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.