Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 32
hagvangur.is
Upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
FÉLAGSMÁLASTJÓRI
Félagsþjónusta Stranda- og Reykhóla auglýsa lausa til umsóknar stöðu félagsmálastjóra frá 1. september 2019.
Starfið
Félagsmálastjóri hefur umsjón með framkvæmd
stefnumörkunar í þeim málum sem heyra undir hans
málaflokk og eftirlit með framkvæmd samninga, laga
og reglugerða um félagsþjónustu. Hann situr í
verkefnahópi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni
fatlaðs fólks, hefur yfirumsjón með barnaverndar-
málum samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002
og sér um eftirfylgd og ráðgjöf samkvæmt lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Félagsmálastjóri vinnur náið með sameiginlegri
velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra, hefur
yfirumsjón með fundum nefndarinnar auk þess að
sitja í þverfaglegum teymum og ráðum.
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á rekstri Félagsþjónustu
Stranda og Reykhólahrepps, gerð fjárhagsáætlana
auk annarra tilfallandi verkefna sem heyra undir hans
fagsvið. Starfið kallar því á talsverða teymisvinnu og
samskipti við fagfólk og aðra á svæðinu auk
sjálfstæðra vinnubragða.
Helstu hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
• Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni
fatlaðra eða sambærileg störf mikilvæg
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og
skipulagshæfileika
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur vilja og getu
til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun á
félagsþjónustu á svæðinu. Starfið krefst ferðalaga
um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf
og bíl til umráða.
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps var stofnuð 1. febrúar 2011. Fjögur sveitarfélög
sameinast um félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og
Reykhólahreppur. Félagsmálastjóri hefur aðsetur á Hólmavík en hefur auk þess haft fasta viðveru á
Reykhólum einn dag í viku. Sex málaflokkar heyra undir félagsmálastjóra en þeir eru:
Barnavernd • Félagsleg heimaþjónusta • Félagsleg ráðgjöf
Fjárhagsaðstoð • Málefni aldraðra • Málefni fatlaðra
Viltu taka þátt í að breyta ímynd Borgarbókasafnsins?
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur-
spegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og
hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra kynningar- og markaðsmála hjá Borgarbókasafninu.
Borgarbókasafnið hefur markað sér skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn og miklar breytingar eru í farvatninu hvað
varðar starfsemi, ímynd og miðlun bókmennta og allra þeirra fjölbreyttu viðburða sem boðið er upp á. Lögð er áhersla á
alþýðumenningu, barnamenningu og fjölmenningu, með samveru, upplifun, miðlun og menningarlæsi að leiðarljósi.
Verkefnastjóri heyrir undir fræðslu- og miðlunardeild og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins og hefur
frumkvæði að og umsjón með verkefnum á sviði kynningar- og markaðsmála, stefnumótun, skipulagningu og hugmynda-
vinnu og sinnir þjónustu við notendur Borgarbókasafnsins.
Verkefnastjóri tekur virkan þátt í framkvæmd og þróun verkefna er tengjast stefnumótun Borgarbókasafnsins og því
breytingaferli sem almenningsbókasöfn ganga nú í gegnum.
Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf 16. september n.k.
Upplýsingar um starfið gefur Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri fræðslu og miðlunar, gudrun.dis.jonatansdottir@
reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf.
Hæfniskröfur
- háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi
- þekking og reynsla af kynningar- og markaðsstörfum á
sviði menningarmála, reynsla á sviði fjölmiðlunar kostur
en ekki skilyrði
- skapandi hugsun sem sjáist í öllu starfi
- frumkvæði og geta til að fylgja hugmyndum og verk-
efnum eftir
- mikil og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á nýmiðlun
- þekking og reynsla af myndatökum, gerð myndbanda og
myndvinnslu kostur en ekki skilyrði.
- framúrskarandi íslenskukunnátta, góð enskukunnátta og
geta til að tjá sig í ræðu og riti / kunnátta í fleiri tungu-
málum kostur en ekki skilyrði
- geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum
í einu
- mjög góðir skipulagshæfileikar og fagmennska í vinnu-
brögðum
Nánari upplýsingar um helstu verkefni og ábyrgð er að
finna á vef Reykjavíkurborgar.
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-7
6
1
8
2
3
6
C
-7
4
D
C
2
3
6
C
-7
3
A
0
2
3
6
C
-7
2
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K