Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 46
 8 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERÐIR Plovdiv er talin vera elsta borg Evrópu. NORDICPHOTOS/GETTY Búlgaría er æ vinsælli ferða­mannastaður. Þar eru sól­ríkar strendur, ódýr matur og drykkur, falleg menning og fornar byggingar til að skoða. Búlgaríska borgin Plovdiv er talin vera ein elsta borg Evrópu en hún er meira en 6.000 ára gömul. Búlgaría er kallað Land rósanna þar sem meirihluti framleiðslu rósaolíu í heiminum kemur þaðan. Fyrir utan það er landið stórtækt í fram­ leiðslu á lavenderolíu sem fælir burt lúsmý. Fyrir þá sem þekkja lítið til Búlgaríu lýsir bókin The Shadow­ land eftir bandaríska höfundinn Elizabeth Kosdova landslaginu og menningunni vel. Bókin fjallar um unga bandaríska konu að nafni Alexandra Boyd, sem flytur til Búlgaríu til að kenna ensku. Fyrir slysni endar hún með duftker í eigu gamalla hjóna sem inniheldur ösku Stoyan Lazarov. Alexandra reynir að hafa uppi á hjónunum og kynn­ ist um leið sögu mannsins sem er bæði sorgleg og falleg. Sagan lýsir vel margbreytilegri stemningunni í Búlgaríu á 20. öldinni í tengslum við aldagamla sögu landsins, stalínismann og hvernig landið rís hratt úr ösku Sovétríkjanna sálugu. Skuggalandið Búlgaría Undirbúningur fyrir ferðalög mikilvægur. NORDICPHOTOS/GETTY Þegar ferðast er til útlanda er ýmislegt sem hafa ber í huga. Oft er nóg að taka bara með sér litla tösku og vegabréfið, og ekki gleyma evrópska sjúkratryggingar­ kortinu, það borgar sig þó stoppið sé stutt. En þegar lengra er haldið þarf að hugsa að fleiri atriðum. Lönd utan Schengen krefjast f lest vegabréfsáritunar þegar ferðast er frá Íslandi. Oft getur afgreiðsla vegabréfsáritana tekið tíma og því borgar sig að sækja um tímanlega. Í sumum löndum eru landlægir sjúk­ dómar sem finnast ekki á Íslandi. Þegar ferðast er á fjarlægar slóðir borgar sig að athuga hvort og hvaða bólusetningar er nauðsynlegt hafa til að fyrirbyggja smit. Eins borgar sig að vera vel sjúkratryggður, sérstaklega ef ferðast er þangað sem evr­ ópska sjúkratryggingakortið gildir ekki. Ef planið er að keyra er líka ráð að athuga hvort íslenska ökuskírteinið dugi ekki örugglega til. En hægt er að sækja um alþjóðlegt ökuskírteini hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Þó að oft sé hægt að bjarga sér bara með greiðslukorti er ekki víst að það sé jafn auðvelt alls staðar. Það borgar sig því að hafa alltaf með sér einhvern gjaldeyri í seðlum. Svo er bara að muna eftir góða skapinu. Góða ferð! Góð ráð fyrir ferðalagið Sólarvörnin er gríðarlega mikilvæg fyrir húðina. Ef þú ert á leiðinni í sólarfrí í útlöndum máttu ekki gleyma sólarvörninni. Það er ekki hægt að segja það nógu oft hversu mikilvæg sólarvörnin er, hvað þá fyrir okkur Íslendingana. Það hefur verið lengi í tísku að vera sólbrúnn. Þegar hugsað er einungis um sólbrúnku en ekki húðina getur skaðinn orðið mikill. Sólarvarnir koma ekki í veg fyrir að húðin taki lit, sólarvarnir verja húðina fyrir skaðlegum geislum sólarinnar sem brenna á okkur húðina, skaða frumur húðarinnar sem sjá okkur fyrir teygjanleika og flýtir þannig fyrir öldrun húðar­ innar. Með því að nota sólarvörn endist liturinn lengur og er fallegri á húðinni. SPF­stuðull á sólarvörn segir ekki til um hversu mikla vörn þú færð, heldur hversu lengi vörnin er virk. Nota má sömu sólarvörnina á andlitið og líkamann, en stundum er venjuleg sólarvörn of feit fyrir andlitið, sérstaklega fyrir þá sem eru með rósroða eða tilhneigingu til að fá bólur. Þá er oft gott að nota sólarvörn án olíu á andlitið. Ekki gleyma sólarvörninni 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 C -7 B 0 8 2 3 6 C -7 9 C C 2 3 6 C -7 8 9 0 2 3 6 C -7 7 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.