Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 48
Hvort langar þig frekar í vöfflur með karamellueplum eða einfalda eplaköku með
rjóma? Hér eru uppskriftir sem vert
er að prófa með kaffinu.
Vöfflur með karamellueplum
Vöfflur er svakalega góðar og það
má líka borða þær með alls konar
ávöxtum eða kjöti eftir því hvort
þær eru bakaðar fyrir kaffitíma
eða kvöldmatinn. Belgískar vöfflur
eru gjarnan bakaðar sem meðlæti
með kjöti en þessar venjulegu eru
frekar með sultu, rjóma, ís eða
ávöxtum.
Hér er frábær uppskrift að
vöfflum með karamellueplum og
mascarpone. Uppskriftin er miðuð
við fjóra.
Vöfflur
4 dl hveiti
2 msk. sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
4 dl mjólk
5 egg
100 g brætt smjör
Ein uppskrift gefur tíu vöfflur.
Setjið öll þurrefnin í skál og bætið
síðan mjólkinni saman við hægt
og rólega á meðan hrært er. Þá eru
eggin sett út í og loks smjörið. Þegar
blandan er kekkjalaus og fín er hún
látin standa í hálfa klukkustund. Ef
blandan er of þykk má blanda meiri
mjólk saman við.
Karamelluepli
2 msk. smjör til steikingar
3 epli
200 g sykur
½ dl vatn
50 g smjör
1 ½ dl rjómi
½ tsk. salt
Mascarpone-krem
Fræ úr ½ vanillustöng
3 dl rjómi
90 g flórsykur
1 dós mascarpone-ostur
50 g hvítt súkkulaði
Ber
40 g ristaðar heslihnetur
Skrælið eplin og skerið þau í bita.
Bræðið smjör á pönnu og setjið
eplabitana út á. Setjið síðan á disk á
meðan karamellan er búin til.
Setjið sykur og vatn á pönnu.
Bræðið sykurinn og gætið að því
að hann brenni ekki. Setjið smjör
saman við, síðan rjóma og salt.
Lækkið hitann og setjið eplabitana
út í karamelluna. Geymið þar til
vöfflurnar eru klárar.
Setjið hvíta súkkulaðið á bökunar-
pappír á ofnskúffu. Bakið í 150°C
heitum ofni í 10 mínútur. Kælið
súkkulaðið og brjótið það síðan
í litla bita. Blandið því saman við
fersk ber og grófhakkaðar hnet-
urnar.
Hrærið vanillufræin saman við
þeyttan rjóma og flórsykur. Hrærið
mascarpone-ostinn í annarri
skál þar til hann verður mjúkur.
Bætið rjómablöndunni saman við.
Geymið í ísskáp þar til verður notað.
Berið fram heita vöfflu með kara-
mellueplum, mascarpone-kremi og
súkkulaði-og hnetumulningnum.
Einföld eplakaka
Þessi kaka er einstaklega góð með
kaffinu og það er mjög einfalt að
útbúa hana. Epla- og kanilbragðið
passar vel saman. Það er hægt að
breyta kökunni og setja nokkra litla
karamellubita með eplunum en þá
fæst epla- og karamellubragð. Einn-
ig er hægt að taka nokkrar gerðir
af hnetum og möndlum, hakka og
setja saman við deigið. Þá er enn ein
útfærslan að setja smá marsipan
með eplunum. Þannig má breyta
þessari köku eftir því hvernig stuði
maður er í. Hér er uppskrift að ein-
földustu gerðinni
100 g smjör
100 g sykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
150 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. kanill
3 epli
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjör
og sykur svo blandan verði létt og
ljós. Bætið eggjum saman við einu í
einu og vanilludropum. Því næst er
hveiti, lyftiduft og kanill sett saman
við.
Skrælið eplin og skerið þau í bita.
Hrærið síðan eplabitunum saman
við deigið.
Setjið í hringlaga form sem hefur
verið smurt og dreifið kanilsykri
yfir. Kakan er bökuð í 40 mínútur.
Berið fram volga með þeyttum
rjóma eða ís.
Gott með sumarkaffinu
Það er alltaf ástæða til að fá sér eitthvað gott með kaffinu. Ekki er verra ef hægt er að
drekka það utandyra í góðu veðri. Hér eru tvær uppskriftir en báðar innihalda þær epli.
Það er hægt að borða vöfflur með alls kyns gúmmelaði.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
15. - 20. JÚLÍ Í FAXAFENI
GÁMASALA!
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
GÖTUHJÓL · FJALLAHJÓL · BARNAH
JÓL
HJÓLAÐU Í
NÝTT
HJÓL! VAXTALAUS
KORTALÁN*
*VAXTALAUS KORTALÁN TIL ALLT AÐ 6 MÁNAÐA - LÁNTÖKUGJALD ER INNHEIMT VEGNA KORTALÁNA
FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
C
-6
7
4
8
2
3
6
C
-6
6
0
C
2
3
6
C
-6
4
D
0
2
3
6
C
-6
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K