Fréttablaðið - 13.07.2019, Qupperneq 54
Seglskútan Étoile er stödd í Reykjavíkurhöfn í tilefni af þjóðhátíðardegi Frakka. Áður hafði hún komið við í Vest-mannaeyjum og heldur síðan ferðinni áfram umhverf is
Ísland. Graham Paul, sendiherra
Frakklands á Íslandi, segir hana munu
leggja að landi á Patreksfirði, Akureyri
og á Fáskrúðsfirði þar sem hún verði
á Frönskum dögum 26. og 27. júlí. En
hversu gamalt skip er Étoile? „Hún var
smíðuð árið 1932 og er, eins og systur-
skip hennar, Belle Poule, hin fegursta
endurgerð á gólettunum frá bænum
Paimpol á Bretagne sem allt fram undir
árið 1930 sigldu til þorskveiða á Íslands-
miðum.“
Graham skilgreinir Étoile ekki bara
sem skólaskip heldur einnig hluta af
sagnaarfi Frakklands. „Gólettan er lif-
andi minning um tíma sem nú er löngu
liðinn, þegar franskir sjómenn komu
til þorskveiða við Íslandsstrendur,“
segir hann og minnir á að margir þeirra
hafi ekki átt afturkvæmt til síns heima.
„Þessar Íslandsveiðar hófust strax á 17.
öld en mest kvað að þeim á síðari hluta
19. aldar þegar meira en 200 skútur létu
úr höfn frá bæjum eins og Paimpol og
Gravelines og settu stefnuna á Ísland.
Góletturnar létu einkar vel að stjórn
og héldu sjó í öllum veðrum, enda voru
þær sérstaklega hannaðar fyrir sjólagið
á Norður-Atlantshafi.“
Áratugum saman héldu skúturnar á
þorskvertíðir til Íslands og óhjákvæmi-
legur fylgifiskur veiðiferðanna voru sjó-
slys, sjúkdómar, slysfarir og dauði, að
sögn Grahams. „Elín Pálmadóttir samdi
grundvallarrit um franska sjómenn við
Ísland og telst svo til að 4.000 þeirra
hafi horfið þar. Fjöldinn allur týndist í
hafi en aðrir hlutu leg í íslenskri mold,
til dæmis í kirkjugarðinum við Suður-
götu þar sem 59 óþekktir sjómenn eru
greftraðir.“
Hann getur þess líka að hörmulegt
hlutskipti „Íslendinganna“, eins og
Íslandssjómennirnir hafi verið kallaðir
í heimabyggðum, hafi orðið rithöfund-
inum Pierre Loti að yrkisefni í höfuðriti
hans, „Á Íslandsmiðum“, sem komið
hafi út árið 1886. „Íslensk skáld og lista-
menn fjölluðu líka um þessa sjómenn,
til dæmis Guðmundur Guðmundsson
skólaskáld.“
Golfranska var hrognamál þar sem
saman blandaðist franska, íslenska,
bretónska og f læmska, fræðir sendi-
herrann mig um. „Golfranska er nú
farin veg allrar veraldar en sameigin-
legar minningar okkar geyma enn
djörfung og drengskap Íslendinga sem
komu frönskum skipbrotsmönnum til
bjargar.“ Hann segir „Sjóverkafélagið“ í
Frakklandi og franska ríkið hafa tekið
höndum saman til að bæta aðbúnað
frönsku sjómannanna og sent spítala-
skip til Íslands. „Síðar reistu Frakkar
líka spítala í Reykjavík, á Fáskrúðsfirði
og í Vestmannaeyjum. Minningin um
góletturnar og hvítu seglin á miðunum
máist út en þessar byggingar standa enn
og eru minnisvarðar um viðveru Frakka
á Íslandi, rétt eins og Höfði, það merka
hús, sem var reist að frumkvæði fyrsta
franska konsúlsins á Íslandi, Brillouins,
sem var sendur hingað til að þjónusta
franskan sjávarútveg.“
Á okkar dögum er það samt f leira
en krossar í grafreitum, hús og götu-
heiti sem halda á lofti minningunni um
Íslandsveiðar Frakka, bendir Graham
á. Hann nefnir sterk tengsl milli bæj-
anna Gravelines og Fáskrúðsfjarðar og
Paimpol og Grundarfjarðar sem hafa í
hávegum minninguna um Íslandssjó-
mennina. „Djúpur og gagnkvæmur
áhugi sameinar Frakka og Íslendinga,
sem finna án afláts eitthvað til að hríf-
ast af og meta í fari hvorir annarra,“ segir
hann og getur þess að fróðlegt yfirlit
yfir samskipti þjóðanna í tímans rás sé
aðgengilegt í pdf-formi á síðunni http://
kistill.eu/Monographie_2.pdf.
gun@frettabladid.is
Lifandi minning um tíma
sem nú er löngu liðinn
Gólettan Étoile setur svip á gömlu höfnina í Reykjavík á morgun, 14. júlí, þjóðhá-
tíðardag Frakka. Étoile er glæsileg seglskúta sem franski sjóherinn notar sem skóla-
skip. Graham Paul, sendiherra Frakklands á Íslandi, tengir hana líka sagnaarfinum.
„Djúpur og gagnkvæmur áhugi sameinar Frakka og Íslendinga,“ segir Graham Paul sendiherra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Golfranska er nú farin veg
allrar veraldar en sameigin-
legar minningar okkar geyma
enn djörfung og drengskap
Íslendinga sem komu frönskum
skipbrotsmönnum til bjargar.Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag
útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um
það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing
þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið
og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkæra eiginkona mín, móðir, dóttir
og tengdadóttir,
Birna Sif Bjarnadóttir
skólastjóri Ölduselsskóla,
varð bráðkvödd á heimili sínu
fimmtudaginn 27. júní.
Útförin verður frá Grafarvogskirkju 15. júlí
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Bjarki Þórarinsson
Ronja Ruth
Birgitta Sigríður
Birta Dís
Sigríður Ólafsdóttir Bjarni Þ. Bjarnason
Birgitta Guðnadóttir Þórarinn Þórarinsson
og systkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
sr. Ólöf Ólafsdóttir
Efstasundi 95,
Reykjavík,
lést 10. júlí. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. júlí kl. 15.
Ólafur Bergmann Svavarsson Esther A. Óttarsdóttir
Stefán Sturla Svavarsson Inga Ingólfsdóttir
Pétur Gautur Svavarsson Berglind Guðmundsdóttir
og ömmubörnin.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Rósa Einarsdóttir
Melteigi 19, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 2. júlí. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 17. júlí kl. 13.
Gestína Sigurðardóttir
Kristín Rósa Sigurðardóttir Þórður K. Magnússon
Bjarni Sigurðsson A. Guðríður Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
C
-6
2
5
8
2
3
6
C
-6
1
1
C
2
3
6
C
-5
F
E
0
2
3
6
C
-5
E
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K