Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 58
Elmar Karl Yngvason er þriggja ára
og er að leika sér úti í garði þegar ég
hitti hann.
Hann er með fullan lófa af ána-
möðkum sem hann sýnir mér.
Hvað ætlarðu að gera við þessa
orma? Ég ætla að selja þá.
Hverjir kaupa orma? Ég kaupi orma.
Nú, keyptirðu þessa? Kostuðu þeir
mikla peninga? Já, ég á fullt af pen-
ingum.
Áttu einhver önnur dýr en ána-
maðka? Já, ég á kisu og ljón og tígris-
dýr.
Nú, langar þig í f leiri? Já, gíraffa.
Hvar ætlarðu að hafa hann? Bara
hér í mínum garði. – Ég er búinn
að missa tönn, segir hann og sýnir
skarðið.
Ertu sterkur? Já, ég er sterkur.
En hvernig gengur þér að klifra? Vel,
ég hef klifrað í trjánum hérna og
líka á pabba – en svo datt ég, bætir
hann við og hlær.
Hver er besti vinur þinn? Björgvin.
Hann er í skóla. Ég er líka stundum í
skóla og stundum hoppa ég svona …
(hopp, hopp, hopp)
Hver ræður mestu á heimilinu þínu?
Pabbi – og líka ég.
Áttu þér uppáhaldsleikfang? Það
er bíll. Svo eigum við líka alvörubíl.
Finnst þér gaman að fara í ferðalög?
Já, ég hef farið í svona langt ferðalag
(breiðir út faðminn).
Hvað sástu í þessu ferðalagi? Dýr. Ég
sá hest með svona stjörnu á bakinu.
Hefurðu farið á bak hesti? Já, með
stjörnu. Ég var með lappirnar svona
(glennir sig) og hélt í bandið og svo
fór hesturinn af stað. Mig langar að
eiga hest.
En hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Mig langar að verða
málari og þegar ég er búinn að vera
málari þá verð ég bakari og svo verð
ég bóndamaður og boltamaður og
búðarmaður og kaupmaður – og
hestur.
Málari, bakari,
bóndamaður …
– og hestur
„Pabbi ræður mestu á heimilinu – og ég,“ segir Elmar Karl Yngvason.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÁ, MEÐ STJÖRNU. ÉG
VAR MEÐ LAPPIRNAR
SVONA OG HÉLT Í BANDIÐ OG
SVO FÓR HESTURINN AF STAÐ.
MIG LANGAR AÐ EIGA HEST.Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Mér finnst
alls konar skáldsögur skemmti-
legar.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Ég las Freyju
sögu – Múrinn eftir Sif Sigmars-
dóttur. Hún er um stelpu sem
býr í borg á Íslandi. Sjórinn
hækkar og allir þurfa að flýja
að miðju Íslands. Stelpan flytur
til Vanheima og þar breytist líf
hennar.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Ég ætla að lesa fram-
haldið af Múrnum – hún heitir
Djásn.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Hún yrði um
hlýnun jarðar og ég myndi
skrifa hana til að vekja athygli á
hlýnun jarðar svo fólk vakni til
vitundar.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Barbapabbabækurnar voru
rosalega mikið í uppáhaldi hjá
mér.
Lestrarhestur vikunnar: Esja Sveinbjörnsdóttir
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið efna til sumarlesturs
fyrir krakka. Verið velkomin í bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í
lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf
og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Esja, 12 ára, var ánægð að fá bókina Kennarinn sem hvarf.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
stundum en aðallega í skóla-
bókasafnið.
Í hvaða skóla ertu? Vogaskóla.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Dans, förðun og lestur.
„Of sein, of sein,“ sagði
Kata pirruð og hermdi e ir
áhyggjurödd Konráðs. „Ég
er búin að heyra þetta væl
alveg nógu o og nenni
ekki að heyra það einu
sinni í viðbót,“ bætti hún
við. „En okkur liggur á,“
sagði Konráð biðjandi
og bar sig aumlega. „Það
gerir ekkert til að vera of
sein,“ sagði Kata. „ En það
er gaman að reyna að
komast í gegnum
völundarhús,“ bætti
hún við og bretti upp
ermarnar. „Koma svo,
inn með ykkur og
reynið nú að týnast
ekki. Ég nn réttu
leiðina, sanniði
bara til,“
sagði Kata
roggin um leið
og hún arkaði inn í dimm
göng völundarhússins.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
361
Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið??
?
?
?
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
C
-4
9
A
8
2
3
6
C
-4
8
6
C
2
3
6
C
-4
7
3
0
2
3
6
C
-4
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K