Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 66
 Í VINNUSMIÐJ- UNNI KÖFUM VIÐ SVOLÍTIÐ OFAN Í HVAÐ ÞAÐ ER SEM VIÐ VILJUM SKILJA EFTIR OKKUR. Stútfull dagskrá af flottu efni Björt Þorfinnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastýra hátíðarinnar. „Hátíðin verður haldin í tuttugasta skipti í ár, en við höldum upp á afmælið á næsta ári. Við teljum þetta svona eins og í mannárum. Fyrsta hátíð var númer núll. Hún segir hátíðina núna vera upphitun fyrir afmælið og dagskráin því brjálæðislega flott að þessu sinni Skiptinemar á vegum Erasmus Plús eru venju sam­ kvæmt á Seyðisfirði í sumar. „Við höfum verið í því samstarfsverkefni í tólf ár. Þannig að við fáum á hverja hátíð ungmenni víðs vegar að úr Evrópu sem taka þátt í vinnusmiðju sem við stöndum fyrir. Framtíðarsýn er þemað á þessu ári. Í vinnusmiðjunni köfum við svolítið ofan í hvað það er sem við viljum skilja eftir okkur og hvernig framtíðin mun horfa til baka á okkar tíma,“ segir Björt. Skiptinemarnir munu til dæmis taka fyrir umhverf­ ismál, nánd, minnihlutahópa, kapítalisma og önnur spennandi viðfangsefni. „Við hefjum í raun hátíðina með sýningaropnun og verðum með opnar vinnustofur alla næstu viku og vinnusmiðjurnar í fullum gangi. En þær eru átta og allar orðnar stútfullar.“ Listakonan Hrafnhildur Arnar­ dóttir, betur þekkt sem Shoplifter, er til að mynda með eina smiðju. Hún sá um framlag Íslendinga á Feneyjatvíæringnum í ár. „Í ár erum við með tónleika báða dagana yfir helgina. Þar koma meðal annars fram Hatari, Mamm­ út, Bríet og GDRN. Stærsta atriðið í ár er Kelsey Lu en hún kemur frá Bandaríkjunum. Svo erum við með eftirpartí í samstarfi við Red Bull en þar koma fram Upsammy frá Hollandi, Bjarki og DJ Dominatr­ icks. Það verður sér svið fyrir það sem verður opnað þegar eftir­ partíið byrjar,“ segir Björt. Þarna verður markaðsstemning á laugardeginum þar sem Þrenna mun bjóða gestum og gangandi upp á grillaðar pylsur. „Þar verða sölubásar og alls konar skemmtilegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna.“ Björt segir f lesta bæjarbúar ánægða með hátíðina þó alltaf geti orðið einhverjir árekstrar. „En við bætum fyrir okkar mistök og höfum alltaf það að leiðarljósi að gera betur.“ Listasmiðjur vikunnar eru svo með sýningu fyrir tón­ leikana á föstudagskvöldinu úti um allan bæ. „Það er nokkurs konar hápunktur hátíðarinnar,“ segir Björt . Björt Sigfinnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastýra hátíðarinnar. MYND/ÓLAFUR DAÐI EGGERTSSON Katarína Mogensen og Ása Dýradóttir spila með hljómsveitinni Mammút á LungA í ár. Margt var um manninn og mikið fjör í fyrra. MYNDIR/HREFNA BJÖRG GYLFADÓTTIR Eiga ómetanlegar minningar frá LungA Ása Dýradóttir hefur oft farið á LungA, bæði til að spila og sýna list. Hún segist eiga frábærar minningar frá hátíðinni og hlakka mikið til að mæta í ár. ,,Við höfum spilað með Mammút nokkrum sinnum á LungA en við Kata höfum líka verið að fara til að sýna list eða vera með gjörninga. Við höfum farið oft á hátíðina en núna er smá tími liðinn síðan síðast. Þess vegna erum við mjög spenntar fyrir hátíðinni í ár,“ segir Ása Dýradóttir, listakona og bassaleikari hljóm­ sveitarinnar Mammút, sem spilar á föstudagskvöldið. „Við fórum fyrst á LungA árið 2008. Það var eigin­ lega óvart. Við vorum með tónleika á Eistnaf lugi og vorum einmitt oft með einhverja gjörninga þar í Stál­ smiðjunni. Þar kynntumst við Helga Péturssyni sem býr á Seyðisfirði. Þannig að við fengum far yfir á Seyðis­ fjörð með honum á mánudeginum, því LungA er alltaf helgina eftir Eistnaflugi.“ Það lá því vel við að koma við á Seyðisfirði á mánu­ deginum til að jafna sig eftir helgina. „Það er svo kósí að fara á Seyðisfjörð. Líka í byrjun vikunnar þegar námskeiðin eru að byrja og allir ótrú­ lega duglegir. Það er einhver stóísk ró sem svífur yfir vötnum þegar maður keyrir niður Fjarðarheiðina.“ Kata og Ása lögðu báðar stund á myndlist við Lista­ háskóla Íslands. „Árið 2011 vorum við með risa gjörning, kveiktum hringlaga bál í fjörunni. Það er einna minnisstæðasta hátíðin fyrir mér, þar brutum við einhvern ís með að tvinna saman listina og tónlistina. Á LungA fetuðum við okkar fyrstu stóru skref sem listamenn. Þannig að upphaf lega komum við inn í LungA meira í gegnum listina en síðar meir til að spila með Mammút. “ Hún segir hátíðina alltaf hafa átt góðan stað í hjarta þeirra og þær eigi margar góð minningar þaðan. „Þetta er fullkominn staður til að stíga sín fyrstu skref og þróa sig sem listamaður. Staður til að kynnast öðrum listamönnum. Svo eru alltaf frábær námskeið þarna, þau líta mjög vel út í ár. Jófríður, Unnsteinn og Logi eru með námskeið í lagasmíðum. Svo er námskeið í spunaleik líka.“ Innt eftir því hvort þær Kata skelli sér ekki á laga­ smíðanámskeiðið, svona verandi í einni stærstu hljóm­ sveit landsins. „Það væri reyndar smá fyndið. Við eitthvað: „Jæja hvernig gerir maður þetta?“ Þau myndu halda að við værum búnar að missa vitið. Eða við færum á nám­ skeiðið og myndum svo alveg breyta okkar tónlist eftir það,“ segir Ása skellihlæjandi en bætir svo við: „Ég mæli alveg hiklaust með því við alla að mæta. Ég veit það er oft smá kostnaður sem fylgir því að fara á svona hátíð en maður mun alltaf eiga svo ótrúlega frábærar og ómetanlegar minningar frá LungA.“ steingerdur@frettabladid.is Brjáluð flottheit á LungA 2019 Listahátíðin LungA verður haldin í tuttug- asta sinn á Seyðisfirði um næstu helgi. Boðið er upp á líflega dagskrá alla vikuna; listasmiðjur, listsýningar og tónleika. 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 C -5 8 7 8 2 3 6 C -5 7 3 C 2 3 6 C -5 6 0 0 2 3 6 C -5 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.