Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 1
1. tbl. Þriðjudagur 25. janúar 1983 5. árgangur
Bæjarblaðið áfram tvisvar í mánuði
Undanfarið hafa margir orðið til
þess að spyrja ritstjórnarmenn
Bæjarblaðsins hvort blaðið væri að
hætta útkomu. Ástæðan fyrir þess-
um spurningum mun vera sú að í
síðustu viku fengu margir af aug-
lýsendum þeim sem auglýst hafa í
Bæjarblaðinu, bréf frá tveimur
ungum og bjartsýnum mönnum,
þar sem boðuð var útkoma nýs
vikulegs fréttablaðs á Akranesi.
Menn töldu sig hafa lesið út úr
orðalagi þessa bréfs þann boð-
skap að Bæjarblaðið væri að
hætta.
Því ertil að svara að Bæjarblaðið
er síður en svo að leggja upp
laupana. Hugmyndir um vikulegt
fréttablað hafa lengi verið draumur
ritstjórnarmanna Bæjarblaðsins en
hingað til hefur okkur ekki tekist að
sjá fjárhagslegan möguleika á því.
Bæjarblaðið hefur hingað til ekki
lofað meiru en það getur staðið við
og þess vegna er engin ævintýra-
áhætta tekin í rekstri blaðsins.
Bæjarblaðið mun á næstunni
koma áfram út tvisvar í mánuði, og
um þessar mundir standa yfir við-
ræður við ákveðinn aðila um hugs-
anlegar breytingar á rekstri, sem
ættu að geta treyst fjárhagsgrund-
völl þess.
Bæjarblaðið hefur átt því láni að
fagna að Akurnesingar hafa tekið
blaðinu vel og verið ritstjórn leið-
beinandi í efnisvali auk þess sem
samskipti blaðsins við auglýsendur
hafa ávallt verið í góðu lagi.. Við
vonum að þessi góða samvinna
við bæjarbúa haldi áfram og þeir
sameinist um að treysta grundvöll
eir>a fréttablaðsins sem hingað til
hefur komið út á Akranesi oftar en
mánaðarlega og algerlega er unn-
ið á Akranesi.
Lítið um slys og óhöpp
þrátt fyrir mikla hálku
á götunum
Þrátt fyrir ófærð og mikla hálku son, Gísla Björnsson og Lárus
undanfarið virðist allt hafa farið Guðjónsson.
stórslysalaust fram héráAkranesi. Þeir félagar sögðu að í nógu
Bæjarblaðið leit við á lögreglustöð- hefði verið að snúast þegar veðrið
inni um síðustu helgi og hitti þar hefði verið sem verst. Síminn var
fyrir lögregluþjónana Rafn Hjartar- rauðglóandi, sögðu þeir og mikið
Strax og byrjaði að hlána mynduðust varasamir skomingar á götun-
um. Hér er veghefill að stöfum á Skagabraut. Mynd: Dúi
8
óskað eftir aðstoð við fólksflutn-
inga vegna veðursins. Þeir sögðu
að björgunarsveit Slysavarnarfé-
lagsins hefði staðið sig frábærlega
í að flytja fólk milli bæjarhluta (
óveðrinu. Til dæmis hefði sveitin
aðstoðað starfsfólk sjúkrahússins
og dvalarheimilisins Höfða við að
komast til og frá vinnu auk þess
sem aðstoðað var við matarflutn-
inga til Höfða.
Við höfðum samband við Þór
Magnússon formann björgunar-
sveitarinnar Hjálþin og spurðum
hann um hlut sveitarinnar í aðstoð
við fólk.
„Við höfðum í nógu að snúast og
í viðbót við það sem þú hefur frá
lögreglunni, þá fluttum við starfs-
menn til vinnu á Grundartanga og
sem dæmi um ófærðina og hríðina
þá tók ein ferð þangað sex tíma en
vanalega er þetta 15 mínútna
akstur. Þá aðstoðuðum við fólk
sem hafði tepst í bílum víða í ná-
grenni Akraness og inná Hvalfjarð-
arströnd, talsvert var um að við
værum beðnir um að svipast um
Krakkarnir hafa tekið snjónum fegins hendi eins og þessi dama sem
baslar upp brekkuna með snjóþotu sína. Mynd: Dúi
eftir fólki sem ekki hafði látið vita af
sér og ættingjar voru farnir að ótt-
ast um. Þá sóttum við skáta sem
voru í útilegu í Skátafelli við Akra-
fjall og svona mætti lengi telja.“
— Er björgunarsveitin nægi-
lega vel útbúin til hjálparstarfa í
svona ófærð?
„Já ég vil meina að við séum nú
vel útbúnir í svona lagað. Sveitin á
góðan bíl sem var í stöðugri notkun
og auk hans vorum við með fjóra
vel útbúna jeppa að láni en þeir
bílar eru í eigu björgunarsveitar-
manna. Hins vegar má segja að
þarna hafi komið í Ijós að ýmsu er
ábótavant í yfirstjórn á svona
dögum ogfólk veitoft ekki hvert það
á að snúa sér ef lögreglan kemst
ekki yfir að veita alla þá aðstoð sem
þörf erfyrir.'1
En snúum okkur þá aftur að lög-
reglunni. Bæjarblaðið innti þá
félaga á lögreglustöðinni eftir því
hvort eitthvað hafði verið um
árekstra og slys af völdum hálku og
ófærðar. — Þeir sögðu að talsvert
hefði verið um smáárekstra þar
sem bílar hefðu runnið saman
vegna mikilla skorninga á götum
bæjarins. Hins vegar hefði ekkert
verið um slys sem rekja mætti til
þess óvanalega ástands hér svo
þeir vissu um.
Full ástæða er til að hvetja fólk til
að fara gætilega við slíkar að-
stæður sem verið hafa hér allt frá
áramótum. Þegar þetta er skrifað
er veður orðið hið besta en við er-
um búin að sjá það undanfarið að
ekki þarf langan tíma til róttækra
breytinga þegar íslenskt vetrar-
veður er annars vegar.
i A M n r n • u a r a r m
I-/ •• Lf U L/ K H b r
372913