Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 2
2 BceJarblodid !C^ .0' Danskar og norskar lv veaasamstæftur veggsamstæður Greiðslukjör 8 jafnar afborganir Fyrsta greiðsla mánuði frá kaupdegi STOFAN BÁRUGÖTU 21 SIMI1970 Fyrsta raðsmíðaða fiskiskipið: Hafnarey SU 110 sjósett í heimahúsum Samkvæmt 35. grein reglugeröar um vernd barna og ungmenna er óheimilt að taka barn/ börn í dagvist á einkaheimili gegn gjaldi, nema viðkomandi heimili hafi verið veitt leyfi til slíkrar starfsemi frá viðkomandi barna- verndarnefnd (félagsmálaráði). Félagsmálaráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt nánari reglur um gæslu barna í heimahúsum er tóku gildi 1. janúar 1981. Þeir sem nú þegar hafa tekið börn í gæslu í heimahúsum eða hafa hug á því síðar skulu því sækja um leyfi til þessarar starfsemi til félagsmálaráðs. Undirritaður tekur á móti umsóknum og veitir nánari upplýsingar í síma 1211. Félagsmálastjóri Akraneskaupstaður íbúð til leigu Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu, Kirkjubraut 28 fyrir 28. janúar á sérstökum eyðublöðum, sem þar fást. Bæjarritari Leyfi til gæslu barna Þann 4. janúar sl. var sjósett nýtt skip hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf. Hið nýja skip, sem hlaut nafnið Hafnarey SU 110 er fyrsta skipið í svokölluðu rað- smíðaverkefni, en á því verkefni taka þátt auk Þorgeirs & Ellerts, Sliþpstöðin á Akureyri og Stálvík I Garðabæ. Eigandi Hafnareyjar er Hrað- frystihús Breiðdælinga hf. á Breið- dalsvík og er áætlað að afhenda eigendum skipið formlega I byrjun febrúar. Hafnarey SU 110 er 35,1 m löng og 8,1 m breið og skipið mælist um 280 lestir. Skipið hefur tvö heil þilför og það þriðja sem nær aftur fyrir brú þess. Undir neðra þilfari er vélarrúm og fiskilest. Á neðra þilfari eru fiskmóttaka, fiskaðgerðarrými og íbúðir, á efra þiifari er trolldekk og íbúðir, dælu- og loftræstiklefar undir bakka. Skipið er smíðað með það fyrir augum að geta stundað línu-, neta- og togveiðar og það síðasta með skuttogi. Aðalvél Hafnareyjar er 990 hestafla Disel og er hún gerð fyrir brennslu á svartolíu. Volda niður- færslugír er tengdur Hjelset skipti- skrúfu og skrúfuhring. Við gírinn eru tengdir tveir rafalar sem sjá bátnum fyrir rafmagni. Hjálparvél, til framleiðslu rafmagns í höfn, eraf Cummins gerð. Allar vindur í bátn- um eru frá Rapp-Hydema og eru togvindur 16 tonn á tóma tromlu. Togvindur eru með autotrollbún- aði. í skipinu eru fullkomnustu fiski- leitar- og siglingartæki, sem völ er á í dag, svo sem Atlas fisksjár, Decca ratarar, Anschutz gíróátta- viti og Sailor talstöðvar. Hafnarey hefur íbúðir fyrir fjórtán manns í fjórum eins manns klefum og fimm tveggja manna klefum. Skipstjóri á hinu nýja skipi er ís- leifur Gíslason. Fyrsti vélstjóri er Kristján Steingrímsson og fyrsti stýrimaður er Rafn Svansson. Þess má að lokum geta að Akraneskaupstaðu r Hafnarey við nýja viðlegukantfnn í Lambhúsasundi. Með tilkomu hans hefur öll aðstaða Þ & E til frágangs skipa stórbatnað. Mynd: Dúi Hafnarey er 36. nýsmíði Þorgeirs Bæjarblaðið óskar skipasmíða- og Ellerts hf. auk þess sem skipa- stöðinni, eigendum Hafnareyjar og smíðastöðin hefur endurbyggt áhöfn til hamingju með hið nýja nokkra báta á liðnum árum. skip og góðs gengis í framtíðinni. Ferðir Akraborgar: Mikil aukning á flutningum 1982 Flutningar með Akraborg hefur aukist ár frá ári allt frá því að fyrsta bílferjan kom árið 1974. í fréttatilkynningu frá hf. Skallagrími, sem Bæjarblað- inu barst fyrir skömmu, segir að á árinu 1982 hafi verið fluttar 73.196 bifreiðar í 3202 ferðum með Akraborg og er það bæði með gamla og nýja skipinu. Þettaer25% aukning frá árinu 1981 en þá voru fluttar 58.182 bifreiðar í 2850 ferðum. Farþegar sem fluttir voru á sl. ári voru 260.609, þar af voru 182.990 farþegar bíla sem um borð voru og 77.619 án bíla. Aukning farþega er um 22% frá fyrra ári en þá voru fluttir 214.039 farþegar. Það má því Ijóst vera að sífellt fleiri líta á átlunarferðir Akra- borgar milli Reykjavíkur og Akraness sem hluta af vega- kerfi landsins og æskilegan ferðamáta í stað þess að aka fyrir Hvalfjörð. * .....—, Bœjorblodid Útgefandi: Bæjarblaðið sf., pósthólf 106,300 Akranes 1. tbl. 5.árg. 25. janúar 1983 Ritstjórnarskrifstofa og afgreiðsla Laugarbraut 10 sími 2974 opin mánudaga og þriðjudaga kl. 17-20 og laugardaga kl. 13-15. Ritstjórn: Haraldur Bjarnason sími 2774. Sigþór Eiríksson sími 1919. Ljósmyndir: Árni S. Árnason simi 2474, Dúi Landmark sími 1825. Fréttaritari Borgarnesi: EyjólfurTorfi Geirsson. Útlit: Bæjarblaðið. Setning og prentun: Prentverk Akraness hf. .....— ...... ...............

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.