Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 3
Beejarblodid 3 Veiðarfæraverslun Axels Sveinbjörnssonar 40 ára: „Þá var mánaðarkaupið 250 krónur“ — segir Axel Sveinbjörnsson í viðtali við Bæjarblaðið Veiðarfæraverslun Axels Svein- björnssonar varð 40 ára þann 18. desember s.l. Axelsbúð, eins og verslunin er jafnan kölluð hér á Skaga, er fyrir löngu orðin fastur punktur í bæjarlífinu hér á Akra- nesi. Alla tíð frá stofnun hefur verslunin verið staðsett við Hafn- arbrautina, fyrstu árin norðan við götuna en síðan að sunnanverðu við hana. En þrátt fyrir staðsetn- inguna og nafn verslunarinnar, þá er talsvert fleira en veiðarfæri á boðstólnum á þeim bæ, og vöru- valið hefur aukist með ári hverju. En hvað segir stofnandinn og eig- andinn, Axel Sveinbjörnsson um tilurð verslunarinnar fyrir förutíu árum. Bæjarblaðið leit við hjá hon- um fyrirskömmu. ÁTTI ÞÚSUND KRÓNUR „Ég var búinn að vera á sjó frá unglingsaldri, en varð svo að fara á land árið 1937 vegna veikinda. Ég réði mig þá sem verkstjóra til Har- man ég að vinnuvettlingar kostuðu tvær og fimmtíu þá en kosta nú 63 krónur þrátt fyrir að búið sé að strika tvö núllin aftan af krónunni nú. Ég byrjaði nú smátt og vöru- valið var ekkert líkt því sem nú er. Flest af því sem ég verslaði var með var tengt sjónum, veiðarfæri, tóg, vinnufatnaðurog því líkt. Fyrst um sinn þurfti maður að fara viku- lega til Reykjavíkur og ,,svíkja“ út vörur og þá bara út á andlitið eins og kallað er. Ég get sagt þér sem dæmi um liðlegheit einstakra manna að Ellingsen lánaði mér í byrjun vörur fyrir ellefu þúsund krónur án þess að þekkja nokkuð til mín og þætti slíkt eflaust gott í dag. Þetta blessaðist allt og ég hef alltaf getað greitt mínar skuldir. Voru lánsviðskipti til sjómanna ekki mikil á þessum árum? „Jú, þau hafa alltaf verið mikil, og hér áður fyrr fengu sjómenn sjaldnar uppgert en nú. En þessi lánsviðskipti eru enn talsverð, það sem helst hefur breyst í þeim efn- Verslunarhús Axels Sveinbjömssonar fyrir 40 árum Axelsbúð. í þessu húsi hefur verslunin verið f 35 ár Mynd: Dúi. aldar Böðvarssonar og starfaði þar til 18. nóvember 1942. Mánuði seinna var ég svo búinn að opna þessa verslun, 18. desember 1942.“ En hvernig var að opna verslun á þessum árum, var ekki erfitt að fá fyrirgreiðslu og þurftu menn ekki að eiga mikinn pening til að fara út í slíkt? „Ég átti þúsund krónurtil þá, og ég man að mánaðarkaupið mitt hjá Haraldi var 250 krónur. Til að við getum áttað okkur á verðlaginu, þá um er að nú eru útgerðarfyrirtækin sjálf farin að vera mikið með vinnu- fatnað fyrir sína menn þannig að verslun með vinnufatnað fyrir sjó- mennhefurheldurdregistsaman." HEFUR STARFAÐ HJÁ AXEL í TÆP40ÁR Varstu með starfsfólk í versl- uninni fyrstu árin? „Fyrsta árið störfuðum við að þessu tvö, ég og konan mín, Guðjónsson, Sigríður Óladóttir og Guðjón Finnbogason. — Ljósm.: Jóhannes Guðjónsson. Starfsfólkið í versluninni i dag f.v.: Ámi Árnason, Axel Gústafsson, Axel Sveinbjömsson, Ólafur Lovísa Jónsdóttir. í byrjun árs 1943 réðist svo fyrsti starfsmaðurinn til mín en það var Grétar Jónsson, sem nú starfar í Blómabúðinni. Það sama ár um haustið byrjaði svo Guðjón Finnbogason hjá mér og hann starfar enn hjá mér, svo Guðjón er bráðum búinn að halda út hjá mérí40ár.“ Þú segist hafa byrjað smátt, en hvernig voru húsakynnin? „Þau voru nú mikil til að byrja með, ég byrjaði í litlu húsi norðan við götuna. Það hús var flutt á Innra-Hólm fyrir nokkuð mörgum árum og þjónar þar sem bílskúr eða vélageymsla held ég. Versl- unin var í því húsi fyrstu 5-6 árin en þá keypti ég margfalt stærra hús hinum megin götunnar. Fyrst um sinn notaði ég það ekki allt sjálfur og leigði út pakkhús bæði fyrir af- greiðslu Akraborgar og Kaupfélag- ið. Nú svo kom að því að ég þurfti að bæta því húsnæði við mig líka, þá var ég farinn að auka vöruúr- valið og byrjaður að versla með ýmislegt til iðnaðar, svo sem fitt- ings, röro.fl. GJÖRBREYTTIR TÍMAR Ef þú lítur til baka Axel yfir þessi fjörutíu ár. Hverjar finnst þér helstu tíreytingarnar? „Breytingarnar eru náttúrulega fjölmargar og stórar. Verslun hér á Akranesi hefur stórbreyst, og hér hafa verið stofnsettar verslanir á öllum sviðum verslunar. Nú í dag er til dæmis hægt að fá sumt af því sem ég hef verslað með í kvöld- og helgarsölum, þar er maður í ójafnri samkeppni með lokað frá klukkan sex á kvöldin og um helgar. En þrátt fyrir alla þessa samkeppni held ég að ég sé bara ánægður með minn hlut. Akurnesingar vita hvað ég versla með og eru löngu búnir að kynnast því og leita því gjarnan á gamlar slóðir." Þar erum við komin aftur að því sem sagt var í byrjun. Axelsbúð er fyrir löngu orðin fastur punktur í bæjarlífi Akurnesinga. Þær eru ófáar fiskisögurnar sem flogið hafa á milli manna á bekknum í Axels- búð, þarsem sjómenn í landlegum setjast gjarnan niður og ræða afla- brögð og veðurútlit yfir kók og prins með dyggilegri aðstoð líflegs af- greiðslufólks. Bæjarblaðið þakkar Axel Sveinbjörnssyni fyrir spjallið og óskar honum og samstarfsfólki hans til hamingju á þessum tíma- mótum. Samvinnubankinn flytur senn Eins og fram kom í siðasta byrjun febrúar og er stefnt að því Bæjarblaði eru nú tvær af þremur að nota fyrstu helgi febrúarmán- stofnunum, sem nýja Samvinnu- aðar til flutninga. bankahúsið mun hýsa, fluttar í Það hefur hins vegar vakið at- húsið. hygli bæjarbúa hve lítið er um Sjáifur eigandinn, Samvinnu- biiastæði við þetta hús sem hýsir bankinn, hefur hinsvegar ekki stofnanir sem fólk þarf mikið að ennfluttinn.AðsögnÖmóifsÞor- leita til. Nú mun standa til að leifssonar útibússtjóra Sam- brjótagamlabankahúsiðníðurog vinnubankans munu bankinn og væntanlega verður þánægileg Samvinnutryggingar flytja nú í aukning á bílastæðum við húsið. Hef opnað aftur Nýjar vörur Nytja- skraut og listmunir Styttur, aðeins frummyndir Leirkjallarinn Melteigi 4

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.