Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 8
Nýja Akraborgin reynist vel í suð-vestanáttinni Allt óvíst enn með sölu á þeirri gömlu „Nýja Akraborgin hefur reynst vel og hún hefur siglt hér milli Akraness og Reykjavíkur við mun verri veðursskilyrði en fyrri skip höfðu gert á þessari leið“, sagði Helgi Ibsen framkvæmdastjóri Skallagríms hf. er Bæjarblaðið spurðist fyrir um reynsluna af þessu nýja skipi fyrsta veturinn sem það siglir hér. Helgi sagði jafnframt að skipið færi vel í vestan- og suðvestan átt sem er versta vindáttin á þessari siglingaleið. Hins vegar hefðu komið upp erfiðleikar í höfnum í vetur vegna hvassviðris og þá sér- staklega skömmu fyrir jól en þá var hliðarskrúfa skipsins biluð. Hann sagði að þrengslin væru mikil í höfnunum, sérstaklega hér á Akra- nesi og því erfitt að athafna sig í hvassviðri. í þeim tilfellum væri það sipstjórnarmanna að meta hvort lagt yrði í hann eða ekki og menn hugsuðu þá gjarnan til lengri tíma en einnar ferðar og tæku egna tví- sýna áhættu í þeim efnum. Við spurðum Helga um hvort útlit væri fyrir sölu á gömlu Akraborg- inni sem nú liggur bundin við Akraborgarbryggjuna. — Hann sagði að ekkert væri Ijóst í þeim málum enn. T alsvert hefði verið um fyrirspurnir en hann vonaðist til að þau mál skýrðust kannski í lok næsta mánaðar. Pœjorblotfid 25. janúar 1983 Verð kr. 14,- Haraldur Böðvarsson langhæstur Skagatogara Afli togara í heild tæp 15.000 tonn á liðnu ári Heildarafli sem landað var hér á Akranesi á liðnu ári var samtals 23.422 tonn. Þessi heildarafli skipt- ist þannig að togarar lönduðu 14.780 tonnum og bátar lönduðu hér 7.106 tonnum. Þá varogland- að hér 1.536 tonnum af síld. Afli einstakra togara á liðnu ári var sem hér segir: tonn Bjarni Ólafsson 974 Haraldur Böðvarsson 4.966 Krossvík 3.642 Sigurborg 76.400 - Sigurfari 40.310 - Sólfari 66.250 - Gæftaleysi hamlaði veiðum í byrjun ársins. Flestir bátanna róa með tvöfaldan gang, þ.e. 80 bjóð í stað 40 bjóða áður og landa því ekki nema annan hvern dag. Einn bátur, Haraldur, ermeð beitningar- vél um borð og landar því enn sjaldnar en aðrir bátar. Þá er Rauðsey nýbyrjuð á útilegu með línu. Þetta er að vísu ekki togaraf lotinn. En þama hvíla trillurnar lúin bein í uppfyllingunni við Faxabraut. — Ljósm.: Ámi S. Óskar Magnússon 3.389 Skipaskagi 1.801 Bjarni Ólafsson landaði tvisvar erlendis í lok ársins, síðasta löndun hans hér á landi var í október. Skipaskagi kom nýr til landsins 1. maí ásl. ári en hinirtogararnirvoru að veiðum allt árið. Við látum bíða með að birta aflatölur togaranna það sem af er þessu ári en komum með þær í næsta blaði. Akranesbátar hafa nú flestir haf- ið veiðar. Sjö bátar byrjuðu að róa með línu en einn þeirra, Reynir hefur nú þegar skipt yfir á þorska- net. Anna er einnig á þorskanetum. Afli bátanna frá áramótum og fram til 22. janúar sl. er sem hér segir: Anna 7.000 Kg. Grótta 45.140 - Haraldur 67.165 - Reynir 18.640 - r Úrslit í Fyrir jólin var efnt til umferðar- getraunar meðal skólabama undir yfirskriftinni: í góðu skapi í jólaumferðinni. Samtals bárust 533 lausnir (réttar431, rangar102) Frá Brekkubæjarskóla 388 - 325 - 63 Frá Grundaskóla 145 - 106 - 39 Verðlaun til vinningshafa gáfu Akranesbær og Sjóvá. Guðmundur Björnsson fulltrúi bæjarfógeta dró út réttar lausnir, sem urðu þessar. 6ára. Guðrún Högnadóttir, Suðurgötu 26. Guðmundur Valgeirsson, Vallholti 13. 7 ára. Arnheiður, Garðabraut 24. Óskar Már Óskarsson, Suður- götu 78. Valdís Kvaran, Grundar- túni 12. Ólafur Karvelsson, Grenigrund 33. 8ára. Kári Steinn Reynisson, Brekku- braut 11. Valdimar Guðmunds- getraun skólabarna 1982 son, Grenigrund 4. Kristjana Jónsdóttir, Jörundarholti 46. Magnea Sólmundardóttir, Há- holti 35. 9ára. Bjarni Valsson, Preshúsabraut 33. Símon Hreinsson, Höfða- braut 14. Kristrún Dögg, Eini- grund 18. Unnur María Sólmund- ardóttir, Háholti 35. 10ára. Hallgrímur B. Valdimarsson, Há- teig 10. Hrannar Örn Hauksson, Esjuvöllum 27. Sigríður Indriða- dóttir, Furugrund 46. Sólbjörg Hlöðversdóttir, Akurgerði 13. 11 ára. Agnar Kjartansson, Vogabraut 58. Sylvía Rós Helgadóttir, Kirkj- ubraut 30. 12ára. Anna Guðnadóttir, Stillholti 15. Guðmundur F. Guðjónsson, Suðurgötu 37. Lögreglan vill þakka öllum þeim er þátt tóku í getrauninni ( GÓÐU SKAPI (JÓLAUMFERÐ- INN11982 með ósk um slysalaust árið 1983. Hallgrímur B. Valdlmarsson A aðfangadag fór Pétur Jó- hannesson lögregluþjónn ásamt Árna S. Árnasyni Ijósmyndara Unnur María Sólmundardóttir með vinninga til vinningshafa og voru meðfylgjandi myndir teknar þá. Bjami Valsson

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.