Fréttablaðið - 25.07.2019, Page 2

Fréttablaðið - 25.07.2019, Page 2
Veður Norðaustlæg átt, 5-15 m/s, hvassast NV til. Rigning eða súld á A-verðu landinu. Lítilsháttar væta NV til um tíma í kvöld og nótt. Hiti 8 til 18 stig. SJÁ SÍÐU 20 NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOL TA Hefur þú prófað Holta drumsticks? Útilegan lifir TRÚMÁL Lögmaðurinn og fyrrver- andi sóknarprestur á Staðastað, Páll Ágúst Ólafsson, er forstöðumaður og stjórnarformaður lífsskoðunar- félagsins Vitundar sem skráð var hjá sýslumanni í febrúar. Aðeins þrír meðlimir eru skráðir í félag- ið en í stjórn félagsins sitja, ásamt Páli, móðir hans Dögg Pálsdóttir og Helga Baldvins Bjargardóttir. Öll eru þau lögmenn á lögmanns- stofunni ÍsMál, þar sem heimilis- fang Vitundar er einnig skráð. Þar er einnig skráð félagið Love Iceland sem sér um brúðkaups- þjónustu og er í eigu Karenar Lindar Ólafsdóttur, prests í Hjallakirkju og eiginkonu Páls Ágústs. Love Iceland er rétthafi að léninu vitund.is. Á þeirri síðu eru aðeins þrír pistlar, allir birtir í febrúar en á samfélags- miðlum hafa verið reglulegar stöðu- uppfærslur, sú fyrsta árið 2016. Á síðunni kemur fram að félagið sinnir athöfnum, svo sem giftingum. Páll Ágúst hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarna mánuði. Í embættistíð sinni á Staðastað flutti hann fjölskyldu sína af prestsetrinu þar sem hann taldi það óíbúðar- hæft. Var embættið síðar lagt niður og átti Páll Ágúst í miklum mála- ferlum við biskup Íslands og þjóð- kirkjuna sem hann vann. Fyrr í mánuðinum greindi Frétta- blaðið frá því að Páll Ágúst hefði milligöngu um samskipti banda- rískra kaupenda og þrotabús WOW air. Síðar hefur komið í ljós að athafnakonan Michele Ballarin fer fyrir kaupendahópnum. „Ég tók að mér sem lögmaður að hjálpa hópi fólks að koma þessu á laggirnar. Mitt hlutverk er einvörð- ungu lögfræðilegt,“ segir Páll Ágúst um Vitund og benti á að Helga gæti uppfrætt um félagið. Sagði hann jafnframt að þetta tengdist deilum hans við biskup ekki á nokkurn hátt. „Þetta er félagsskapur fólks sem hefur áhuga á að iðka mannrétt- indi,“ segir Helga. Vitund væri hópur fólks sem væri meðvitað um eigin forréttindi og jaðarstöðu ann- arra. Helga segir að félagið hafi séð um athafnir og að Páll Ágúst hafi mest megnis séð um þær hingað til. Páll segist hins vegar ekki sjá um athafn- irnar. Samkvæmt reglugerð dómsmála- ráðherra er lágmarksfjöldi trú- og lífsskoðunarfélaga 25. Helga segir að þau þrjú á lögmannsstofunni séu öll í félaginu en að fjöldinn sé meiri, nokkrir tugir. „Ætli ég sé ekki mesta virknin eins og stendur,“ segir Helga um virkni félagsins. Samkvæmt lögum eru skilyrði skráningar trú- og lífs- skoðunarfélags að félagið hafi náð fótfestu, starfsemi þess sé virk og stöðug. Hvorki dómsmálaráðuneyt- ið né sýslumaðurinn á Siglufirði, sem sér um trúfélagsskráningar, gátu svarað fyrirspurnum Frétta- blaðsins um skráninguna vegna sumarleyfa. kristinnhaukur@frettabladid.is Með lífsskoðunarfélag á lögmannsstofu sinni Páll Ágúst Ólafsson og Dögg Pálsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lífsskoðunarfélagið Vit- und var skráð í febrúar og hefur aðeins þrjá meðlimi. Þrír lögmenn komu að skráningunni en þá greinir á um hver sinnir athöfnum, svo sem giftingum fyrir hönd félagsins. Þrír meðlimir voru skráðir í Vitund þann 1. júní samkvæmt Þjóðskrá. Sam- kvæmt reglugerð um skrán- ingu trúfélaga og lífsskoð- unarfélaga er lágmarksfjöldi til skráningar 25. TÆKNI Bandaríski samfélagsmiðla- risinn Facebook þarf að greiða fimm milljarða dala sekt vegna brota á reglum um öryggi persónu- legra gagna. Þetta tilkynnti banda- ríska neytendastofnunin (FCT) í gær. Þá þarf fyrirtækið einnig að setja á fót óháða eftirlitsnefnd um gagnaöryggi sem forstjórinn, Mark Zuckerberg, má ekki stýra. FTC hafði, að því er BBC greinir frá, verið að rannsaka ásakanir er tengdust notkun greiningar- fyrirtækisins Cambridge Analyt- ica á gögnum Facebook-notenda í pólitískum tilgangi. Rannsóknin snerist einnig um fleiri meint brot, til að mynda er varða hugbúnað er ber kennsl á andlit. Zuckerberg sagði sjálfur í færslu á Facebook að fyrirtækið myndi nú gera grundvallarbreytingar á starfseminni, vörunum og rekstr- inum. „Okkur ber skylda til þess að standa vörð um friðhelgi einkalífs fólks.“ – þea Fimm milljarða sekt Facebook Hið hefðbundna íslenska tjaldsumarfrí deyr seint líkt og sjá má á þessari mynd frá Kleppjárnsreykjum. Fyrir marga er tjaldútilegan ómissandi hluti af sumrinu með tilheyrandi útiveru og slökun fyrir unga jafnt sem aldna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR UMHVERFISMÁL Rusl úr breskum geimflaugum, sem rigna mun inn í íslenska og færeyska lögsögu á næstu árum, er til skoðunar innan tveggja ráðuneyta. Það er utanríkis- og umhverfisráðuneytisins. Eins og fram kom í mánuðinum hefur skot- pallur verið reistur í norðurhluta Skotlands og geimf laugabútarnir verða mun stærri en áður var talið. „Sérfræðingar okkar eru að skoða málið núna og óvíst hvenær þeirri vinnu lýkur,“ segir Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafull- trúi umhverfisráðuneytisins. En samkvæmt landhelgislögum ber að forðast allt sem getur mengað eða spillt hafinu. Þá verður einnig að líta til öryggismála skipa í þessu samhengi. – khg Geimflaugarusl til skoðunar HÚSNÆÐISMÁL „Niðurstöður til- raunaverkefnis Íbúðalánasjóðs á landsbyggðinni sýna að það ríkir markaðsbrestur á húsnæðismarkaði víða á landsbyggðinni. Enginn er að svara eftirspurninni þrátt fyrir að næg kaupgeta sé fyrir hendi hjá íbúum í þessum sveitarfélögum,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Ráðherrann birti í gær minnis- blað þar sem farið er yfir stöðu til- raunaverkefnisins. Hann telur að stjórnvöld þurfi að grípa til frekari aðgerða til að rjúfa þá stöðnun sem ríkt hafi í húsbyggingum á lands- byggðinni. – sar Stöðnunin úti á landi verði rofin Geimflaug skotið á loft. MYND/AFP Fleiri myndir frá svæðinu er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 8 -B 5 6 8 2 3 7 8 -B 4 2 C 2 3 7 8 -B 2 F 0 2 3 7 8 -B 1 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.