Fréttablaðið - 25.07.2019, Page 20
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Núna þegar sumarið er í hámarki eru eflaust ekki margir farnir að velta
fyrir sér haustinu. Enda liggur
ekkert á og um að gera að njóta
sumarblíðunnar meðan hún varir.
Tískuhúsin úti í heimi eru þó flest
fyrir löngu búin að kynna sínar
haustlínur og það má segja að
áherslurnar séu ólíkar.
Fötin sem sýnd voru á tísku-
sýningum í hátískuborgunum
úti í heimi voru mjög ólík. Allir
sem vilja fylgja tískunni í haust
ættu því að geta fundið eitthvað
sem fellur að þeirra smekk. Á
sýningarpöllunum má sjá fágaðan
vinnuklæðnað, föt fyrir fólk sem
vill skera sig úr og fyrir fólk sem
vill halda sig við hefðbundinn
klæðnað.
Marc Jacobs sýndi fallega
blómakjóla á sýningu í New
York þar sem hann kynnti
haustlínu sína, einnig var
mikið um íburðarmikla kjóla
og kápur. Á sýningu Saint Laur-
ent á haust- og vetrartískunni
fyrir kom andi vetur kenndi
annarra grasa. Mikið var um
skæra neonliti sem minntu
þó nokkuð á 9. áratuginn.
Áhorfendum sýningarinnar
var sannarlega komið á óvart
í sýningarlok þegar ljósin
voru dempuð verulega og inn á
sýningarpallana gengu fyrirsætur
í sjálflýsandi kjólum, á appelsínu-
gulum pinnahælum, í skær-
grænum fjaðrakápum.
Fyrirsæturnar voru
gjarnan með fylgihluti í
stíl eins og belti, töskur
og sólgleraugu.
Blóm, blúndur
og neon
Hausttískan á sýningarpöllunum úti
í heimi er mjög fjölbreytt þetta árið.
Allt frá formföstum drögtum, yfir
í skæra neonliti og nóg af blúndum
og blómum.
Á sýningu Marc Jacobs á haust-
tískunni 2019 mátti sjá mikið af
fallegum kjólum prýddum blóma-
mynstri. NORDICPHOTOS/GETTY Mikið var um íburðarmikla kjóla og kápur á sýningu
Marc Jacobs. NORDICPHOTOS/GETTY
Neon og skærir litir voru allsráðandi á sýningu Saint Laurent á haust- og vetrartískunni. Fyrir-
sæturnar voru margar með fylgihluti sem lýstu í myrkri. Það er spurning hvort sjálflýsandi
klæðnaður og fylgihlutir muni lýsa upp myrkrið á klakanum í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY
Þessi skærgræni jakki er eflaust hlýr í vetur. Hann er líka praktískur að því
leyti að notandinn þarf eflaust ekki endurskinsmerki í skammdeginu.
Mikið var um jakkaföt og
dragtir á tískupöllunum
í vor þegar hausttískan
var sýnd. Hér er fyrirsæta
í stílhreinum jakkafötum
eftir Proenze Schouler á
sýningu í New York í vor.
Fyrirsæta í jakka-
fötum með slaufu
og í blúnduskyrtu
þegar haustlína Al-
exandre Vauthier
var kynnt í París.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
5
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
8
-C
E
1
8
2
3
7
8
-C
C
D
C
2
3
7
8
-C
B
A
0
2
3
7
8
-C
A
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K