Fréttablaðið - 25.07.2019, Side 22

Fréttablaðið - 25.07.2019, Side 22
Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Það stendur líka enn til boða að kaupa varning frá því í fyrra. Tilgangurinn með varningnum er að styðja mál- stað Druslugöngunnar og veita þolendum kynferðisof beldis og aðstandendum þeirra styrk. Helga Lind Mar, einn skipuleggj- enda Druslugöngunnar, segir að varningurinn snúist um að geta gert líkama sinn að yfirlýsingu. „Manni getur kannski fundist það vera skrýtin nálgun á mál- staðinn að selja einhverja boli með lógói eða setningu. En það að klæðast orðunum sem mann langar til að segja, sama hvort maður er þolandi eða aðstand- andi, gerir það auðveldara að segja eitthvað. Það er auðveldara að fara í bol með áletruninni „ég er ekki lygari“ heldur en að standa upp á hverjum einasta degi og segja „ég er ekki lygari“. Gera líkamann að yfirlýsingu Nýir bolir og töskur frá skipuleggjendum Druslugöngunnar í ár voru sett í sölu á þriðjudaginn var. Í ár er varningurinn einfaldlega með druslulógóinu og skýrum skilaboðum um málstað göngunnar. Tilgangurinn með varningnum er að styðja við málstað Druslugöngunnar og veita styrk til þolenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í ár eru skilaboð varningsins einföld og eiga að minna fólk á að styðja þolendur kynferðisofbeldis. Fólk úr öllum samfélagshópum hefur tileinkað sér varning Druslugöngunnar. Varningurinn er til sölu á öllum viðburðum Druslugöngunnar í vikunni. Megininntak Druslugöngunnar er að minna á að kynferðisofbeldi á aldrei rétt á sér. MYNDIR/EVA SIGURÐARDÓTTIR Sækja styrk í fötin Helga tekur eftir að margir þolend- ur kynferðisof beldis sækja styrk í að klæðast fötum Druslugöngunn- ar og að sjá aðra í fötunum. Með því að gera klæðnaðinn vinsælan getur það líka hjálpað til við að setja ákveðin mál á dagskrá. Helga segir að varningurinn geti stuðlað að því að umræðan haldi áfram á milli Druslugangna þar sem fólk getur auðvitað klæðst bolunum og notað töskurnar allan ársins hring. Varningurinn hefur alltaf selst vel að sögn Helgu, sem segir jafnframt að hún sjái kaupendur úr öllum samfélagshópum. „Samt hefur mér oft fundist að ákveðnir hópar leggi of mikla áherslu á klæðnaðinn.“ Miðað við spenninginn sem myndast fyrir varningi Druslugöngunnar mætti halda að tískumerki væri að gefa út nýja línu að sögn Helgu. „Druslu- gangan á ekki að vera tískumerki. Varningurinn á ekki að taka pláss frá málstaðnum heldur að styðja við hann.“ Það að klæðast bolunum eða nota töskurnar kallar Helga míní-aktívisma. Það getur gert gott fyrir einstakling, sem burðast með óæskilega skömm vegna kynferðisof beldis, að sjá einhvern klæðast f lík sem sýnir að viðkom- andi er með honum í liði. „Það er mjög fallegur míní-aktívismi.“ Hannyrðapönk í krosssaumi Í dag verður haldin hannyrða- vinnustofa með Sigrúnu Braga- dóttur sem er þekkt á Twitter fyrir myllumerkið #bataferlisigrúnar. Undir því merki hefur Sigrún deilt saumuðum yfirlýsingum sem fjalla um eigin bata eftir kyn- ferðisof beldi. Meðal annars notar Sigrún krosssaum í því ferli. Eftir Klaustursmálið saumaði Sigrún út „húrrandi klikkuð kunta“, orð sem Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins, lét falla um Ingu Sæland og gaf Ingu að gjöf. „Hún er svona hannyrðapönkari,“ segir Helga. „Hún er með aktívisma í gegnum hannyrðir og er mikill töffari.“ Tilgangurinn með hannyrða- vinnustofunni er að kenna fólki að sauma út yfirlýsingar á boli eða annan fatnað. Í ár leggja skipu- leggjendur Druslugöngunnar áherslu á endurnotkun og hvetja fólk til að sauma út eða skrifa á gamla boli orð sem það vill koma á framfæri. „Við höfum alltaf verið með lykilsetningar eins og „ég er ekki drusla“ og „ég er ekki lygari“, en við viljum hvetja fólk til að koma með sína eigin boli og skrifa á þá sjálft. Við erum líka öll með mismunandi hluti sem við viljum segja. En ef fólk finnur það ekki hjá sér og veit ekki hvað það vill segja, þá verðum við með helling af bolum með druslulógóinu.“ Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Skyrtur Verð 9.900 kr. Stærð 38 - 48 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 5 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 8 -D 3 0 8 2 3 7 8 -D 1 C C 2 3 7 8 -D 0 9 0 2 3 7 8 -C F 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.