Fréttablaðið - 25.07.2019, Qupperneq 22
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Það stendur líka enn til boða að kaupa varning frá því í fyrra. Tilgangurinn með
varningnum er að styðja mál-
stað Druslugöngunnar og veita
þolendum kynferðisof beldis
og aðstandendum þeirra styrk.
Helga Lind Mar, einn skipuleggj-
enda Druslugöngunnar, segir að
varningurinn snúist um að geta
gert líkama sinn að yfirlýsingu.
„Manni getur kannski fundist
það vera skrýtin nálgun á mál-
staðinn að selja einhverja boli
með lógói eða setningu. En það
að klæðast orðunum sem mann
langar til að segja, sama hvort
maður er þolandi eða aðstand-
andi, gerir það auðveldara að segja
eitthvað. Það er auðveldara að fara
í bol með áletruninni „ég er ekki
lygari“ heldur en að standa upp á
hverjum einasta degi og segja „ég
er ekki lygari“.
Gera líkamann að yfirlýsingu
Nýir bolir og töskur frá skipuleggjendum Druslugöngunnar í ár voru sett í sölu á þriðjudaginn var. Í
ár er varningurinn einfaldlega með druslulógóinu og skýrum skilaboðum um málstað göngunnar.
Tilgangurinn með varningnum er að styðja við málstað Druslugöngunnar og veita styrk til þolenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í ár eru skilaboð varningsins einföld
og eiga að minna fólk á að styðja
þolendur kynferðisofbeldis. Fólk úr öllum samfélagshópum hefur tileinkað sér varning Druslugöngunnar. Varningurinn er til sölu á öllum viðburðum Druslugöngunnar í vikunni.
Megininntak Druslugöngunnar er að minna á að kynferðisofbeldi á aldrei
rétt á sér. MYNDIR/EVA SIGURÐARDÓTTIR
Sækja styrk í fötin
Helga tekur eftir að margir þolend-
ur kynferðisof beldis sækja styrk í
að klæðast fötum Druslugöngunn-
ar og að sjá aðra í fötunum. Með
því að gera klæðnaðinn vinsælan
getur það líka hjálpað til við að
setja ákveðin mál á dagskrá. Helga
segir að varningurinn geti stuðlað
að því að umræðan haldi áfram á
milli Druslugangna þar sem fólk
getur auðvitað klæðst bolunum og
notað töskurnar allan ársins hring.
Varningurinn hefur alltaf selst vel
að sögn Helgu, sem segir jafnframt
að hún sjái kaupendur úr öllum
samfélagshópum.
„Samt hefur mér oft fundist
að ákveðnir hópar leggi of mikla
áherslu á klæðnaðinn.“ Miðað við
spenninginn sem myndast fyrir
varningi Druslugöngunnar mætti
halda að tískumerki væri að gefa út
nýja línu að sögn Helgu. „Druslu-
gangan á ekki að vera tískumerki.
Varningurinn á ekki að taka pláss
frá málstaðnum heldur að styðja
við hann.“
Það að klæðast bolunum eða
nota töskurnar kallar Helga
míní-aktívisma. Það getur gert
gott fyrir einstakling, sem burðast
með óæskilega skömm vegna
kynferðisof beldis, að sjá einhvern
klæðast f lík sem sýnir að viðkom-
andi er með honum í liði. „Það er
mjög fallegur míní-aktívismi.“
Hannyrðapönk í krosssaumi
Í dag verður haldin hannyrða-
vinnustofa með Sigrúnu Braga-
dóttur sem er þekkt á Twitter fyrir
myllumerkið #bataferlisigrúnar.
Undir því merki hefur Sigrún deilt
saumuðum yfirlýsingum sem
fjalla um eigin bata eftir kyn-
ferðisof beldi. Meðal annars notar
Sigrún krosssaum í því ferli. Eftir
Klaustursmálið saumaði Sigrún út
„húrrandi klikkuð kunta“, orð sem
Bergþór Ólason, þingmaður Mið-
flokksins, lét falla um Ingu Sæland
og gaf Ingu að gjöf. „Hún er svona
hannyrðapönkari,“ segir Helga.
„Hún er með aktívisma í gegnum
hannyrðir og er mikill töffari.“
Tilgangurinn með hannyrða-
vinnustofunni er að kenna fólki
að sauma út yfirlýsingar á boli eða
annan fatnað. Í ár leggja skipu-
leggjendur Druslugöngunnar
áherslu á endurnotkun og hvetja
fólk til að sauma út eða skrifa á
gamla boli orð sem það vill koma á
framfæri.
„Við höfum alltaf verið með
lykilsetningar eins og „ég er ekki
drusla“ og „ég er ekki lygari“, en við
viljum hvetja fólk til að koma með
sína eigin boli og skrifa á þá sjálft.
Við erum líka öll með mismunandi
hluti sem við viljum segja. En ef
fólk finnur það ekki hjá sér og veit
ekki hvað það vill segja, þá verðum
við með helling af bolum með
druslulógóinu.“
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Skyrtur
Verð 9.900 kr.
Stærð 38 - 48
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
5
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
8
-D
3
0
8
2
3
7
8
-D
1
C
C
2
3
7
8
-D
0
9
0
2
3
7
8
-C
F
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K