Fréttablaðið - 25.07.2019, Side 32

Fréttablaðið - 25.07.2019, Side 32
Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is  25. JÚLÍ 2019 Tónlist Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar í Hall- grímskirkju Hvenær? 12.00-12.30 Hvar? Hallgrímskirkja. Ágúst Ingi Ágústsson organisti ásamt Lene Langballe á zink/cornetto og blokk- flautu. Miðaverð 2.500 kr. Hvað? Jazztón- leikar Hvenær? 17.15- 18.00 Hvar? Listasafn Íslands. María Magnúsdóttir jazzsöngkona, tón- skáld og pródús- ent kemur fram á Freyjujazztónleikum ásamt píanistanum Kjartani Valdemars- syni. Aðgangur 2.000 krónur. Fræðsla Hvað? Á slóðum Gvendar Jóns Hvenær: 20.00-21.30 Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni. Þorgeir Tryggvason gagnrýnandi leiðir göngu um slóðir Gvendar Jóns, sögupersónu i bókum Hend- riks Ottóssonar. Hvað? Minjaganga Hvenær? 20.00 Hvar? Bílastæði við Krýsuvíkurbæ- inn. Minjaganga um byggðahverfið í Krýsuvík, höfuðbólið og kirkjustaðinn. Þorgeir Tryggva­ son leiðir göngu um slóðir Gvendar Jóns. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR María Magnús­ dóttir jazz­ söngkona. TÓNLIST Orgeltónleikar HHHH Tónlist eftir Berlioz, Oldfield, Alain og Bach. Yves Rechsteiner lék á orgel. Hallgrímskirkja sunnudagurinn 21. júlí Í kvikmyndinni Sleeping with the Enemy frá árinu 1991 leikur Julia Roberts kúgaða eiginkonu. Maður­ inn hennar er bilaður og beitir hana ofbeldi. Eitt af því sem hann gerir til að hrella hana er að spila hátt kafla úr Symphonie fantastique eftir Berl ioz í stofugræjunum. Þetta er alltaf forleikurinn að því að hann gengur í skrokk á henni. Tónlistin fjallar um mann sem er heltekinn af ást og upplifir fyrir vikið ofskynjanir. Þær enda á mar­ tröð þar sem illir andar og nornir koma við sögu. Tveir kaf lar úr þessari mögnuðu sinfóníu voru á dagskránni hjá Yves Rechsteiner orgelleikara á tónleikum á sunnu­ daginn í röðinni Alþjóðlegt orgel­ sumar í Hallgrímskirkju. Verkið er upphaflega samið fyrir sinfóníu­ hljómsveit, en Rechsteiner var hér búinn að snara því yfir á orgelið. Dómsdagur Útsetningin var sannfærandi, gædd fjölbreyttum litbrigðum, rétt eins og upphaflega útgáfan. Leikur­ inn sjálfur var öruggur, einkennd­ ist af skýrleika og krafti, léttur og leikandi út í gegn. Hápunkturinn í lokin var glæsilegur og heildar­ útkoman stórfengleg. Vert er að geta þess að í lokakafla Symphonie fantastique er sálmur úr kaþólsku kirkjunni frá 13. öld, Dies irae, sem fjallar um dómsdag. Lagið hefur hljómað víða, það var t.d. upphafsstefið í sjónvarpsþátta­ röðinni Ófærð og var líka spilað í byrjuninni á kvik­ my nd i n n i T he Shining. Særinga­ maðurinn Enn önnur hryll­ ing smy nd kom við sögu á tón­ l e i k u n u m , The Exorcist. Rechsteiner f lutti fyrsta k a f l a n n úr raftón­ verkinu Tubular Bells eftir Mike Oldfield, en byrjunin á því var ein­ mitt notuð sem upphafsstef kvik­ myndarinnar. Tubular Bells kom út í byrjun átt­ unda áratugarins, og er sérkennileg samsuða af þjóðlagatónlist, klassík, rokki og mínímalisma. Laglínurnar eru mjög grípandi og f læðið úr einum hluta í annan er óheft og ávallt spennandi. Gífurlega krefj­ andi var að leika margbrotna mús­ íkina á orgel og má með sanni segja að Rechsteiner hafi baðað út öllum öngum. Hann lék ógnarhratt með fótunum, og ekki bara á fótstigið, sem er heilt hljómborð í sjálfu sér, heldur sparkaði hann líka af og til í takka við hliðina, til að breyta um stillingar. Þetta þurfti hann að gera eldsnöggt. Á sama tíma og fæturnir dönsuðu salsa eftir hljómborðinu voru hend­ urnar á fleygiferð, maður bjóst hálf­ partinn við að organistinn spilaði með nefinu. Hann var á við marga hljóðfæraleikara. Upp í hugann kom Arnold Schwarzenegger í loka­ hnykknum á hinum ýmsu spenni­ tryllum, þar sem hann er með stórt vopnabúr meðferðis, eins manns herdeild sem leggur allt í rúst. Þetta var flott. I’ll be Bach … Lokaatriðið á tónleikunum voru þjú smástykki eftir Jehan Alain, Fantasmagorie, Aria og Litanies. Þau einkenndust af hnitmiðuðum endurtekningum, sem uxu upp í miklar tónasprengingar í lokin. Flutningurinn var þrunginn smit­ andi ákefð, tæknilega pottþéttur og flottur. Aukalagið var enn ein útsetning­ in, að þessu sinni byrjunin á fyrstu einleikssvítu Bachs fyrir selló. Hún rann ljúflega niður eftir allan gaura­ ganginn á undan, frábær endir á dagskránni á þessari skemmtilegu tónleikaröð í Hallgrímskirkju. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Snilldarlegar út- setningar, grípandi tónlist, framúr- skarandi flutningur. Hryllingur í Hallgrímskirkju HLUTHAFAFUNDUR Hluthafafundur HB Granda hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. ágúst 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku. Dagskrá 1. Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í sölufélögum í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, sem og þjónustufélagi á Íslandi með útgáfu nýrra hluta í HB Granda hf. 2. Tillaga stjórnar til breytinga á grein 1.1. samþykkta félagsins þess efnis að nafn félagsins verði Brim hf. 3. Önnur mál. Aðrar uppýsingar Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið hluthafafundur@hbgrandi.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 mánudaginn 5. ágúst 2019, þ.e. 10 dögum fyrir fundinn. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta: a) veitt öðrum skriflegt umboð b) greitt atkvæði skriflega Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins www.hbgrandi.is Stjórn HB Granda hf. 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 5 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 8 -C 9 2 8 2 3 7 8 -C 7 E C 2 3 7 8 -C 6 B 0 2 3 7 8 -C 5 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.