Fréttablaðið - 02.08.2019, Síða 1

Fréttablaðið - 02.08.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 8 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 GRILLJÓN ástæður til að grilla ... því það yljar í útilegu Mikill meirihluti lands- manna er annaðhvort mjög eða frekar sam- mála því að loftslags- breytingar af manna- völdum séu staðreynd. UMHVERFISMÁL Um 87 prósent eru á því að loftslagsbreytingar af manna- völdum séu staðreynd. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og fréttablaðið.is. „Þetta sýnir ger- breytingu á því að meðvitund fólks er orðin miklu meiri og það er líka búin að vera miklu meiri opinber umræða. Það er auðvitað mjög jákvætt að mínu viti og brýnir stjórnvöld til frekari aðgerða á þessu sviði,“ segir Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra. Alls reyndust rúm 62 prósent mjög sammála því og tæp 25 prósent frek- ar sammála. Rúm átta prósent eru hvorki sammála né ósammála og aðeins tæp fimm prósent eru annað- hvort frekar eða mjög ósammála. Mestu efasemdirnar um að lofts- lagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd er að finna meðal stuðn- ingsmanna Miðflokksins og Flokks fólksins. Um fjórðungur stuðnings- manna Miðf lokksins og rúm 28 prósent stuðningsmanna Flokks fólksins eru frekar eða mjög ósam- mála því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd. Katrín minnir á að stjórnvöld hafi kynnt aðgerðaáætlun í loftslags- málum síðasta haust þannig að hún þyrfti að vera í stöðugri endurskoð- un. „Hún mun auðvitað vera það og með vorinu sáum við aðgerðir fara í gang og fjármagnið fara að vinna. Bæði varðandi orkuskiptin og kol- efnisbindinguna.“ – sar / sjá síðu 4 Litlar efasemdir um loftslagsbreytingar KLAUSTURSMÁLIÐ Álit siðanefndar Alþingis kom Bergþóri Ólasyni, þingmanni Miðflokksins, á óvart en hann telur að Klaustursmálinu sé nú lokið. Hann ræðir í viðtali núning innanflokks, tvískinnung andstæðinga og hafnar því að orku- pakkamálið hafi verið smjörklípa. Bergþór vonaðist til, fram á síðasta dag, að sá angi málsins sem tengdist Albert- ínu Elíasdóttur yrði tekinn út hjá nefnd- inni. „Ég held að karl- menn almennt séu ekki áhugasamir um að ræða uppá- k o m u r s e m þessar.“ – khg / sjá síðu 8 Tekur mest mark á skömmum mömmu sinnar Bergþór Ólason. SKOÐUN „Þú ert að fylgja fordæmi öfgaf lokka í Evrópu og Trumps í Bandaríkjunum. Þetta er langt fyrir neðan virðingu þess Sigmundar Dav- íðs sem kom eins og ferskur blær inn í íslensk stjórnmál fyrir nokkrum árum,“ skrifar Kári Stefánsson í opnu bréfi til Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar, formanns Miðflokksins. Kári rekur baráttu Sigmundar við kröfuhafana, sem hann reyndist sjálfur vera, Klausturs- málið og efasemdir Sigmundar um lofts- lagsbreytingar. Bréfið fjallar að sögn Kára um manninn sem stöð- ugt sé að leita að annarra manna f lísum, sitjandi á eigin bjálka. Sjá síðu 11 Segir Sigmund elta Trump Kári Stefánsson. Veðurblíðan lék enn við höfuðborgarbúa í gær og nýttu sumir tækifærið til að busla í Elliðaánum. Fram undan er mesta ferðahelgi ársins og stefnir víða í fínt veður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 8 7 -5 8 F 8 2 3 8 7 -5 7 B C 2 3 8 7 -5 6 8 0 2 3 8 7 -5 5 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.