Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 14
Ég hélt að hér væru reglulega hittingar, fólk að taka kaffi og að menn væru saman í þessu. Þannig var það víst. Ég lít á líka á hlutverk mitt að breyta þessu. Daníel Geir Moritz FÓTBOLTI „Ég var heima að setja rómantíska gamanmynd í tækið með konunni og var beðinn um að koma á fund, einn, tveir og bingó, í Týsheimilinu. Það var mikill heiður að vera boðið þetta hlutskipti, for- maður knattspyrnuráðs, og ég ákvað að slá til,“ segir Daníel Geir Mortiz. Daníel f lutti til Vestmannaeyja síðasta sumar og kennir í grunn- skólanum. Hann er íþróttaáhuga- mönnum að góðu kunnur fyrir hlut- verk sitt í Innkasti á fótbolta. net og viðtöl á sama miðli sem vöktu iðu- lega athygli. „Ég var trúlega búinn að vera starfsmaður í grunnskól- anum í fimm mínútur þegar það var fyrst komið að máli við mig að koma í knattspyrnuráð. Þá vildi ég ekki taka slaginn. Hugsaði samt að að þarna væri búið að sá fræi. Svo fór ég að segja við þá sem maður var að hitta á förnum vegi að ég gæti nú alveg hugsað mér að koma inn í þetta eftir verslunarmannahelgi því ég var með svo mörg verkefni í sumar. Síðan verður þjálfarabreyt- ing og þá höfðu þeir sem höfðu verið í ráðinu samband og mátu það sem svo að það væri miður að taka ein- hverjar ákvarðanir sem aðrir sem kæmu hugsanlega inn í ráðið yrðu bundnir af. Þeir hringdu í mig og ég var spurður hvort ég hefði áhuga að koma inn sem formaður og það strax.“ Skynsemin sigraði hjartað Frá því Daníel hefur komið inn hefur verið töluvert að frétta úr herbúðum ÍBV. Fyrirliði þeirra, Sindri Snær Magnússon, var seldur til ÍA, markaskorarinn Guðmundur Magnússon fór í Víking Ólafsvík og starfslokasamningar hafa verið gerðir við Alfreð Má Hjaltalín sem hefur verið meiddur í allt sumar og Gilson Correia. Þá er liðið neðst í deildinni með aðeins fimm stig, 12 stigum f r á ör u g g u s æt i . Daníel segir að það sé þó ekki verið að henda inn handklæðinu með því að losa þessa leikmenn. „Alfreð Már bað um að fá að fara. Þetta var farið að setjast á sálina á honum að ge t a ek k i hjálpað liðinu. Hann er góður lei k maðu r og góður drengur og sjálfsagt að verða við því og losa hann. Gilson var bara ekki nógu góður í þessa deild en toppmaður. Gummi Magg var ósáttur og vildi fara. Allt þetta f innst mér vera eðlilegt. Sindri Snær, það hor f i r að e i n s öðruvísi við. Það var alveg ljóst að hann ætlaði sér að nýta uppsagnar- á k v æ ð i ð í s a m n i n g i sí nu m og það voru þrír mánuðir eftir þar til það ákvæði yrði virkt og þá hefði verið óábyrgt að taka ekki þessu tilboði, sem var mjög gott. Okkur langaði ekki að selja hann en stund- um þarf skynsemin að sigra hjartað. Okkur fannst líka jákvætt að þetta er spennandi tilboð fyrir hann. Hann hafði úrslitavaldið og þetta var sett í hendurnar á honum. Það segir ákveðna sögu að hann hafi tekið tilboði ÍA en við s k i l j u m í mesta bróðerni. Hann hefur reynst ÍBV vel síðustu ár og við bindum vonir við að þeir sem eru í liðinu stígi upp og standi saman.“ Leiðinlegt að halda með ÍBV Lítið hefur komið Daníel á óvart þessa daga sem hann hefur verið með puttann á púlsinum. Þó hefur það vakið athygli hjá honum hversu lítil stemning er innan félagsins. „Það kom mér smá á óvart þegar ég f lutti til Eyja og var búinn að búa hérna í eitt ár hvað það var í raun leiðinlegt að halda með ÍBV. Það er í raun þannig að það kemur lítið frá deildunum sjálfum að gera eitthvað skemmtilegt saman. Ein- hver stuðningsmanna- kvöld, karla- og kvenna- kvöld eða árshátíð eða hvað sem er. Einhverjir viðburðir. Það hefur of lítið verið gert en það sem er gert er vel gert. Ég hélt að hér væru reglu- lega hittingar, fólk að taka kaffi og að menn væru saman í þessu. Þann- ig var það víst. Ég lít líka á það sem hlutverk mitt að breyta þessu. Að við sem félag förum að vinna að því að það sé aftur gaman að halda með ÍBV og það sé stemning hjá félaginu. Ég lít svo á að verkefni mitt sé ekki bara fótboltalegs eðlis heldur líka utan vallar.“ Daníel hefur töluverða reynslu af að koma viðburðum af stað og skipulagði franska daga í ár sem heppnuðust vel. Þá er ekki leiðin- legt að vera í kringum Daníel. „Ég geri miklar kröfur til mín á þessu sviði og ég er með þær væntingar að þeir sem eru með mér í þessu finni það að það sé hægt að hafa meiri gleði í þessu. Í gamla daga feng u þessir skemmtilegu Eyjakarakterar að njóta sín og þetta er eitthvað sem mér finnst spennandi að endur- vekja í einhverri mynd.“ Aðspurður um fjárhag deildar- innar segir hann að það sé hlutur sem hann sé ekki kominn inn í að fullu ennþá. Samkvæmt ársreikn- ingi tapaði deildin 10 milljónum króna. Rekstrartekjurnar voru 152 milljónir króna en rekstrargjöldin 162. „Ég hef ekki alveg komist inn í þessa hluti á þessum stutta tíma en við viljum tileinka okkur ábyrgan rekstur. Þess vegna seldum við Sindra til dæmis. ÍBV þarf að greiða meira en önnur lið fyrir ferðalög og ýmislegt annað en ég á eftir að læra betur á það. Ég held samt að það sé auðveldara að reka knattspyrnu- deild þegar það er gaman og meira fjör.“ Þrátt fyrir nánast vonlausa stöðu er Daníel hvergi smeykur og hlakk- ar til komandi verkefna. „Ég hugs- aði þegar ég var beðinn um að koma inn í þetta að þetta eru krefjandi aðstæður í ljósi gengisins. En ég var og er sannfærður um að hvernig sem fer þá stendur maður í haust frammi fyrir skemmtilegum verk- efnum. Ég hef það mikinn áhuga að ég get ekki beðið eftir að horfa í baksýnisspegilinn eftir 10 ár og sjá hvernig hefur gengið. Ég sé fyrir mér að geta verið í þessu lengi og að þetta verði erfitt en skemmtilegt.“ benediktboas@frettabladid.is Vill koma smá fjöri aftur í starf ÍBV Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, segir að Eyjamenn líti alltaf svo á að á meðan það sé möguleiki að bjarga sér frá falli sé vonin til staðar. Hann tók við nýju hlutverki fyrir nokkrum dögum og segist hlakka til komandi verkefna. Eiður Aron, leikmaður Vals, þótti ekki nógu góður til að koma aftur í uppeldisfélag sitt, ÍBV. Síðan sú ákvörðun var tekin hefur lítið gengið upp hjá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 7 -7 6 9 8 2 3 8 7 -7 5 5 C 2 3 8 7 -7 4 2 0 2 3 8 7 -7 2 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.