Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 20
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Þótt liðin séu 55 ár frá því að Winston Churchill safnaðist til feðra sinna hefur hann sjaldan verið jafn fyrirferð-armikill í umræðunni og síðustu misserin. Nýverið hafa sjónvarpsáhorfendur séð hann í túlkun Johns Lithgow í þáttaröðinni Crown á Netflix. Breski stórleikarinn Gary Oldman hreppti Óskarinn fyrir túlkun sína á honum á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni The Darkest Hour. Og nú síðustu daga hefur Boris Johnson, for- sætisráðherra Breta, verið líkt við hann enda skrifaði Boris bók um hann fyrir hálfum áratug þar sem hann fer ekkert í launkofa með aðdáun sína á forvera sínum. Og aðdáun á Churchill er ekki bara bundin við Bretland því víða um heim hittast menn reglulega til að spjalla og fræðast um ævi hans og arf leifð. Á Íslandi er Churchill klúbbur sem hefur verið starfræktur frá 2008. Að sögn Árna Sigurðssonar, formanns klúbbsins, er hann hugsaður sem fræðsluvettvangur um ævi og störf sir Winstons Churchill og þau gildi sem hann hafði í heiðri: Hugrekki, staðfestu, stórlyndi, velvilja og virðingu fyrir lýðræði og frelsi ein- staklingsins. Starfsævin spannaði 70 ár „Þegar Churchill ber á góma hafa f lestir ef laust í huga mynd af lág- vöxnum þéttholda eldri manni með feitan vindil á milli fingranna,“ segir Árni en bætir svo við: „Hins vegar vita færri um langa sögu hans og reynslu áður en hann varð for- sætisráðherra Breta í seinni h e i m s s t y r j - öld. Hann hóf ferilinn sem r idd a r a l ið s- foringi á hest- baki í valda- tíð Viktoríu Bretadrottningar og endaði hann sem forsætisráðherra kjarnorkuveldis þegar hann varð svo forsætisráðherra í seinna skiptið við upphaf valdatíðar Elísabetar núverandi drottningar en hún er langa- langömmubarn Viktoríu. Hann þjónaði sex breskum þjóðhöfðingjum á starfs- ævi sem spannaði rúm 70 ár.“ Árni segir að klúbbinn hluta af alþjóð- lega Churchill félaginu en það heldur árlega Churchill alþjóðaráðstefnu og gefur út ársfjórðungsritið The Finest Hour. Hlutverk klúbbsins sé að halda fundi þegar tilefni gefst til eða þegar áhugaverða fyrirlesara og erlenda gesti ber að garði og hefur verið farið í fræðsluferðir bæði hér innanlands og erlendis. Nú stendur fyrir dyrum að klúbburinn fari á slóðir Churchills í Lundúnum og nágrenni í haust. Skoðunarferð á slóðir Churchills Ferðin stendur yfir frá föstudeginum 11. október og til mánudagskvöldsins 14. október. Þar er hugmyndin að kynn- ast betur manninum Churchill og huga að rótum hans, mótun og persónu. Strax komudaginn verður farið í skoðunarferð um breska þinghúsið. Church ill náði fyrst kjöri sem þingmaður árið 1900, þá aðeins 25 ára að aldri, og sat nær sleitulaust sem þingmaður næstu 64 ár eða lengur en nokkur annar á 20. öld. Þar fetaði hann í fótspor föður síns sem setið hafði sem þing- maður og ráð- herra sem ein helsta von- a r s t j a r n a breskra stjórnmála um skamma hríð áður en hann svo lést langt fyrir aldur fram aðeins 46 ára. Næsta dag, laugardaginn 12. október, verður svo haldið til Blenheim-hallar þar sem Churchill fæddist. Höllin er ættaróðal Marlborough-ættarinnar, þjóðargjöf til fyrsta hertogans Johns Churchill sem var einn fræknasti hers- höfðingi Breta og sambærilegur við þá Nelson og Wellington þótt hann sé minna þekktur í dag. Í Blenheim verður snæddur hádegisverður og farið í skoð- unarferð um höllina áður en gengið verður í gegnum hallargarðana og að gröf Churchills í þorpinu Bladon, stein- snar frá, þar sem lagður verður blóm- sveigur. Sigur var ekki alltaf í sjónmáli Sunnudagurinn 13. október verður svo helgaður aðgerðastöð Churchills í Lundúnum. Hún er á sínum uppruna- lega stað í niðurgröfnum kjallara undir Whitehall-stjórnarbyggingunni sem er eins konar Arnarhvoll þeirra Breta. Þar er nú líka viðamikið safn um Churchill og forystuhlutverk hans í seinni heims- styrjöldinni. Aðgerðastöðin var tekin í notkun viku fyrir stríðsyfirlýsingu Breta gegn Þjóðverjum 1939 og allt fram að uppgjöf Japana í ágúst 1945. Sveitasetrið sælureitur Churchills Síðasti dagur ferðarinnar verður svo helgaður sælureit Churchills í sveit- inni, Chartwell, sveitasetri hans í Kent rétt suðaustan við Lundúnir. Þar þótti honum best að vera enda umkringdur fjölskyldu, náttúru og dýralífi. Þar gat hann slakað á og skrifað til að hafa í sig og á enda hæstlaunaði penni Bretlands á fjórða áratugnum. Hann átti engan ættarauð en bar sig ætíð ríkmannlega og þurfti að fjármagna lífsstíl sinn með linnulausum bóka- og greinaskrifum. Síðan verður haldið heimleiðis til Íslands með kvöldf lugi. Allar frekari upplýsingar um ferðina er að finna á Facebook-síðu Churchill klúbbsins. david@frettbladid.is Winston Churchill sjaldan fyrirferðarmeiri Churchill klúbburinn á Íslandi, sem er fræðsluvettvangur um ævi og störf Winstons Churchill, skipuleggur haustferð á slóðir Churchills í Lundúnum og nágrenni. Árni Sigurðsson, formaður Churchill klúbbsins, er að skipuleggja haustferð á slóðir Churchills í Lundúnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Winston Churchill. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður, lést miðvikudaginn 31. júlí. Útför fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. ágúst kl. 13.00. Benta Briem Ólafur Jón Briem Sóley Jóhannsdóttir Garðar Briem Elín Magnúsdóttir Gunnlaugur Briem Hanna Björg Marteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Baldvin Tryggvason fyrrverandi sparisjóðsstjóri, lést að kvöldi 29. júlí. Halldóra J. Rafnar Sveinbjörn I. Baldvinsson Jóna Finnsdóttir Tryggvi M. Baldvinsson Vilborg R. Einarsdóttir Jónas Fr. Jónsson Lilja Dóra Halldórsdóttir Magnús Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðni Gústafsson, Víkurbraut 10 (Vorhús), Grindavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27. júlí. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan 14. Ingi Torfi Sigurðsson Helga Eysteinsdóttir Brynjólfur V. Sigurðsson Loida Lapuz Sigurdsson Guðbjörg Ólína Guðnadóttir Anna Lára Guðnadóttir Baldvin Orri Þorkelsson barnabörn og langafabörn. Okkar yndislegi sonur, bróðir, mágur, frændi, barnabarn og barnabarnabarn, Steinar Páll Ingólfsson Lóuhrauni 1, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 6. ágúst kl. 13.00. Sif Jóhannesdóttir Ingólfur Arnarson Þorbjörg Hekla Ingólfsdóttir Sigurður G. Sigurðsson Jón Örn Ingólfsson Helgi Valur Ingólfsson Birkir Sigurðsson Margrét Helga Eiríksdóttir Örn Isebarn Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Guðmundsdóttir Hæðargarði 35, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 28. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Jónas Bjarnason Lilja Jónasdóttir Stefán Atli Halldórsson Gunnar Örn Jónasson Sigrún Jónasdóttir Óskar Jónasson barnabörn og barnabarnabörn. 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 8 7 -7 B 8 8 2 3 8 7 -7 A 4 C 2 3 8 7 -7 9 1 0 2 3 8 7 -7 7 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.