Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 14
Ég hélt að hér væru
reglulega hittingar,
fólk að taka kaffi og að
menn væru saman í þessu.
Þannig var
það víst.
Ég lít á líka á
hlutverk mitt
að breyta
þessu.
Daníel Geir Moritz
FÓTBOLTI „Ég var heima að setja
rómantíska gamanmynd í tækið
með konunni og var beðinn um að
koma á fund, einn, tveir og bingó, í
Týsheimilinu. Það var mikill heiður
að vera boðið þetta hlutskipti, for-
maður knattspyrnuráðs, og ég
ákvað að slá til,“ segir Daníel Geir
Mortiz.
Daníel f lutti til Vestmannaeyja
síðasta sumar og kennir í grunn-
skólanum. Hann er íþróttaáhuga-
mönnum að góðu kunnur fyrir hlut-
verk sitt í Innkasti á fótbolta. net og
viðtöl á sama miðli sem vöktu iðu-
lega athygli. „Ég var trúlega búinn
að vera starfsmaður í grunnskól-
anum í fimm mínútur þegar það
var fyrst komið að máli við mig að
koma í knattspyrnuráð. Þá vildi ég
ekki taka slaginn. Hugsaði samt að
að þarna væri búið að sá fræi. Svo
fór ég að segja við þá sem maður var
að hitta á förnum vegi að ég gæti
nú alveg hugsað mér að koma inn
í þetta eftir verslunarmannahelgi
því ég var með svo mörg verkefni í
sumar. Síðan verður þjálfarabreyt-
ing og þá höfðu þeir sem höfðu verið
í ráðinu samband og mátu það sem
svo að það væri miður að taka ein-
hverjar ákvarðanir sem aðrir sem
kæmu hugsanlega inn í ráðið yrðu
bundnir af. Þeir hringdu í mig og ég
var spurður hvort ég hefði áhuga
að koma inn sem formaður og það
strax.“
Skynsemin sigraði hjartað
Frá því Daníel hefur komið inn
hefur verið töluvert að frétta úr
herbúðum ÍBV. Fyrirliði þeirra,
Sindri Snær Magnússon, var seldur
til ÍA, markaskorarinn Guðmundur
Magnússon fór í Víking Ólafsvík og
starfslokasamningar hafa verið
gerðir við Alfreð Má Hjaltalín sem
hefur verið meiddur í allt sumar
og Gilson Correia. Þá er liðið neðst
í deildinni með aðeins
fimm stig, 12 stigum
f r á ör u g g u s æt i .
Daníel segir að það sé
þó ekki verið að henda
inn handklæðinu með því
að losa þessa leikmenn.
„Alfreð Már bað um
að fá að fara. Þetta
var farið að setjast
á sálina á honum
að ge t a ek k i
hjálpað liðinu.
Hann er góður
lei k maðu r og
góður drengur
og sjálfsagt að
verða við því og
losa hann. Gilson
var bara ekki nógu
góður í þessa deild
en toppmaður.
Gummi Magg var
ósáttur og vildi fara.
Allt þetta f innst
mér vera eðlilegt.
Sindri Snær, það
hor f i r að e i n s
öðruvísi við. Það
var alveg ljóst að
hann ætlaði sér að
nýta uppsagnar-
á k v æ ð i ð í
s a m n i n g i
sí nu m og
það voru þrír mánuðir eftir þar til
það ákvæði yrði virkt og þá hefði
verið óábyrgt að taka ekki þessu
tilboði, sem var mjög gott. Okkur
langaði ekki að selja hann en stund-
um þarf skynsemin að sigra hjartað.
Okkur fannst líka jákvætt að
þetta er spennandi tilboð fyrir
hann. Hann hafði úrslitavaldið og
þetta var sett í hendurnar á honum.
Það segir ákveðna sögu að hann
hafi tekið tilboði ÍA en við
s k i l j u m
í mesta bróðerni. Hann
hefur reynst ÍBV vel síðustu
ár og við bindum vonir við að
þeir sem eru í liðinu stígi upp
og standi saman.“
Leiðinlegt að halda með
ÍBV
Lítið hefur komið Daníel á
óvart þessa daga sem hann
hefur verið með puttann
á púlsinum. Þó hefur það
vakið athygli hjá honum
hversu lítil stemning er
innan félagsins. „Það kom
mér smá á óvart þegar ég
f lutti til Eyja og var búinn
að búa hérna í eitt ár hvað
það var í raun leiðinlegt
að halda með ÍBV. Það
er í raun þannig að það
kemur lítið frá deildunum
sjálfum að gera eitthvað
skemmtilegt saman. Ein-
hver stuðningsmanna-
kvöld, karla- og kvenna-
kvöld eða árshátíð eða hvað sem
er. Einhverjir viðburðir. Það hefur
of lítið verið gert en það sem er gert
er vel gert. Ég hélt að hér væru reglu-
lega hittingar, fólk að taka kaffi og
að menn væru saman í þessu. Þann-
ig var það víst.
Ég lít líka á það sem hlutverk
mitt að breyta þessu. Að við sem
félag förum að vinna að því að það
sé aftur gaman að halda með ÍBV og
það sé stemning hjá félaginu. Ég lít
svo á að verkefni mitt sé ekki bara
fótboltalegs eðlis heldur líka utan
vallar.“
Daníel hefur töluverða reynslu
af að koma viðburðum af stað og
skipulagði franska daga í ár sem
heppnuðust vel. Þá er ekki leiðin-
legt að vera í kringum Daníel. „Ég
geri miklar kröfur til mín á þessu
sviði og ég er með þær væntingar að
þeir sem eru með mér í þessu finni
það að það sé hægt að hafa meiri
gleði í þessu.
Í gamla daga feng u þessir
skemmtilegu Eyjakarakterar að
njóta sín og þetta er eitthvað sem
mér finnst spennandi að endur-
vekja í einhverri mynd.“
Aðspurður um fjárhag deildar-
innar segir hann að það sé hlutur
sem hann sé ekki kominn inn í að
fullu ennþá. Samkvæmt ársreikn-
ingi tapaði deildin 10 milljónum
króna. Rekstrartekjurnar voru 152
milljónir króna en rekstrargjöldin
162. „Ég hef ekki alveg komist inn í
þessa hluti á þessum stutta tíma en
við viljum tileinka okkur ábyrgan
rekstur. Þess vegna seldum við
Sindra til dæmis. ÍBV þarf að greiða
meira en önnur lið fyrir ferðalög og
ýmislegt annað en ég á eftir að læra
betur á það. Ég held samt að það sé
auðveldara að reka knattspyrnu-
deild þegar það er gaman og meira
fjör.“
Þrátt fyrir nánast vonlausa stöðu
er Daníel hvergi smeykur og hlakk-
ar til komandi verkefna. „Ég hugs-
aði þegar ég var beðinn um að koma
inn í þetta að þetta eru krefjandi
aðstæður í ljósi gengisins. En ég var
og er sannfærður um að hvernig
sem fer þá stendur maður í haust
frammi fyrir skemmtilegum verk-
efnum. Ég hef það mikinn áhuga
að ég get ekki beðið eftir að horfa
í baksýnisspegilinn eftir 10 ár og
sjá hvernig hefur gengið. Ég sé fyrir
mér að geta verið í þessu lengi og að
þetta verði erfitt en skemmtilegt.“
benediktboas@frettabladid.is
Vill koma smá fjöri aftur í starf ÍBV
Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, segir að Eyjamenn líti alltaf svo á að á meðan það sé möguleiki að bjarga
sér frá falli sé vonin til staðar. Hann tók við nýju hlutverki fyrir nokkrum dögum og segist hlakka til komandi verkefna.
Eiður Aron, leikmaður Vals, þótti ekki nógu góður til að koma aftur í uppeldisfélag sitt, ÍBV. Síðan sú ákvörðun var tekin hefur lítið gengið upp hjá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
7
-7
6
9
8
2
3
8
7
-7
5
5
C
2
3
8
7
-7
4
2
0
2
3
8
7
-7
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K