Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 16

Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 16
Laufey lætur sér ekki duga að ganga yfir Ísland, hún heim-sótti Nepal síðastliðið haust og gekk upp í grunnbúðir Everest. Stefnan er sett á aðra slíka ferð á næsta ári. Þá hefur hún gengið um fjöll á Korsíku, Ítalíu og Spáni. Laufey hefur tvisvar gengið þvert yfir Ísland, síðast frá Hvalnesvita yfir hálendið að Jökulsá á Fjöllum. Laufey er sömuleiðis öflugur áhugaljósmyndari en myndir hennar hafa vakið mikla athygli á Instagram og Flickr. Nokkrar mynda hennar hafa verið notaðar á vef umhverfisráðuneytisins. Þessi ofurkona er líka amma átta barna og var á leið í sjósund með einu barnanna sem er í heim- sókn frá Danmörku. Góður félagsskapur Laufey segist ekki hafa stundað íþróttir þegar hún var yngri en náttúran og úti- vistin hafi alltaf skipt miklu máli hjá henni. „Svo er sjósundið nýjasta áhugamálið,“ segir hún. „Á einni viku er ég búin að synda 5 km. Ég syndi í Naut- hólsvík, yfir Fossvog- inn og til baka. Einnig hef ég ásamt nokkrum öðrum sundgörpum synt við Gróttu, Guðlaugu á Akra- nesi og á Reykjanesi. Þetta er einstaklega skemmtilegur félags- skapur og við getum spjallað um Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@ frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Í Nepal. Laufey stendur á fjallinu Goyko Ri (5.357 m) og horfir niður á þorpið við Goyko-vatn. Everest í skýjunum lengst til vinstri. Skriðjökullinn Ngozumpa hefur gert þessa ruðninga þar sem þorpið stendur. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Hér er Laufey á Hengilssvæðinu og virðir fyrir sér landslagið. heima og geima,“ segir hún. „Mér líður mjög vel eftir sundið, það minnkar bólgur í líkamanum og er sérlega hressandi. Þótt ég hafi alla tíð verið úti- vistarkona hef ég aukið göngurnar eftir því sem ég eldist. Fjöllin laða mig að sér eins og sjórinn. Svo er einstaklega notalegt að vera úti undir beru lofti. Það er gott að njóta náttúrunnar og hún hefur góð áhrif á líðan manns. Einnig finnst mér fólk sem gengur með mér sérstaklega jákvætt og gefandi á allan hátt. Á löngum göngum yfir landið þarf fólk að standa saman og það myndast mjög skemmtilegur andi í ferðunum. Ég fer með gönguhópum en oftast með vinum, en ég geng líka ein á fjöll,“ segir hún. Tvisvar gengið yfir landið Laufey gekk yfir landið 2013-2015 frá Reykjanestá að Fonti á Langa- nesi. „Árið 2016 fór ganga af stað sem nefnist Horn í Horn en báðar þess- ar göngur eru á vegum Útivistar. Seinni gangan hófst austan við Hornafjörð og endaði á Hornbjargi fyrir vestan. Sú ganga kláraðist fyrir mánuði. Það voru ansi töff níu dagar í allt, þar af fimm dagar með allt á bakinu,“ segir hún. „Það getur verið erfitt að fara upp og niður fjöllin með mikinn þunga á bakinu. Þetta hafðist þó með reglulegri hvíld á leiðinni. Við sváfum í tjöldum utan eina nótt,“ útskýrir hún og bætir við að henni finnist best að ganga á millistífum gönguskóm sem halda vel um ökklana. „Á Korsíku gengum við 180 kílómetra upp og niður fjöllin og mér fannst best að ganga í milli- stífum skóm.“ Næsta ferð skipulögð Laufey segir að sig langi til að ganga á Grænlandi og að sú ferð verði einhvern tíma farin. Nepal er þó næst á dagskrá. „Við ætlum að ganga á öðrum stað í Nepal heldur en í síðustu ferð. Þetta svæði var lokað en var opnað fyrir erlendum ferðamönnum árið 1997. Í fyrra fórum við aðra leið en f lestir gera, gengum að vatni sem heitir Gokyo Lake. Við þurftum að fara upp skarð sem er í 5.420 metra hæð til að komast á hina hefðbundnu leið upp að grunnbúðum Everest. Hópurinn tók því smá vinstri beygju. Lands- lagið á þessum slóðum var stór- kostlegt og ferðin ógleymanleg. Maður var varla lentur hér heima þegar byrjað var að plana næstu ferð.“ Laufey segir að þótt fjöllin í Nepal hafi verið ómótstæðileg sé miðhálendi Íslands ekki síðra. Það sé eitt uppáhaldssvæðið hennar. „Maður sér alltaf eitthvað nýtt í hverri ferð. Veðrið er líka svo breytilegt og maður upplifir nátt- úruna í mismunandi blæbrigðum. Ég finn alltaf eitthvað skemmtilegt að skoða á leiðinni og ljósmynda. Svæðið í kringum Trölladyngju er líka mjög áhugavert og gaman að ganga þar. Trölladyngja er í Ódáðahrauni en þar sér maður margar myndir í landslaginu. Einnig get ég nefnt Vonarskarð á miðhálendinu. Mjög fallegt þar. Lónsöræfin eru sömuleiðis stórkostlegt svæði,“ segir Laufey sem ætlar þó að vera heima um verslunarmannahelgina. „Ég skelli mér bara í sjóinn. Ætli megi ekki segja að ég sé upptekin amma, alltaf úti að leika mér. Mér leiðist heldur aldrei.“ Það má skoða myndir Laufeyjar á https://www.flickr.com/photos/ laufey_gs/albums Þessi er tekin nálægt Öskju uppi á hálendinu í sandstormi.  Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum. Virkar vel gegn þynnku 2 töflur fyrir fyrsta drykk 2 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana www.artasan.is Morgundagurinn verður betri með After Party Náttúruleg lausn við timburmönnum Á hálendinu. Þessi mynd sýnir vel auðnina á þessum slóðum. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 7 -6 2 D 8 2 3 8 7 -6 1 9 C 2 3 8 7 -6 0 6 0 2 3 8 7 -5 F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.