Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 24

Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 24
F imm listamenn sýna í Stofunni Duus Safna-húsum í Reykjanesbæ. List a mennir nir er u : Anna Halin, Leifur Ýmir Eyjólfsson, Helgi Þor- gils, Olga Bergmann og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Umsjónarmenn verk- efnisins eru Valgerður Guðlaugs- dóttir og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Sýningin stendur til 18. ágúst. „Við buðum þessum fimm lista- mönnum að vinna með upplif- anir sínar af Suðurnesjum í gamla félagsheimilinu í Höfnum sem við fengum afnot af. Þar var opin vinnustofa og áhersla var lögð á að verkin yrðu unnin á pappír. Afraksturinn er þessi sýning,“ segir Helgi. Esjan á silkiþrykk „Verkin eru mjög ólík enda hópur- inn breiður. Leifur Ýmir er frekar ungur í listinni og svo erum við með Helga Þorgils sem hefur fengist við list sína í áratugi. Lista- mennirnir eru líka með ólík efnis- tök,“ segir Valgerður. Leifur hlaut hvatningarverð- laun ársins 2019 fyrir sýninguna Handrit í D-sal Hafnarhússins. Hann sýnir fínlegar grafíkmyndir af fuglabungum og silkiþrykks- mynd þar sem nafnið Esjan er skrifað. „Hann býr í Reykjavík og Esjan er heimafjallið hans og getur sömuleiðis verið heimafjallið hér. Skriftin í verkinu er eins og fjall- lendi. Leifur sagðist vera búinn að vera heilt ár að reyna að ná réttu skriftinni og náði henni meðan hann var hér,“ segir Valgerður. Verk úr vísareikningum Helgi Þorgils sýnir kolateikningar af höfninni og í myndaröð hans er einnig að finna tvær teikningar af sýningarstjórunum, Valgerði og Helga. „Hann hefur komið oft til okkar og núna sat hann úti og teiknaði,“ segir Valgerður. Rósa Sigrún Jónsdóttir sýnir vatnslitamyndir og vídeó. „Hún er listamaður sem fer út í náttúruna og vinnur í því smágerða og saumar jafnvel í verkin. Vídeóið sýnir nær- myndir af þessum þrívíðu verkum hennar,“ segir Helgi. Olga Bergmann á skemmtileg verk á sýningunni sem eru búin til úr pappamassa, þar á meðal fram- talsgögnum og vísareikningum. Anna Halin sýnir loftmyndir sem gerðar eru með bleki, vatnslitum og akrýl. „Hún er mikið að velta fyrir sér f lugumferðinni, mannvirkjum og leiðum í loftinu yfir okkur,“ segir Helgi. Menningarlíf utan höfuðborgar Valgerður og Helgi hafa unnið ötul- lega að því að halda uppi menn- ingu í Reykjanesbæ og svæðinu þar í kring. „Við búum í Höfnum sem eru hluti af Reykjanesbæ. Við erum ásamt f leira fólki að leitast við að sýna að það sé menningar- líf fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Það gengur ágætlega. Við fáum listafólk til okkar og oft kemur fólk sem hefur búið á svæðinu og vill upplifa svæðið sitt aftur í gegnum það sem við erum að gera og finnst kærkomið að koma aftur,“ segir Valgerður. VIÐ ERUM ÁSAMT FLEIRA FÓLKI AÐ LEITAST VIÐ AÐ SÝNA AÐ ÞAÐ SÉ MENNINGARLÍF FYRIR UTAN HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Valgerður Guðlaugsdóttir eru umsjónarmenn verkefnisins.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Esjan eftir Leif Ými Eyjólfsson. Skriftin í verkinu er eins og fjalllendi. Þetta verk Olgu er búið til úr fram- talsgögnum og vísareikningum. Upplifanir af Suðurnesjum Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Anna Halin, Leifur Ýmir Eyjólfsson, Helgi Þorgils, Olga Bergmann og Rósa Sigrún Jóns- dóttir sýna verk sín í Reykjanesbæ. Breiður hópur með ólík verk, segja umsjónarmenn verkefnisins. Líf og fjör í Akureyrarkirkju í kvöld. Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 2. ÁGÚST 2019 Viðburðir Hvað? Óskalagatónleikarnir 2019 Hvenær? 20.00 Hvar? Akureyrarkirkja Óskar Pétursson söngvari, Eyþór Ingi Jónsson organisti og sál- fræðingurinn Hjalti Jónsson flytja uppáhaldslög gesta. Miðaverð er 3.000 kr. og forsala er á tix.is. Hvað? Harmonikuhátíðin Nú er lag Hvenær? 21.00 Hvar? Borg í Grímsnesi Dansleikir föstudag, laugardag og sunnudag. Hvað? Myndlistarsýning Hvenær? 17.00 Hvar? Kompan Alþýðuhúsinu á Siglufirði Magnús Helgason opnar sýningu sem ber yfirskriftina Kaliforníu- rúllur Magnúsar. Hvað? Lífið í litum Hvenær? 14.00 Hvar? Deiglan, Akureyri. Nedelja Marijan opnar sýningu. Sýningin Lítils háttar væta – Stafræn öld vatnsberans verður opnuð næstkomandi laugardag, 3. ágúst, í Verksmiðj- unni á Hjalteyri Þar sýna listamennirnir Bryn- dís Hrönn Ragnarsdóttir, Eygló Harðardóttir, Geirþrúður Finn- bogadóttir Hjörvar, Lee Lorenzo Lynch, Dan deMarre, Ólöf Helga Helgadóttir, Páll Haukur Björns- son, Pétur Már Gunnarsson og Þorbjörg Jónsdóttir. Sýningarstjóri er Erin Honey- cutt. Á sýningunni eru könnuð samskipti vatns sem myndhverf- ingar undirmeðvitundarinnar og f læðis stafrænna upplýsinga sem nútíma samfélag byggir á og minnir á að upplýsingar eru grundvöllur konseptlistar. Sýningin stendur til 8. septem- ber. Lítils háttar væta Sýningin verður opnuð um helgina í Verksmiðjunni á Hjalteyri. 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 8 7 -6 2 D 8 2 3 8 7 -6 1 9 C 2 3 8 7 -6 0 6 0 2 3 8 7 -5 F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.