Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 36
Opið virka daga
kl. 11:00 - 22:00
Helgar
kl. 16:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.790 kr.*
KJÚKLINGUR Í ANANASSÓSU
SVÍNAKJÖT Í KUNG PAOSÓSU
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI
*tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum.
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
Límónaði er dásamlega frískandi sumardrykkur. Hér er uppskrift sem er að allra
skapi. Hún er í senn sæt og smá súr
og svalar vel í sumarhitanum.
Setjið ⅓ bolla sykurs og ⅓ bolla
vatns saman í pott og hitið yfir
meðalhita í 5 til 10 mínútur eða
þar til vökvinn er orðinn að glæru
sírópi. Takið til stóra könnu og
hellið í hana sírópinu saman við
hálfan bolla af límónusafa, fullt
af skornum jarðarberjum, 20
mintulauf og tvo bolla af köldu
vatni. Kælið í ísskáp í tvo til þrjá
tíma, berið þá fram og njótið. Upp-
skriftin passar fyrir tvo.
Svalandi
sumarlímónaði
Hlín Hólm, deildarstjóri flug-leiðsögudeildar Samgöngu-stofu, var kosin formaður
stýrihóps flugleiðsögu á Norður-
Atlantshafi (North Atlantic System
Planning Group, NAT SPG) til næstu
fjögurra ára á fundi Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar (ICAO) í París
í gær.
Hlín er fyrsta konan sem gegnir
stöðu formennsku í hópnum en hún
tekur við af Ásgeiri Pálssyni fram-
kvæmdastjóra flugleiðsögusviðs
Isavia sem gegnt hefur formennsku
undanfarin 20 ár.
Hlutverk NAT SPG er að annast
eftirlit með gæðum flugleiðsögu-
þjónustu innan NAT-svæðis ICAO,
en svæðið spannar loftrýmið yfir
Atlantshafinu frá norðurpól að 45
gráðum norðlægrar breiddar. Einnig
stýrir NAT SPG innleiðingu nýrrar
tækni, vinnuaðferða og staðla fyrir
flugleiðsögu.
Aðildarríki NAT SPG eru Banda-
ríkin, Kanada, Ísland, Noregur, Dan-
mörk, Stóra-Bretland, Írland, Frakk-
land og Portúgal. Auk þeirra taka
þátt fulltrúar frá IATA (alþjóðasam-
tökum flugfélaga), IBAC (alþjóða-
samtökum flugrekenda einkavéla),
IFALPA (alþjóðasamtök flugmanna),
IFATCA (alþjóðasamtökum flugum-
ferðastjóra) og INMARSAT (veitanda
gervihnattaþjónustu).
Hlín Hólm er deildarstjóri flug-
leiðsögudeildar Samgöngustofu.
Samgöngustofa ber ábyrgð á skipu-
lagi loftrýmisins í lofthelgi Íslands og
því loftrými sem Ísland ber ábyrgð á.
Einnig veitir Samgöngustofa starfs-
leyfi vegna flugleiðsöguþjónustu og
rekstrarstjórnunar flugumferðar
og hefur eftirlit með veitingu slíkrar
þjónustu. Þessum verkefnum sinnir
SGS í nánu samstarfi með starfs-
leyfishöfum, Isavia og Veðurstofu
Íslands, sem og hagsmunaaðilum.
Hlín Hólm tekur
við af Ásgeiri
Tónlistarkonan Siggy eða Sigurborg Sigurjónsdóttir hefur gefið út sitt fyrsta lag
sem kallast Never did I. Siggy er 24
ára lagahöfundur og söngkona og er
fædd og uppalin í Los Angeles. Hún
vann lagið fyrst ásamt Arnari Inga
Ingasyni á Íslandi en lokavinnslan
fór fram í LA undir stjórn Printz
Board sem er þekktastur fyrir vinnu
sína með hljómsveitinni Black Eyed
Peas, DJ Mustard, CeeLo Green,
Mark Ronson, og John Legend.
Ásamt laginu kemur út mynd-
band sem leikstýrt er af Önnu
Maggý.
„Lagið Never did I er innblásið
af þeirri tilfinningu sem ég held að
við upplifum öll einhvern tímann
á lífsleiðinni. Þegar við áttum
okkur á því að einhver sem áður var
ókunnur stendur okkur nú næst,
einhver sem við eitt sinn áttum leið
hjá er núna okkar heittelskaði, hve
ástin er óútreiknanleg og ótrú-
legustu einstaklingar eru orðnir
þér mikilvægastir,“ segir hún. „Ég
vann með nokkrum manneskjum
í þessu lagi, fyrst með Young
Nazareth, ungum og hæfileika-
ríkum pródúsent frá Íslandi, hann
samdi taktinn. Printz Board, sem
er mjög reyndur pródúser í Los
Angeles, hjálpaði við að binda þetta
allt saman. Við bjuggum saman til
þetta lag sem ég vona að fólk njóti
og fái það til þess að muna eftir
þeim sem þau vissu aldrei að þau
myndu elska en gerðu samt, og
að hugsa til þess að þú vitir aldrei
hvaða fólki þú munt mæta á lífs-
leiðinni.“
Ungstirni gefur út lag í samstarfi við pródúser Black Eyed Peas
Límónaði er sumarlegur drykkur.
Hlín er fyrsta konan til að
gegna formannsstöðu.
Siggy er 24 ára lagahöfundur.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
8
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
2
-C
6
9
4
2
3
5
2
-C
5
5
8
2
3
5
2
-C
4
1
C
2
3
5
2
-C
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K