Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 8
Ásgeir Brynjar Torfason Jón Gunnar Jónsson Vilhjálmur Bjarnason Gunnar Haraldsson Gylfi Arnbjörns- son Katrín Ólafsdóttir Sturla Pálsson Sigurður Hannes- son Arnór Sighvats- son Ásgeir Jónsson Gylfi Magnússon Jón Daníels- son Hæfir: Vel hæfir: Mjög vel hæfir: STJÓRNSÝSLA Umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra telja veru- lega vankanta á málsmeðferð nefndarinnar sem hafði umsjón með hæfismati á umsækjendum. Fréttablaðið hefur staðfestar heim- ildir fyrir því að minnst sjö af þeim átta umsækjendum sem ekki voru metnir mjög vel hæfir, hafi andmælt matinu. Á meðal rökstuðningsins sem þeir leggja fram er að nefndin hafi ekki gætt jafnræðis umsækj- enda, ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni í skilningi stjórnsýslulaga og ekki framkvæmt heildstæðan samanburð á umsækjendum. Hæfisnefnd um skipun seðla- bankastjóra komst að þeirri niður- stöðu að fjórir umsækjendur stæðu öðrum framar og teldust mjög vel hæfir til að gegna embættinu. Þeir eru Arnór Sighvatsson, Ásgeir Jónsson, Gylfi Magnússon og Jón Daníelsson. Enn fremur var niðurstaða nefnd- arinnar að Gunnar Haraldsson, Gylfi Arnbjörnsson, Katrín Ólafs- dóttir, Sturla Pálsson og Sigurður Hannesson væru vel hæf til að gegna embættinu. Þá voru Ásgeir Brynjar Torfason, Jón Gunnar Jónsson og Vilhjálmur Bjarnason taldir hæfir. Skila þurfti andmælum í síðasta lagi miðvikudaginn 19. júní. Umsækjendur sem Fréttablaðið ræddi við furða sig á því að nefndin hafi ekki tekið til greina þær veiga- miklu breytingar sem fyrirhugaðar eru með sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Það eitt og sér sé verulegur ágalli á hæfnis matinu enda ljóst að eðli starfsins muni breytast töluvert og krefjast meiri stjórnunarhæfileika en það hefur áður gert. Því megi velta fyrir sér hvort mark sé takandi á hæfnismatinu. Sumir fengu tvö tækifæri Nefndin ákvað að bjóða umsækj- endunum tólf að mæta í viðtal. Eftir þau viðtöl var það niðurstaða nefndarinnar að ræða aftur við umsækjendurna Arnór Sighvatsson, Ásgeir Jónsson, Gylfa Magnússon, Jón Daníelsson og Katrínu Ólafs- dóttur. Í seinni umferð viðtala voru umsækjendur spurðir nánar út í stjórnunarhæfileika, umfang mannaforráða undanfarin ár, stjórnunarstíl og hvernig sú reynsla gæti nýst þeim í starfi seðlabanka- stjóra. Þessir hæfnisþættir voru lítið sem ekkert ræddir í fyrstu umferð- inni. Þeir sem ekki voru boðaðir í annað viðtal telja að nefndin hafi brotið jafnræðisregluna með því að haga málum með þessum hætti. Þannig hafi þeir til að mynda ekki fengið tækifæri til að varpa ljósi á stjórnunarhæfileika sína sem verða veigamikill þáttur í starfi seðlabankastjóra þegar samein- ingin við Fjármálaeftirlitið gengur í gegn. Nefndin hafi því ekki gert heildstæðan samanburð á umsækj- endum. Umsækjendur furðuðu sig á því hvernig nefndin framkvæmdi matið. Matið var að hluta byggt á starfsferilskrám umsækjenda en nefndin mun hafa tekið þær gildar án þess að rannsaka frekar hvað lægi á bak við og hvort fyrri störf hefðu í raun krafist stjórnunar- hæfileika. Nefndin hefði ekki farið í saumana á fullyrðingum og því hefðu umsækjendur í raun getað, eins og einn orðaði það, sagt hvað sem er um sjálfa sig. Þá töldu sumir að nefndin hefði lagt huglægt og óskiljanlegt mat á stjórnunarhæfileika þar sem seta í stjórn fyrirtækja eða stofnana var metin ofar því að gegna stöðu fram- kvæmdastjóra til margra ára eða að leiða viðamikil verkefni farsællega til lykta. Nokkrir höfðu orð á því að vinnubrögð af þessu tagi sæjust ekki þegar seðlabankastjórar eru skipaðir erlendis. Viðbótarskilyrði án stoða Einn umsækjandi vakti athygli á því að nefndin hefði sett viðbótarskil- yrði sem átti sér enga stoð en lögum samkvæmt skal seðlabankastjóri hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum. Þrátt fyrir doktorspróf umsækjanda í tengdri grein var hann færður niður í f lokk- inn vel hæfur með þeirri röksemd að prófið væri „án áherslu á lög- bundið verksvið SÍ“. Velti hann upp þeirri spurningu hvort Már Guðmundsson, núverandi seðla- bankastjóri, sem er ekki með dokt- orspróf, hefði verið flokkaður mjög vel hæfur í þessu hæfismati. Eins og Fréttablaðið hafði áður greint frá bárust forsætisráðu- neytinu kvartanir frá umsækj- endum vegna skipunar Sigríðar Benediktsdóttur, hagfræðings við Yale-háskóla og bankaráðsmanns í Landsbankanum, sem formanns þriggja manna hæfisnefndar sem á að meta hæfi þeirra sem sóttu um embættið. Gagnrýnt var að Sigríður leiddi hæfisnefndina á sama tíma og hún væri í bankaráði Landsbankans enda eigi bankinn, sem stærsti við- skiptavinur Seðlabanka Íslands, verulegra hagsmuna að gæta sem snýr að ýmsum ákvörðunum Seðla- bankans. hordur@frettabladid.is thorsteinn@frettabladid.is Verulegir vankantar á hæfnismatinu Minnst sjö umsækjendur hafa andmælt mati hæfisnefndar um skipun seðlabankastjóra. Furða sig á því að matið taki ekki til greina sameiningu Seðlabankans og FME þar sem starfið krefjist meiri stjórnunarhæfileika en áður. Jafnræðisreglan hafi verið brotin. Katrin Jakobsdóttir forsætisráðherra mun taka endanlega ákvörðun um ráðningu seðlabankastjóra í júlímánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI n Telur forsætisráðuneytið umsögn nefndarinnar um hæfni umsækjenda vera fullnægjandi við val á næsta seðlabankastjóra? n Hefur ráðherra til skoðunar að ráðast í sjálfstæða rannsókn á hæfni umsækjenda þar sem tekið verður tillit til boðaðrar sameiningar Seðlabankans og FME? Allir komu vel fyrir Í skipunarbréfi nefndarinnar var mælt fyrir um að nefndin skyldi við mat á hæfni umsækjenda einnig hafa hliðsjón af hæfni í mannlegum samskiptum. Í drögum að hæfnismatinu , sem Fréttablaðið hefur undir hönd- um, kemur fram að einkum hafi verið stuðst við viðtöl nefndar- manna við umsækjendur við mat á þessum þætti. „Í viðtölunum komu allir umsækjendur vel fyrir og er á grundvelli þeirra ekki forsenda til að gera upp á milli þeirra með hliðsjón af þessum efnisþætti,“ segir í drögunum. Samkvæmt þessu virðist sem nefndin hafi ekki rannsakað nánar hæfni umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra, sem mun leiða sameiningu Seðla- bankans og Fjármálaeftirlitsins, í mannlegum samskiptum. Þar sem allir umsækjendur þóttu koma vel fyrir hafði þessi hæfnisþáttur ekki áhrif á niður- stöðu matsins. Betra að sitja í stjórn en framkvæmdastjórn Nefndin lagði meðal annars mat á starfsreynslu en samkvæmt lögum þarf seðlabankastjóri að búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Í umfjöllun nefndarinar, svo dæmi sé tekið, kemur fram að Jón Gunnar Jónsson, sem hefur gegnt embætti forstjóra Banka- sýslu ríkisins frá árinu 2012 og starfaði áður í 16 ár hjá Merril Lynch, sé hæfur. Nefndin metur Vilhjálm Bjarnason vel hæfan og telur honum til tekna að hafa starfað sem útibússtjóri, verðbréfa- miðlari, kennari, sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og Hagstofu Íslands, og átt sæti í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Auk þess sitji hann í stjórn Bankasýslu ríkisins. Gunnar Haraldsson er einnig metinn vel hæfur en hann var forstöðumaður Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands á árunum 2007 til 2010 og aftur 2013 til 2015. Hann hefur auk þess starfað hjá OECD, Þróunarsam- vinnustofnun, forsætisráðuneyt- inu og Þjóðhagsstofnun. Gylfi Magnússon er hins vegar metinn mjög vel hæfur en í um- fjöllun nefndarinnar kemur fram að Gylfi er dósent við Háskóla Íslands, hefur gegnt störfum sem efnahags- og viðskiptaráðherra auk þess að hafa verið stjórnar- formaður Samkeppniseftir- litsins og setið í stjórn þriggja fyrirtækja. Þá hafi hann verið formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands frá árinu 2018. Mat á stjórnunarhæfileikum er afgreitt á rúmlega hálfri síðu í matsdrögunum en matið á að byggja á reynslu umsækjenda af stjórnun. Sturla Pálsson, sem hefur verið með mannaforráð sem framkvæmdastjóri mark- aðsviðskipta og fjárstýringar hjá Seðlabankanum frá árinu 2005, er metinn vel hæfur hvað stjórn- unarhæfileika varðar. Sigurður Hannesson, sem er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og var áður fram- kvæmdastjóri eignastýringar- sviðs Kviku banka og varafor- maður framkvæmdahóps stjórnvalda um losun fjármagns- hafta, var einnig metinn vel hæfur. Gylfi Magnússon er metinn mjög vel hæfur í þessum þætti og er þá talið til tekna að hafa verið ráðherra frá febrúar 2009 til sept- ember 2010. Einnig er stjórnar- formennska hjá Samkeppnis- eftirlitinu og aðrar stjórnarsetur teknar sérstaklega fram. ✿ Fyrirspurn til ráðuneytisins Sigríður Bene- diktsdóttir, formaður hæfis- nefndarinnar. 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 2 -C 1 A 4 2 3 5 2 -C 0 6 8 2 3 5 2 -B F 2 C 2 3 5 2 -B D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.