Fréttablaðið - 28.06.2019, Side 8
Ásgeir
Brynjar
Torfason
Jón
Gunnar
Jónsson
Vilhjálmur
Bjarnason
Gunnar
Haraldsson
Gylfi
Arnbjörns-
son
Katrín
Ólafsdóttir
Sturla
Pálsson
Sigurður
Hannes-
son
Arnór
Sighvats-
son
Ásgeir
Jónsson
Gylfi
Magnússon
Jón
Daníels-
son
Hæfir: Vel hæfir: Mjög vel hæfir:
STJÓRNSÝSLA Umsækjendur um
stöðu seðlabankastjóra telja veru-
lega vankanta á málsmeðferð
nefndarinnar sem hafði umsjón
með hæfismati á umsækjendum.
Fréttablaðið hefur staðfestar heim-
ildir fyrir því að minnst sjö af þeim
átta umsækjendum sem ekki voru
metnir mjög vel hæfir, hafi andmælt
matinu. Á meðal rökstuðningsins
sem þeir leggja fram er að nefndin
hafi ekki gætt jafnræðis umsækj-
enda, ekki sinnt rannsóknarskyldu
sinni í skilningi stjórnsýslulaga
og ekki framkvæmt heildstæðan
samanburð á umsækjendum.
Hæfisnefnd um skipun seðla-
bankastjóra komst að þeirri niður-
stöðu að fjórir umsækjendur stæðu
öðrum framar og teldust mjög
vel hæfir til að gegna embættinu.
Þeir eru Arnór Sighvatsson, Ásgeir
Jónsson, Gylfi Magnússon og Jón
Daníelsson.
Enn fremur var niðurstaða nefnd-
arinnar að Gunnar Haraldsson,
Gylfi Arnbjörnsson, Katrín Ólafs-
dóttir, Sturla Pálsson og Sigurður
Hannesson væru vel hæf til að gegna
embættinu. Þá voru Ásgeir Brynjar
Torfason, Jón Gunnar Jónsson og
Vilhjálmur Bjarnason taldir hæfir.
Skila þurfti andmælum í síðasta lagi
miðvikudaginn 19. júní.
Umsækjendur sem Fréttablaðið
ræddi við furða sig á því að nefndin
hafi ekki tekið til greina þær veiga-
miklu breytingar sem fyrirhugaðar
eru með sameiningu Seðlabanka
Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
Það eitt og sér sé verulegur ágalli
á hæfnis matinu enda ljóst að eðli
starfsins muni breytast töluvert og
krefjast meiri stjórnunarhæfileika
en það hefur áður gert. Því megi
velta fyrir sér hvort mark sé takandi
á hæfnismatinu.
Sumir fengu tvö tækifæri
Nefndin ákvað að bjóða umsækj-
endunum tólf að mæta í viðtal.
Eftir þau viðtöl var það niðurstaða
nefndarinnar að ræða aftur við
umsækjendurna Arnór Sighvatsson,
Ásgeir Jónsson, Gylfa Magnússon,
Jón Daníelsson og Katrínu Ólafs-
dóttur. Í seinni umferð viðtala
voru umsækjendur spurðir nánar
út í stjórnunarhæfileika, umfang
mannaforráða undanfarin ár,
stjórnunarstíl og hvernig sú reynsla
gæti nýst þeim í starfi seðlabanka-
stjóra. Þessir hæfnisþættir voru lítið
sem ekkert ræddir í fyrstu umferð-
inni.
Þeir sem ekki voru boðaðir í
annað viðtal telja að nefndin hafi
brotið jafnræðisregluna með því
að haga málum með þessum hætti.
Þannig hafi þeir til að mynda ekki
fengið tækifæri til að varpa ljósi
á stjórnunarhæfileika sína sem
verða veigamikill þáttur í starfi
seðlabankastjóra þegar samein-
ingin við Fjármálaeftirlitið gengur
í gegn. Nefndin hafi því ekki gert
heildstæðan samanburð á umsækj-
endum.
Umsækjendur furðuðu sig á
því hvernig nefndin framkvæmdi
matið. Matið var að hluta byggt á
starfsferilskrám umsækjenda en
nefndin mun hafa tekið þær gildar
án þess að rannsaka frekar hvað
lægi á bak við og hvort fyrri störf
hefðu í raun krafist stjórnunar-
hæfileika. Nefndin hefði ekki farið
í saumana á fullyrðingum og því
hefðu umsækjendur í raun getað,
eins og einn orðaði það, sagt hvað
sem er um sjálfa sig.
Þá töldu sumir að nefndin hefði
lagt huglægt og óskiljanlegt mat á
stjórnunarhæfileika þar sem seta í
stjórn fyrirtækja eða stofnana var
metin ofar því að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra til margra ára eða að
leiða viðamikil verkefni farsællega
til lykta. Nokkrir höfðu orð á því
að vinnubrögð af þessu tagi sæjust
ekki þegar seðlabankastjórar eru
skipaðir erlendis.
Viðbótarskilyrði án stoða
Einn umsækjandi vakti athygli á því
að nefndin hefði sett viðbótarskil-
yrði sem átti sér enga stoð en lögum
samkvæmt skal seðlabankastjóri
hafa lokið háskólaprófi í hagfræði
eða tengdum greinum. Þrátt fyrir
doktorspróf umsækjanda í tengdri
grein var hann færður niður í f lokk-
inn vel hæfur með þeirri röksemd
að prófið væri „án áherslu á lög-
bundið verksvið SÍ“. Velti hann
upp þeirri spurningu hvort Már
Guðmundsson, núverandi seðla-
bankastjóri, sem er ekki með dokt-
orspróf, hefði verið flokkaður mjög
vel hæfur í þessu hæfismati.
Eins og Fréttablaðið hafði áður
greint frá bárust forsætisráðu-
neytinu kvartanir frá umsækj-
endum vegna skipunar Sigríðar
Benediktsdóttur, hagfræðings við
Yale-háskóla og bankaráðsmanns
í Landsbankanum, sem formanns
þriggja manna hæfisnefndar sem á
að meta hæfi þeirra sem sóttu um
embættið. Gagnrýnt var að Sigríður
leiddi hæfisnefndina á sama tíma og
hún væri í bankaráði Landsbankans
enda eigi bankinn, sem stærsti við-
skiptavinur Seðlabanka Íslands,
verulegra hagsmuna að gæta sem
snýr að ýmsum ákvörðunum Seðla-
bankans. hordur@frettabladid.is
thorsteinn@frettabladid.is
Verulegir vankantar á hæfnismatinu
Minnst sjö umsækjendur hafa andmælt mati hæfisnefndar um skipun seðlabankastjóra. Furða sig á því að matið taki ekki til greina
sameiningu Seðlabankans og FME þar sem starfið krefjist meiri stjórnunarhæfileika en áður. Jafnræðisreglan hafi verið brotin.
Katrin Jakobsdóttir forsætisráðherra mun taka endanlega ákvörðun um ráðningu seðlabankastjóra í júlímánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
n Telur forsætisráðuneytið
umsögn nefndarinnar um
hæfni umsækjenda vera
fullnægjandi við val á næsta
seðlabankastjóra?
n Hefur ráðherra til skoðunar að
ráðast í sjálfstæða rannsókn
á hæfni umsækjenda þar sem
tekið verður tillit til boðaðrar
sameiningar Seðlabankans
og FME?
Allir komu vel fyrir
Í skipunarbréfi nefndarinnar var
mælt fyrir um að nefndin skyldi
við mat á hæfni umsækjenda
einnig hafa hliðsjón af hæfni
í mannlegum samskiptum. Í
drögum að hæfnismatinu , sem
Fréttablaðið hefur undir hönd-
um, kemur fram að einkum hafi
verið stuðst við viðtöl nefndar-
manna við umsækjendur við
mat á þessum þætti.
„Í viðtölunum komu allir
umsækjendur vel fyrir og er á
grundvelli þeirra ekki forsenda
til að gera upp á milli þeirra með
hliðsjón af þessum efnisþætti,“
segir í drögunum.
Samkvæmt þessu virðist sem
nefndin hafi ekki rannsakað
nánar hæfni umsækjenda um
stöðu seðlabankastjóra, sem
mun leiða sameiningu Seðla-
bankans og Fjármálaeftirlitsins,
í mannlegum samskiptum. Þar
sem allir umsækjendur þóttu
koma vel fyrir hafði þessi
hæfnisþáttur ekki áhrif á niður-
stöðu matsins.
Betra að sitja í stjórn en framkvæmdastjórn
Nefndin lagði meðal annars mat
á starfsreynslu en samkvæmt
lögum þarf seðlabankastjóri
að búa yfir víðtækri reynslu og
þekkingu á fjármálastarfsemi
og efnahags- og peningamálum.
Í umfjöllun nefndarinar, svo
dæmi sé tekið, kemur fram að
Jón Gunnar Jónsson, sem hefur
gegnt embætti forstjóra Banka-
sýslu ríkisins frá árinu 2012 og
starfaði áður í 16 ár hjá Merril
Lynch, sé hæfur.
Nefndin metur Vilhjálm
Bjarnason vel hæfan og telur
honum til tekna að hafa starfað
sem útibússtjóri, verðbréfa-
miðlari, kennari, sérfræðingur hjá
Þjóðhagsstofnun og Hagstofu
Íslands, og átt sæti í efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis. Auk
þess sitji hann í stjórn Bankasýslu
ríkisins.
Gunnar Haraldsson er einnig
metinn vel hæfur en hann var
forstöðumaður Hagfræðistofn-
unar Háskóla Íslands á árunum
2007 til 2010 og aftur 2013 til
2015. Hann hefur auk þess
starfað hjá OECD, Þróunarsam-
vinnustofnun, forsætisráðuneyt-
inu og Þjóðhagsstofnun.
Gylfi Magnússon er hins vegar
metinn mjög vel hæfur en í um-
fjöllun nefndarinnar kemur fram
að Gylfi er dósent við Háskóla
Íslands, hefur gegnt störfum sem
efnahags- og viðskiptaráðherra
auk þess að hafa verið stjórnar-
formaður Samkeppniseftir-
litsins og setið í stjórn þriggja
fyrirtækja. Þá hafi hann verið
formaður bankaráðs Seðlabanka
Íslands frá árinu 2018.
Mat á stjórnunarhæfileikum
er afgreitt á rúmlega hálfri síðu
í matsdrögunum en matið á að
byggja á reynslu umsækjenda
af stjórnun. Sturla Pálsson, sem
hefur verið með mannaforráð
sem framkvæmdastjóri mark-
aðsviðskipta og fjárstýringar hjá
Seðlabankanum frá árinu 2005,
er metinn vel hæfur hvað stjórn-
unarhæfileika varðar.
Sigurður Hannesson, sem er
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins og var áður fram-
kvæmdastjóri eignastýringar-
sviðs Kviku banka og varafor-
maður framkvæmdahóps
stjórnvalda um losun fjármagns-
hafta, var einnig metinn vel
hæfur.
Gylfi Magnússon er metinn
mjög vel hæfur í þessum þætti og
er þá talið til tekna að hafa verið
ráðherra frá febrúar 2009 til sept-
ember 2010. Einnig er stjórnar-
formennska hjá Samkeppnis-
eftirlitinu og aðrar stjórnarsetur
teknar sérstaklega fram.
✿ Fyrirspurn til
ráðuneytisins
Sigríður Bene-
diktsdóttir,
formaður hæfis-
nefndarinnar.
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
2
-C
1
A
4
2
3
5
2
-C
0
6
8
2
3
5
2
-B
F
2
C
2
3
5
2
-B
D
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K