Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 16
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HANDBOLTI Í dag þegar dregið verður í Vín, höfuðborg Austurríkis, kemur í ljós í hvaða riðli Strákarnir okkar, íslenska karlalandsliðið í handbolta, verða á Evrópumótinu 2020. Mótið hefst þann 9. janúar næstkomandi og fer fram í Austur- ríki, Noregi og Svíþjóð. Er þetta ellefta lokakeppni Evrópumótsins í röð þar sem Ísland er meðal þátt- takenda. Þetta verður annað stórmót íslenska liðsins eftir að Guðmundur Þórður Guðmundsson tók við því á nýjan leik fyrir ári eftir að Ísland lenti í ellefta sæti á Heimsmeistara- mótinu í Þýskalandi í janúar síðast- liðnum. Ísland er í þriðja styrkleikaflokki ásamt Austurríki, Svartf jalla- landi, Portúgal, Sviss og Lettlandi. Strákarnir okkar fá að vita um verðandi andstæðinga á EM í dag Aron er að fara á sitt sjötta Evrópumót í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 24 lið taka þátt í Evrópumótinu 2020. Er þetta í fyrsta sinn sem 24 lið taka þátt í stað sextán eins og áður þekktist. Ísland er einum styrkleikaf lokki fyrir neðan Norður-Makedóníu sem vann undanriðil Íslands og er í öðrum styrkleikaflokki þegar FÓTBOLTI Króatíski miðjumaður- inn Mateo Kovacic verður áfram í herbúðum Chelsea eftir að félagið komst að samkomulagi við Real Madrid um kaupverðið. Kovacic var á síðustu leiktíð í láni hjá Chelsea og kom við sögu í fimmtíu leikjum. Chelsea er í eins árs félagsskipta- banni og fær því ekki að skrá nýja leikmenn en fann leið fram hjá því þar sem Kovacic var í láni hjá félaginu á ný- afstaðinni leik- tíð og var því á skrá hjá Chelsea. E n s k a f é l a g i ð g r e i ð i r R e a l M a d r i d fjörutíu millj- ó n i r pu n d a fyrir Kovacic þrátt fyrir að ekki sé búið að ráða arftaka Maurizio Sarri hjá félaginu. – kpt Kovacic áfram hjá Chelsea dregið verður á eftir. Tvö lið komast áfram í milliriðlana og alls fjögur lið fara áfram úr milliriðlunum í úrslitahelgina sem fer fram í Stokk- hólmi undir lok janúar. Ljóst er að Ísland fer ekki í B-riðil þar sem heimamenn í Austurríki verða og eru því miklar líkur á því að Ísland leiki í Noregi eða Svíþjóð nema liðið fari með Króatíu í A-riðil sem fer fram í Graz. Þá er þetta síðasta tækifæri Íslands til að öðlast þátttökurétt á Sumarólympíuleikunum 2020. Komi Ísland heim með gullið frá EM tryggja strákarnir sér sæti á Ólympíuleikunum en önnur leið er að Ísland tryggi sér þátttökurétt í umspilsleikjum í mars næstkom- andi með því að enda meðal efstu þjóða á Evrópumótinu. – kpt FÓTBOLTI Belgíska félagið Lommel staðfesti í gær að Stefán Gíslason myndi taka við liðinu af Tom Van Imschoot sem hætti störfum á dög- unum til að taka við liði Genk þar í landi. Hjá Lommel, sem leikur í belgísku B-deildinni, mun Stefán vinna með Jonathan Hendrickx sem gekk á dögunum til liðs við belgíska félagið frá Breiðabliki. Stefán óskaði eftir því að fá að hætta störfum hjá Leikni á dög- unum, sjö mánuðum eftir að hann tók við liðinu. Hann hefur einnig þjálfað Hauka á Íslandi en fær nú að spreyta sig sem þjálfari erlendis. Hinn 39 ára gamli Stefán lék um tíma í Belgíu á atvinnumannsferli sínum með liði Leuven ásamt því að leika með Strömsgodset, Grazer, Lyn, Bröndby, Viking og Lilleström í atvinnumennsku. – kpt Stefán tekur við Lommel í Belgíu HNEFALEIKAR Kolbeinn Kristinsson snýr aftur inn í hnefaleikahring- inn um helgina þegar hann mætir heimamanninum Gyorgy Kutasi í Búdapest í Ungverjalandi. Bardag- inn var staðfestur fyrr í vikunni og fær Kolbeinn því afar stuttan undir- búningstíma en kærkomin bardaga eftir langa fjarveru. Þetta verður fyrsti bardagi Kol- beins í þrettán mánuði og aðeins annar bardagi hans í rúm tvö ár. Til þessa á atvinnumannsferlinum hefur Kolbeinn unnið alla tíu bar- daga sína. Eftir bardaga gegn Genn- adi Mentsikainen síðasta vor tók Kolbeinn sér hlé frá keppni til að skipta um þjálfara. Þegar það var komið á hreint á síðasta ári gekk illa að finna bardaga því Kolbeinn kom oft að lokuðum dyrum. Kolbeinn var nýkominn til Ung- verjalands þegar Fréttablaðið náði í hann eftir að hann hafði æft í Finn- landi undanfarnar vikur. „Þetta er búið að vera þrauta- ganga, við erum búin að leita að bar- daga lengi og það er léttir að þetta sé komið á hreint og á sama tíma spenna,“ sagði Kolbeinn spurður út í biðina. „Við höfum verið í viðræðum við þá sem skipuleggja bardagakvöldin og það var oftast ekki pláss á kvöld- inu. Það þarf að hafa tengsl til að komast inn á þessi kvöld og það vantaði oft aðeins upp á tengslin til að komast að. Ég er búinn að horfa á hverja einustu helgi í langan tíma með það að markmiði að berjast þá. Síðan kemur þetta upp um síðustu helgi og þetta var bara staðfest í þessari viku. Þegar við förum inn í hringinn eru fjórir dagar liðnir síðan bardaginn var staðfestur,“ sagði Kolbeinn léttur um aðdrag- anda bardagans. Kolbeinn hefur því ekki haft mik- inn tíma til að skoða andstæðing sinn, Gyorgy Kutasi. „Ég veit í raun ekki mikið um hann sem bardagamann. Ég veit að hann er 1,83 á hæð og rétthentur en það var ekki til mikið af gögnum um hann. Það ætti samt ekki að skipta mig of miklu máli hversu mikið ég veit um hann sem bardagakappa. Það skiptir mig bara öllu máli að koma hjólunum aftur af stað og fara að berjast á ný.“ Gyorgy hefur unnið fjóra bardaga af fjórtán á níu ára atvinnumanns- ferli en hefur verið að sækja í sig veðrið. Í síðustu þremur bardögum hefur Gyorgy tekist að vinna tvo með rothöggi. Kolbeinn hóf að vinna með nýjum þjálfara, Javan ‘Sugar’ Hill Steward, fyrir áramót og var í æfingabúðum í Bandaríkjunum eftir áramót. „Það hefur gengið vel, ég æfði undir hans handleiðslu og til stóð að ég myndi berjast í júní í Banda- ríkjunum en það féll niður. Ég var búinn að sækja um vegabréfs- áritun og allt þegar það féll niður. Þá fór ég heim og var að æfa en var alltaf að æfa eins og næsti bardagi væri handan hornsins. Allt þetta ár er búið að snúast um að komast aftur inn í hringinn og það er léttir að það sé loksins komið á hreint. Ég er í raun búinn að vera tilbúinn að berjast síðan í janúar.“ Aðspurður sagðist Kolbeinn hafa verið tilbúinn að stíga inn í hring- inn frá áramótunum. „Ég er búinn að vera að æfa í níu vikur fyrir þetta kvöld og ég er kominn á þann stað sem ég vil vera á. Núna er það bara að viðhalda þessu fyrir bardagann,“ sagði Kol- beinn og hélt áfram: „Ég fór upprunalega til Finnlands til að æfa í nokkra daga og boxa smá áður en ég færi heim til að fá til- finninguna á ný en þeir báðu mig um að vera lengur svo ég er búinn að vera þar í þrjár vikur að æfa með Robert Helenius,“ sagði Kolbeinn sem kemur beint úr æfingabúðum í Finnlandi í bardagann. „Við komum til Ungverjalands í gær, dagurinn í dag verður nýttur í smá endurhæfingu og svo er vigtun og öll formsatriðin á laugardaginn fyrir bardaga.“ Keppnin fer fram utanhúss í höf- uðborg Ungverjalands og má búast við að það verði um 20-25 gráðu hiti í Búdapest þegar bardaginn hefst annað kvöld. „Bardaginn fer fram úti um kvöldið, það verður áhugavert. Vonandi verður ekki of heitt þarna,“ sagði Kolbeinn og tók undir að tutt- ugu stiga hiti myndi henta honum vel. kristinnpall@frettabladid.is Búinn að bíða lengi eftir þessu  Staðfest var í gær að hnefaleikakappinn Kolbeinn Kristinsson mætir Ungverjanum Gyorgy Kutasi í hringnum um helgina. Eftir stuttan undirbúningstíma var Kolbeinn spenntur að komast í hringinn á ný. Hinn 31 árs gamli Kolbeinn barðist fyrst sem atvinnumaður í hnefaleikum fyrir 5 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þegar við förum inn í hringinn eru fjórir dagar liðnir síðan bardaginn var staðfestur. Kolbeinn Kristinsson 10 Kolbeinn hefur unnið alla tíu bardagana á atvinnu- mannsferlinum til þessa. 2 8 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 2 -9 0 4 4 2 3 5 2 -8 F 0 8 2 3 5 2 -8 D C C 2 3 5 2 -8 C 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.