Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 44
VIÐ VELJUM Á ÞESSA SÝNINGU HLUTI SEM HAFA HAFT ÁHRIF Á OKKUR, ALGJÖRLEGA ÓHÁÐ ÞVÍ HVAÐA MIÐIL ER UM AÐ RÆÐA.Alþjó ðle g i my nd -listartvíæringurinn Sequences verður haldinn í október á þessu ári og stendur í rúma viku. Sýningar- stjórarnir Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarsson, sem bæði eru myndlistarmenn, eru önnum kafin við undirbúninginn. „Þetta er í níunda sinn sem þessi myndlistarhátíð er haldin og hún er tvíæringur sem þýðir að hún er haldin annað hvert ár,“ segir Hildi- gunnur. „Upphaf lega hugmyndin var að fá alþjóðlega listamenn til að koma til landsins án þess að það kostaði of mikið og því var lögð áhersla á tímatengda miðla. Við Ingólfur erum myndlistarmenn og ekki sérfróð um tímatengda miðla og erum meira að velta fyrir okkur rauntíma, hvað sé raunveruleiki og hvað sé tími. Við veljum á þessa sýningu hluti sem hafa haft áhrif á okkur, algjörlega óháð því hvaða miðil er um að ræða.“ „Meginhluti sýningarinnar verð- ur í Marshall húsinu og þar stefnum við saman verkum hinna ýmsu miðla sem mynda merkingarsvið. Áhorfandinn getur borið saman þessi merkingarsvið, ekki bara hugmyndalega heldur líka mynd- rænt séð, með því að ganga á milli verkanna,“ segir Ingólfur. „Sýningar verða líka í Ásmundarsal, Harbinger og Open sem er sýningarstaður úti á Granda. „Í Bíói Paradís verða sýndar kvikmyndir, sem eru tímatengdur miðill í beinum skilningi þess orðs. Þetta eru kvikmyndir eftir mynd- listarmenn sem spyrja gjarnan spurninga um formið. Síðan verða að öllum líkindum einir tónleikar þar sem listamaður er að vinna með nostalgíu og endurskapar leifar úr fortíð með því að gera ný tónverk úr eldra efni.“ Heiðurslistamaðurinn Kristinn Kristinn G. Harðarson er heiðurs- listamaður hátíðarinnar í ár. Hann heldur einkasýningu í Ásmunarsal og gefur út bókverk sem verður um leið sjálfstætt sýningarrými. Eldri verk hans verða meðal þeirra verka sem verða á sýningu í Marshall hús- inu.“ Hildigunnur og Ingólfur eru enn að vinna að dagskrá hátíðarinnar og ganga frá vali á listamönnum. „Á hátíðina koma kynslóðir lista- manna, þekktir og minna þekktir og þarna verða líka verk eftir látna listamenn,“ segir Ingólfur og bætir við að ekki sér tímabært að greina frá nöfnum einstakra listamanna sem sækja hátíðina heim. Annt um að endurspegla raunveruleikann „Okkur er annt um að endurspegla raunveruleika þeirra tíma sem við lifum á,“ segir Hildigunnur. „Okkur langar til að fletja strúktúrinn, ekki hafa það þannig að á einum stað séu verk eftir þá sem eru lengra komnir og á öðrum stað verk ungra lista- manna og svo framvegis. Við vilj- um má út pólaríseringu og horfa á verkin.“ Raunveruleiki og tími Myndlistarhátíðin Sequences er haldin í haust. Sýningarstjór- ar eru Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarsson. Ingólfur og Hildigunnur velta því fyrir sér hvað sé raunveruleiki og hvað sé tími. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is  28. JÚNÍ 2019 Myndlist Hvað? Sumartími – opnun Hvenær? 17.00 Hvar? Deiglan, Kaupvangsstræti 23, Akureyri Jónasína Arnbjörnsdóttir sækir myndefni sitt í sveitalíf, heyskap og minningar um stör sem spegl- ast í mýri. Sýningin er opin yfir helgina milli 14 og 17. Tónlist Hvað? DJ Yamaho á Undir berum himni Hvenær? 18.00-22.00 Hvar? Petersen svítan, Ingólfs- stræti 2 a Sumarstemning í anda strandbara & sundlaugarpartía. Hvað? Jazz sendiboðarnir á Múl- anum / Jazz með útsýni Hvenær? 21.00 Hvar? Múlinn Jazzklúbbur, Björtu- loftum í Hörpu Hvað? Snert hörpu mína – Söng- hátíð hefst Hvenær? 20.00 Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði Andri Björn Róbertsson bassabari- tón og Ástríður Alda Sigurðar- dóttir píanóleikari f lytja Söngva- sveig (Liederkreis) eftir Schumann og íslensk sönglög. Hvað? Töfrar Hvenær? 21.00 Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu 28 Hljómsveitirnar Kul og Teitur Magnússon & Æðisgengið bregða á leik og það er frítt inn. Hvað? Tangó praktika og milonga Hvenær? 21.00-24.00 Hvar ? Kramhúsið, Skólavörðustíg 12 Argentínskur tangó. Aðgangseyrir er kr. 1.000 en frítt fyrir 30 ára og yngri. Teitur Magnússon skapar töfra á Kex Hosteli í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN Gæði og glæsileiki endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæs ileiki endalaust úrval af hágæ ða flísum Finndu okkur á facebook Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R22 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 8 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 5 2 -9 A 2 4 2 3 5 2 -9 8 E 8 2 3 5 2 -9 7 A C 2 3 5 2 -9 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.