Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Page 2

Víkurfréttir - 09.05.2019, Page 2
„Það er enginn leið að hætta,“ segir Kristján Jóhannsson einn forsvars­ manna Bliksins í samtali við Víkurfréttir. ,,Þetta er níunda árið okkar og í þetta skiptið einblínum við á níunda áratuginn. Wham, Duran Duran, Simple Minds, Madonna, Bruce Springsteen meðal annars og hæfilegt magn af gæsahúðar dúettum úr kvikmyndum tímabilsins og svo bara flott bland í poka“. Að sögn Kristjans er undirbúningur kominn á fullt. Einvalalið söngvara tekur þátt að þessu sinni en þeir verða Jóhanna Guðrún, Hera Björk, Jógvan Hansen og Jón Jósep Snæbjörnsson. ,,Við biðum aðeins með að uppljóstra umfjöllunarefni sýningarinnar þetta árið en þettta verður negla. Oft höfum við lent í vandræðum með að skera þetta niður í hæfilegan fjölda laga en núna var þetta bara lögreglumál, ég meina, við höfðum um 1000 lög að velja og þurftum að skera niður í 25,“ segir Kristján og hlær. „Okkur þótti líka tilvalið að breyta um staðsetningu þetta árið. Andrews leikhúsið hefur verið heimili Bliksins í átta ár en nú verðum við í Stapa. Að­ staðan þar er fyrsta flokks. Allur tæknibúnaður til staðar og við göngum inn á tilbúið svið. Upp í Andrews þurfum við að koma með allt. Þar er ekkert til staðar, nema húsið. Við hlökkum mikið til samstarfsins við Tómas Yo­ ung og hans fólk í Hljómahöll.“ Þar sem Stapi tekur færri tónleika­ gesti í sæti en Andrews verður fjöldi miða sem fer í sölu ekki eins mikill. Fólk er því hvatt til að bregðast hratt við þegar miðasala hefst. Miðasala fer fram á Tix.is og Hljóma­ höll.is og verður nánar auglýst síðar. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR 4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg SPÁÐ ER SENDINGUM UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS SANDGERÐI -20° 150kg Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir, sími 421 0002, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. 10x10 DBL Kubbur Álfurinn er Fögnum saman, kaupum álfinn Hvers konar sjónvarpsefni viltu sjá í Suðurnesja- magasíni, sem er í hverri viku, á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30 á Hring- braut? Alda Sveinsdóttir: „Um listsköpun á svæðinu og viðtöl við listamenn. Það er svo mikil gróska á Suðurnesjum. Gaman væri líka að sjá innlit á heimili sem verið er að gera upp, fyrir og eftir. Sérstaklega þegar fólk er að gera þetta sjálft og finna ódýrar lausnir en samt einstakar.“ Gunnar Magnús Jónsson: „Sýna meira af íþróttaiðkun barna á svæðinu, kíkja inn á æfingar og spjalla við börnin. Taka púlsinn á því sem börn eru að gera.“ Hannes Friðriksson: „Ég vil sjá eitthvað jákvætt því það er svo margt skemmti­ legt að gerast á svæðinu. Lífið eins og það er, karlarnir á bryggjunni, leikfélagið, allir klúbbarnir til dæmis Oddfellow og Rótarý, hvað þeir eru að gera. Tala við venjulegt fólk, það eru skemmtilegar spírur út um allt. Ég vil sjá mannlífið í hnot­ skurn.“ Lára María Ingimundardóttir: „Það mætti sýna eitthvað já­ kvætt sem íbúar geta gert fyrir bæinn sinn. Spurningakeppni á milli bæjarfélaga á Suður­ nesjum.“ SPURNING VIKUNNAR Ingi björg Krist ín Þor bergs, tón skáld, söng kona og fyrr ver andi dag skrár­ stjóri Rík is út varps ins, er lát in 91 árs að aldri. Ingi björg fædd ist í Reykja­ vík 25 októ ber 1927 og ólst þar upp. Hún var dótt ir hjón anna Kristjönu Sig ur bergs dótt ur hús móður og Þor bergs Skúla son ar skó smíðameist ara. Bróðir henn ar var Skúli Ólaf ur Þor bergs son, fædd ur 1930. Ingi björg stund­ aði meðal ann ars nám við Tón list­ ar skóla Reykja­ vík ur og Kenn­ ara skóla Íslands og dvaldi enn­ frem ur við nám í Dan te Alig hieri­ skól ann í Róm. Hún hóf störf hjá Rík is út varp inu 1946 og starfaði þar við ýmis störf til 1985. Hún starfaði einnig við kennslu um tíma og sem blaðamaður. Ingi björg samdi söng lög, dæg ur­ lög og barna lög, söng inn á fjölda hljóm platna og samdi sjö leik rit fyr ir börn og ung linga. Hún fékk marg­ vís leg ar viður kenn ing ar fyr ir störf sín, meðal ann ars heiður sverðlaun Íslensku tón list ar verðlaun anna 2003. Þá hlaut hún ridd ara kross hinn ar ís lensku fálka orðu 2008 fyr ir fram lag sitt til ís lenskr ar tón list ar. Ingi björg gift ist Guðmundi Jóns syni píanó leik ara 1976, (1929–2010). Hún var bú sett síðustu ævi ár in í Reykja­ nes bæ. Krían er komin á Garðskaga Krían er komin til Suðurnesjabæjar. Til hennar sást nú undir kvöld á mánu­ dag við Garðskaga­ vita. Var hún þar í nokkuð stórum hópi fugla. Óhætt er að segja að krían sé nokkuð snemma á ferðinni á Garðskaga þetta árið en vanalega sést til hennar um 10. maí. Íbúum Suðurnesja hefur fjölgað um 0,91% á tímabilinu 1. desember 2018 til 1. maí 2019. Íbúar Suðurnesja voru 27.296 nú 1. maí og hefur fjölgað um 247 frá 1. desember. Reykjanesbær er enn fjórða stærsta sveitarfélag landsins með 19.035 íbúa þann 1. maí en íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað um 153 frá 1. desember í fyrra. Grindavíkurbær og Suðurnesjabær eru svo gott sem jafnstór sveitarfélög. Suðurnesjabær er 10 íbúum fjölmenn­ ari en Grindavík. 3.490 manns búa í Suðurnesjabæ en 3.480 í Grindavík. Síðast þegar við birtum íbúatölur var Grindavík fjölmennara. Þar hefur íbúum fjölgað um 83 eða 2,4% frá 1. desember en í Suðurnesjabæ er fjölgunin ekki nema átta manns á sama tíma. Sveitarfélagið Vogar hefur í dag 1.291 íbúa og hefur fjölgað um þrjá frá 1. desember. Reykjanesbær tók fjórða sætið af Akureyrarbæ fyrr á árinu en 1. maí voru Akureyringar 18.953 á móti 19.035 íbúum Reykjanesbæjar. Ingi björg Þor bergs látin Íbúar Suðurnesja 27.296 talsins SUÐUR MEÐ SJÓ SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 20:30 Á HRINGBRAUT OG VF.IS EINNIG MÁ HLUSTA Á ÞÁTTINN Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA Blikið fer í Hljómahöll -Með blik í auga haldið í níunda sinn 2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.