Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Hef ekki fengið smyglaðan kalkún síðan Kaninn fór. Hvaða blessun er það? Fyrirmynd og frumkvöðull Ég ólst upp í Keflavík, Bítlabænum sjálfum, og þó svo að ég muni seint vinna stórsigra á tónlistarsviðinu get ég þó státað af því að hafa sungið í Barnakór Keflavíkur undir stjórn Hreins Líndal og lært á klarinett í Tónlistarskóla Keflavíkur. Klarinettið varð reyndar fyrir valinu af því að mamma mín var einlægur aðdáandi Benny Goodman og eftir á að hyggja hefði kannski verið skynsamlegra að mamma hefði sjálf lært á klarinettið! Þrátt fyrir áberandi skort á tónlistarhæfileikum var þetta góður grunnur og kenndi mér að kunna að meta góða tónlist. Tónlistin nefnilega auðgar lífið og gerir það betra, hvort sem um er að ræða fallega, sígilda tónlist, dauðarokk eða dúndrandi diskó. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, tónlistin sameinar í flestum tilfellum frekar en að sundra (með augljósum undantekn- ingum eins og Duran Duran eða WHAM og Bítlarnir eða Stones eru klárlega dæmi um). Tónlistin endurspeglar tíðarandann, menningu þjóða, menningu kynslóða og er órjúfanlegur hluti heimssögunnar. Þetta kom upp í huga minn þegar tilkynnt var um andlát Ingibjargar Þorbergs í vik- unni og framlag hennar til íslenskrar tón- listarsögu var rifjað upp. Ingibjörg, sem ég kynntist lítillega á síðustu árum í gegnum móðursystur mína, var ótrúleg kona. Mér kom hún fyrir sjónir sem hógvær kona og lítillát en á sama tíma fannst mér hún algjör töffari, ákveðin og hnyttin. Sú arfleifð sem hún skilur eftir sig, bæði fyrir íslenska tónlist en ekki síst fyrir íslenskar konur, er mögnuð. Hún var sannur frumkvöðull og var fyrst til að gera svo ótal margt; Hún samdi fyrsta íslenska jólalagið sem ekki var sálmur, hún LOKAORÐ Ragnheiðar Elínar var fyrsta konan sem söng eigið lag og texta inn á plötu og hún var fyrsti Íslendingurinn til að ljúka einleikaraprófi á klarinett. Já sko, klarinettið tengir okkur Ingibjörgu – kannski höfðu hún og mamma mín hlustað saman á Benny Goodman í Skerjafirðinum á sínum tíma, hver veit? Ingibjörg var afkastamikill tónsmiður og samdi á þriðja hundrað lög, gaf út barnalög sem við syngjum enn í dag með börnum okkar og munu án efa heyrast um ókomna tíð. Ingibjörg Þorbergs bjó í Keflavík síðustu æviárin og í viðtali við Víkurfréttir fyrir nokkrum árum sagði hún að það hafi verið vel tekið á móti þeim hjónum þegar þau fluttu hingað á sínum tíma. Hér leið henni vel og því finnst mér að bærinn okkar, með sína sterku tónlistarhefð, eigi að taka frum- kvæði í því að heiðra minningu Ingibjargar Þorbergs. Það mætti gera með því að koma upp safni henni til heiðurs eða setja upp sýningu, til dæmis innan Rokksafnsins, á ævistarfi hennar. Saga hennar á erindi við okkur öll, saga frumkvöðuls og fyrirmyndar. Hér með skora ég á bæjaryfirvöld í Reykja- nesbæ að taka þetta verkefni upp á arma sína og sýna í verki þakklæti okkar allra fyrir framlag hennar. Blessuð sé minning Ingibjargar Þorbergs. Niðurstaða ársreiknings bæjarsjóðs og samstæðu Reykjanes- bæjar fyrir árið 2018 er sú besta sem sést hefur í 25 ára sögu sveitarfélagsins. Skuldaviðmið samstæðunnar lækkar vel undir lögboðið 150% viðmið og er nú 137,29%. Ársreikningurinn var samþykktur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þriðjudag. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2018 námu 23.187 millj- ónum króna samkvæmt saman- teknum rekstrarreikningi fyrir a- og b-hluta. Rekstrartekjur a-hluta námu 15.662 milljónum króna. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu 7.980 milljónum króna en starfs- mannafjöldi sveitarfélagsins nam að meðaltali 893 stöðu- gildum. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagns- liði var jákvæð um 3.524,2 milljónir króna og að teknu tilliti til þeirra liða er rekstrar- niðurstaða jákvæð um 2.676,7 milljónir króna. Rekstrarniður- staða samstæðu a og b hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam hins vegar 6.575,4 millj- ónum króna og að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 2.373,5 milljónir króna. Heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi námu 66.515,4 milljónum króna og heildareignir bæjarsjóðs námu um 33.359,9 milljónum króna í árslok 2018. Heildarskuldir og skuldbind- ingar í samanteknum árs- reikningi námu um 48.619,4 milljónum króna og í ársreikn- ingi bæjarsjóðs um 29.123,6 milljónir króna í árslok 2018. Eigið fé í samanteknum árs- reikningi nam um 17.896 millj- ón króna og eigið fé bæjarsjóðs nam um 4.236,4 milljón króna í árslok 2018. Íbúafjöldi Reykjanesbæjar í lok árs 2018 var 18.930 og fjölgaði um 6,38% frá fyrra ári. Lögboðið skuldaviðmið Reykjanesbæjar komið í 137% Ársreikningur 2018 afgreiddur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2018 námu rúmum 23 milljörðum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi. Bremsutilboð! HEKLA Reykjanesbæ | Njarðarbraut 13 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 590 5090 Þegar sentimetrarnir skipta máli! Það er mikilvægt öryggisatriði að hafa bremsurnar á bílnum í lagi. HEKLA og þjónustuaðilar um land allt taka höndum saman til að tryggja öryggi ökumanna þegar ekið er inn í sumarið og býður bremsutilboð. Bremsutilboðið felur í sér 15% afslátt af bremsuvarahlutum og 10% afslátt af vinnu. Bókaðu tíma hjá HEKLU Reykjanesbæ í síma 590 5090 eða renndu við. Hlökkum til að sjá þig! 15% afslátturaf bremsuvarahlutumog 10% afsláttur af vinnu!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.