Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Hef ekki fengið smyglaðan
kalkún síðan Kaninn fór.
Hvaða blessun er það?
Fyrirmynd og
frumkvöðull
Ég ólst upp í Keflavík, Bítlabænum sjálfum,
og þó svo að ég muni seint vinna stórsigra
á tónlistarsviðinu get ég þó státað af því að
hafa sungið í Barnakór Keflavíkur undir
stjórn Hreins Líndal og lært á klarinett í
Tónlistarskóla Keflavíkur. Klarinettið varð
reyndar fyrir valinu af því að mamma mín
var einlægur aðdáandi Benny Goodman
og eftir á að hyggja hefði kannski verið
skynsamlegra að mamma hefði sjálf lært
á klarinettið! Þrátt fyrir áberandi skort
á tónlistarhæfileikum var þetta góður
grunnur og kenndi mér að kunna að meta
góða tónlist.
Tónlistin nefnilega auðgar lífið og gerir það
betra, hvort sem um er að ræða fallega,
sígilda tónlist, dauðarokk eða dúndrandi
diskó. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
tónlistin sameinar í flestum tilfellum frekar
en að sundra (með augljósum undantekn-
ingum eins og Duran Duran eða WHAM
og Bítlarnir eða Stones eru klárlega dæmi
um). Tónlistin endurspeglar tíðarandann,
menningu þjóða, menningu kynslóða og er
órjúfanlegur hluti heimssögunnar.
Þetta kom upp í huga minn þegar tilkynnt
var um andlát Ingibjargar Þorbergs í vik-
unni og framlag hennar til íslenskrar tón-
listarsögu var rifjað upp. Ingibjörg, sem ég
kynntist lítillega á síðustu árum í gegnum
móðursystur mína, var ótrúleg kona. Mér
kom hún fyrir sjónir sem hógvær kona og
lítillát en á sama tíma fannst mér hún algjör
töffari, ákveðin og hnyttin. Sú arfleifð sem
hún skilur eftir sig, bæði fyrir íslenska tónlist
en ekki síst fyrir íslenskar konur, er mögnuð.
Hún var sannur frumkvöðull og var fyrst til
að gera svo ótal margt; Hún samdi fyrsta
íslenska jólalagið sem ekki var sálmur, hún
LOKAORÐ
Ragnheiðar Elínar
var fyrsta konan sem söng eigið lag og texta
inn á plötu og hún var fyrsti Íslendingurinn
til að ljúka einleikaraprófi á klarinett. Já sko,
klarinettið tengir okkur Ingibjörgu – kannski
höfðu hún og mamma mín hlustað saman á
Benny Goodman í Skerjafirðinum á sínum
tíma, hver veit? Ingibjörg var afkastamikill
tónsmiður og samdi á þriðja hundrað lög,
gaf út barnalög sem við syngjum enn í dag
með börnum okkar og munu án efa heyrast
um ókomna tíð.
Ingibjörg Þorbergs bjó í Keflavík síðustu
æviárin og í viðtali við Víkurfréttir fyrir
nokkrum árum sagði hún að það hafi verið
vel tekið á móti þeim hjónum þegar þau
fluttu hingað á sínum tíma. Hér leið henni
vel og því finnst mér að bærinn okkar, með
sína sterku tónlistarhefð, eigi að taka frum-
kvæði í því að heiðra minningu Ingibjargar
Þorbergs. Það mætti gera með því að koma
upp safni henni til heiðurs eða setja upp
sýningu, til dæmis innan Rokksafnsins, á
ævistarfi hennar. Saga hennar á erindi við
okkur öll, saga frumkvöðuls og fyrirmyndar.
Hér með skora ég á bæjaryfirvöld í Reykja-
nesbæ að taka þetta verkefni upp á arma
sína og sýna í verki þakklæti okkar allra
fyrir framlag hennar.
Blessuð sé minning Ingibjargar Þorbergs.
Niðurstaða ársreiknings bæjarsjóðs og samstæðu Reykjanes-
bæjar fyrir árið 2018 er sú besta sem sést hefur í 25 ára sögu
sveitarfélagsins. Skuldaviðmið samstæðunnar lækkar vel undir
lögboðið 150% viðmið og er nú 137,29%. Ársreikningurinn var
samþykktur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þriðjudag.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
á árinu 2018 námu 23.187 millj-
ónum króna samkvæmt saman-
teknum rekstrarreikningi fyrir
a- og b-hluta. Rekstrartekjur
a-hluta námu 15.662 milljónum
króna.
Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins námu 7.980
milljónum króna en starfs-
mannafjöldi sveitarfélagsins
nam að meðaltali 893 stöðu-
gildum.
Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs
fyrir afskriftir og fjármagns-
liði var jákvæð um 3.524,2
milljónir króna og að teknu
tilliti til þeirra liða er rekstrar-
niðurstaða jákvæð um 2.676,7
milljónir króna. Rekstrarniður-
staða samstæðu a og b hluta
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
nam hins vegar 6.575,4 millj-
ónum króna og að teknu tilliti
til þeirra liða var niðurstaðan
jákvæð um 2.373,5 milljónir
króna.
Heildareignir sveitarfélagsins
í samanteknum ársreikningi
námu 66.515,4 milljónum króna
og heildareignir bæjarsjóðs
námu um 33.359,9 milljónum
króna í árslok 2018.
Heildarskuldir og skuldbind-
ingar í samanteknum árs-
reikningi námu um 48.619,4
milljónum króna og í ársreikn-
ingi bæjarsjóðs um 29.123,6
milljónir króna í árslok 2018.
Eigið fé í samanteknum árs-
reikningi nam um 17.896 millj-
ón króna og eigið fé bæjarsjóðs
nam um 4.236,4 milljón króna
í árslok 2018.
Íbúafjöldi Reykjanesbæjar í lok
árs 2018 var 18.930 og fjölgaði
um 6,38% frá fyrra ári.
Lögboðið skuldaviðmið
Reykjanesbæjar komið í 137%
Ársreikningur 2018 afgreiddur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
á árinu 2018 námu rúmum 23
milljörðum króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi.
Bremsutilboð!
HEKLA Reykjanesbæ | Njarðarbraut 13 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 590 5090
Þegar sentimetrarnir skipta máli!
Það er mikilvægt öryggisatriði að hafa bremsurnar á bílnum í lagi.
HEKLA og þjónustuaðilar um land allt taka höndum saman til að tryggja öryggi ökumanna
þegar ekið er inn í sumarið og býður bremsutilboð. Bremsutilboðið felur í sér 15% afslátt af
bremsuvarahlutum og 10% afslátt af vinnu. Bókaðu tíma hjá HEKLU Reykjanesbæ í síma
590 5090 eða renndu við.
Hlökkum til að sjá þig!
15% afslátturaf bremsuvarahlutumog 10% afsláttur af vinnu!