Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 6
Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku sonar okkar, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR Lyngmóa 17, Reykjanesbæ, Sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun til núverandi og fyrrverandi starfsmanna heimilisins að Lyngmóa 17, Gylfa Pálssonar sjúkraþjálfara og heimahjúkrunar HSS. Guðmundur Sigurðsson Kolbrún Geirsdóttir Gunnfríður Friðriksdóttir Antonio Manuel Goncalves Vorhreinsun Reykja- nesbæjar dagana 13. til 20. maí Vorhreinsunardagar Reykjanesbæjar verða dagana 13. til 20. maí. Íbúar eru hvattir til að nýta dagana til hreinsunar á görðum sínum. Sérstak- lega er minnt á snyrtingu trjáa og runna sem vaxa við gangstéttar og göngustíga. Ef íbúar óska eftir aðstoð við að fjarlægja það sem tilfellur á þessum dögum, þá er hægt að hafa samband við Umhverfismiðstöð í síma 420-3200 á opnunartíma. Á vorin er tilvalið að snyrta hressi- lega runnana sína og klippa í burtu greinar sem þurfa að víkja. Til- gangur klippinga getur verið marg- víslegur, sum tré eru orðin gömul og þurfa að víkja fyrir nýjum gróðri á meðan önnur eru úr sér vaxin og skyggja á sólina. Tré og runnar í görðum ættu fyrst og fremst að veita skjól og gleði. Gott er að fara varlega í stórtækar að- gerðir þar sem t.d. trjáfelling verður aldrei tekin til baka. Best væri auð- vitað að fá til sín fagfólk sem hefur reynslu og þekkingu ef ætlunin er að fara í róttækar framkvæmdir. Ekki vera of vandvirk í beða- hreinsun þar sem allt þetta gamla lífræna rusl frá því í fyrra mun falla inn í hringrásina og hverfa smátt og smátt í jarðveginn. Það er samt gott að róta til í jarðveginum og reita í burtu það sem ekki á að standa. Að sjálfsögðu tökum við allt ólífrænt rusl og hendum því í viðeigandi tunnu. Fljótlega er svo óhætt að kíkja í næstu gróðrarstöð og kynna sér heitustu sumarblómin þetta árið. Alltaf bætist við úrvalið og hvet ég alla til að prófa eitthvað nýtt þetta sumarið. Berglind Ásgeirsdóttir, garðyrkjufræðingur. UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ALFREÐ VILHJÁLMSSON Vatnsnesvegi 28, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu, laugardaginn 13. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðlaug Sigríður Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Gunnbjörn Vilhjálmsson María Jakobsdóttir Anna María Vilhjálmsdóttir Heiðar Örn Vilhjálmsson Berglind Júlía Kristjönudóttir barnabörn og barnabarnabörn Til leigu iðnaðar- hús m/íbúð Til leigu 420 fm iðnaðar húsnæði í Sandgerði. Af þessum 420 fm er 70 fm íbúð Stórar innkeyrsludyr. Uppl. í síma 897-3811 eða harth@simnet.is Eftir að Lilja Alfreðsdóttir, mennta- málaráðherra hafði skrifað undir samninginn um aukna fjárveitingu til skólans vegna viðbyggingar félagsaðstöðu nemenda við FS, spurðum við nokkra nemendur um hvað þeim finnst um bætta félags- aðstöðu innan skólans. „Ja, ég á nú afmæli í dag á þessum merka degi í sögu skólans,“ segir Ólafur Ómar. „Engin er á móti þessu því þetta mun klárlega auka fjölbreytni í félagsstarfi skólans,“ segir Ingvar Marvin. „Það gæti haft slæm áhrif á mætingu nem- enda ef einstaklingar eru of mikið að taka þátt í félagsstarfi,“ segir Stefán Hlífar. Þegar við spurðum hvers konar fé- lagsstarfsemi þeir vildu sjá innan FS þá höfðu þeir áhuga á eftirfarandi klúbbastarfsemi; „Billjard, skák, bókaspjall, spunaspil, matreiðsla, fjallganga, kvikmyndir og vísindi.“ Fulltrúar sveitarfélaga á Suðurnesjum skrifuðu í vikunni undir samkomulag um fyrirhugaða stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Undirritunin fór fram í húsakynnum skólans í Reykjanesbæ og skrifaði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undir samkomulagið við fulltrúa Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, sveitarfélagsins Voga og Suðurnesjabæ. Viðbyggingin mun hýsa félagsrými nemenda og bæta mjög aðstöðu þeirra. „Það er virkilega ánægjulegt að geta gengið frá þessu samkomulagi og rúllað þessum bolta af stað. Það er þörf á uppbyggingu við skólann. Á þessu svæði hefur orðið mikil fólks- fjölgun á síðustu árum og það er mikilvægt að innviðirnir okkar geti tekið við þeim sem hér vilja stunda nám og skólinn boðið þeim góða aðstöðu. Nemendaaðstaðan er oft hjartað í hverjum skóla, ég samgleðst nemendum og aðstandendum Fjöl- brautaskóla Suðurnesja innilega með þetta góða skref,“ sagði Lilja Alfreðs- dóttir mennta- og menningarmála- ráðherra. Um er að ræða byggingaráfanga sem verður um 300 fm. að stærð. Áætlaður stofnkostaður er um 123 milljónir kr. og er kostnaðarhlutdeild ríkisins 60%. Skólinn hefur verið í stöðugri uppbyggingu frá stofnun árið 1976 en hann var annar fjölbrautaskólinn sem byggður var hér á landi. Nemendur við skólann eru nú rúmlega 830, á starfs-, bók- og verknámsbrautum. „Fyrir okkur er þetta gleðileg stund og langþráður áfangi. Þetta er ekki stór eða kostnaðarsöm framkvæmd en með þessari byggingu fæst betri tenging milli verknámshlutans í álmu eitt og mötuneytisins. Þá verður jafn- framt hægt að bjóða nemendum upp á fjölbreytta tómstundaaðstöðu og að- stöðu fyrir klúbbastarf. Þarna verður einnig setustofa þar sem nemendur geta sest niður ef þeir eru í eyðu, lært og unnið í hópverkefnum. Þar verður einnig fundarherbergi fyrir nemenda- félagið og fleira. Með þessari byggingu verður til aðstaða sem verður hjarta skólans og tengir saman ólíkar deildir innan hans. Líðan nemenda í skólanum skiptir miklu máli fyrir árangur þeirra í námi og því þarf að búa vel að þeim og um- hverfið þarf að vera gott. Þessi við- bygging er liður í þeirri viðleitni okkar að búa sem best að nemendum okkar og mun án efa koma nemendum til góða og efla félagsstarf þeirra. Nú er málið á forræði sveitarfélag- anna og vonandi fer þetta verkefni fljótlega af stað þannig að þetta geti orðið að veruleika sem fyrst,“ segir Kristján Ásmundsson, skólameistari FS. Þessir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja höfðu ákveðnar skoðanir á félagsstarfsemi skólans. T.v. Stefán Hlífar Gunnarsson, Ingvar Marvin Guðmundsson, Ólafur Ómar Eyland Halldórsson og fremstur á myndinni til hægri er Júlíus Gian Agana Jóhannsson. Mun klárlega auka fjölbreytni Aðstaða sem verður hjarta skólans – ný viðbygging við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem mun hýsa félagsrými nemenda Aðalsafnaðarfundur Hvalsnessóknar verður haldinn mánudaginn 13. maí kl 17:00 í safnaðarheimili Sandgerðiskirkju. Sóknarnefnd Hvalsnessöfnuður Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðar­ skólameistari, ásamt Lilju Alfreðsdóttur, mennta­ og menningarmálaráðherra, sem þáði fiskibollur í lok athafnar. 6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.