Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Side 11

Víkurfréttir - 09.05.2019, Side 11
Ég grenjaði mig samt stundum í svefn, ég segi það ekki. En ég var enda- laust að fara út fyrir þægindarammann minn, oft mörgum sinnum á dag. Fyrsta daginn minn úti hitti ég Christian og hann sagði: „Hérna er borvél. Ég ætla að biðja þig um að taka þetta í sundur og svo sjáumst við á eftir,“ lýsir Drífa en það verkefni reddaðist á endanum líkt og annað sem hún þurfti að reyna í Danmörku. „Ég vann á verkstæðinu með Christian, að- stoðaði hann við ýmsa keramikvinnu og námskeiðahald, auk þess að vinna með eigin hönnun. Við fórum til Jótlands og Óðinsvé með stórar krukkur og postulín og vorum talsvert á rúntinum að selja og setja upp sýningar. Ég fékk svo nokkrar heimsóknir frá fjölskyldunni minni. Það er erfitt að synda á móti straumnum en þannig lærir maður helling.“ Hjálpar andlegri líðan ungmenna Þegar Drífa flutti aftur til Íslands var hún ákveðin í því að opna hér ker- amikverkstæði og bjóða meðal annars upp á námskeið og upplifanir, líkt og hún hafði kynnst á verkstæðinu í Danmörku. „Á verkstæðinu úti var boðið upp á þessa upplifun. Hópar gátu komið og notið þess að vera saman að skapa. Það var ekkert svoleiðis hérna heima. Ég hugsaði líka þá til fyrrum nemendanna minna sem margir hverjir eru í ójafnvægi og líður illa. Þetta er frábær leið til að styrkja það innra og finna rónna.“ Í dag býður Drífa upp á ýmis námskeið í keramik fyrir fólk á öllum aldri og saumaklúbbar, vinnustaðir og aðrir geta pantað námskeið hjá henni. Þá er mögulegt fyrir ungmenni í Reykjanesbæ að greiða fyrir námskeiðin með hvatagreiðslum frá bænum. Hægt að nálgast nánari upplýsingar og hafa samband við Drífu á Facebook-síðunni Drífa keramik og á heimasíðunni drifakeramik.is. „Við þurfum að stoppa, slaka á og finna okkur. Maður þarf bara að gefa sér tíma í það. Ég vona að ég geti miðlað því til annarra að maður getur gert ná- kvæmlega það sem mann langar til að gera, ef maður vill það.” – Drífa sigraðist á veikindunum og breytti til í lífi sínu Sólborg Guðbrandsdóttirvf@vf.isVIÐTAL Hver er þín skoðun varðandi upp- byggingu íþróttamannvirkja og íþróttasvæða í Reykjanesbæ? Reykjanesbær hefur ráðist í verkefni í samstarfi við Capacent sem miðar að því að skilgreina og forgangsraða verkefnum sem snúa að uppbyggingu íþróttamannvirkja og íþróttasvæða í Reykjanesbæ. Í því felst meðal annars að fá sjónarhorn íbúa Reykjanesbæjar í þessum málaflokki, enda snertir hann okkur flest á einn eða annan hátt. Opnuð hefur verið sérstök ábendingagátt inn á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is í þessum tilgangi. Hún verður opin 8. – 15. maí nk. Hver er þín skoðun á núverandi notkun íþróttamannvirkja og íþróttasvæða í Reykjanesbæ? Telur þú að möguleiki sé fyrir hendi að nýta þau betur eða á hagkvæmari máta? Taki bæjarstjórn ákvörðun um að byggja ný íþróttamannvirki, hverskonar íþróttamannvirki er brýnast að reisa og hvar ætti að staðsetja það? HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG Reykjanesbær vellíðan fyrir alla Panta þarf tíma í síma 42 100 42 Það verður 15% afsláttur út maí á Belcando & Leonardo fóðri 11MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.