Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 1

Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 1
NETTÓ Á NETINU - ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT - Sparaðu tíma og gerðu matarinnkaupin á netinu. Þú velur um að fá heimsent eða sækja í Nettó Krossmóum. „Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga leggur til að Suðurnesjalína 2 verði lögð í jörð, í stað loftlínu eins og aðalvalkostur Landsnets gerir ráð fyrir. Sé litið til aðalskipulags sveitarfélagsins fellur valkostur B, jarðstrengur meðfram Reykjanesbraut, best að því. Bæjarstjórn setur þó þann fyrirvara að sá valkostur verði einungis valinn, að heimild Vegagerðarinnar fáist til að leggja strenginn á þegar raskað land á s.k. veghelgunarsvæði. Sé það ekki gerlegt er það mat bæjarstjórnar að þá skuli frekar valinn valkostur A, jarðstrengur meðfram Suðurnesjalínu 1, enda fari þá jarðstrengurinn um þegar raskað svæði að stærstum hluta,“ segir í afgreiðslu bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga á umsögn um fummatsskýrslu Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2 en bæjarstjórnin fundaði um málið á mánudagskvöld. „Það er mat bæjarstjórnar Sveitar- félagsins Voga að hagsmunir sam- félagsins á Suðurnesjum séu brýnir og þeir réttlæti að Suðurnesjalína 2 verði lögð í jörð. Bæjarstjórn hvetur stjórnvöld til að líta til þeirra þátta sem nefndir eru í greinargerðinni svo Landsnet fái heimild til að hefjast handa sem fyrst við lagningu Suður- nesjalínu 2 í jörð. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga vill að lokum árétta mikilvægi þess að afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum verði tryggt, sem og að flutningsgetan verði aukin í takt við auknar þarfir ört vaxandi lands- hluta,“ segir í afgreiðslu bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga sem var sam- þykkt samhljóða með sjö atkvæðum. Vill Suðurnesjalínu 2 í jörð Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga ekki sammála Landsneti: Eldri borgarar og öryrkjar fái 30% af- slátt á tjaldstæðinu Umhverfis- og ferðamálanefnd Grindavíkur tekur undir með starfs- manni tjaldsvæðis Grindavíkur og leggur til við bæjarráð að gjaldskrá tjaldsvæðisins verði breytt þannig að eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt. Í Grindavík er rekið eitt glæsilegasta tjaldstæði landsins sem er vel sótt af bæði innlendum sem og erlendum ferðalöngum. Fuglabændur í  Norðurkoti Í MIÐOPNU Átján mánaða fái inni á leikskólum í Suðurnesjabæ Inntökualdur barna í leik- skólana Gefnarborg í Garði og og Sólborg í Sandgerði verður sam- ræmdur í 18 mánaða frá og með ágúst 2019. Mótaðar verða nýjar og samræmdar innritunarreglur fyrir leikskóla í Suðurnesjabæ þar sem m.a. verði ákvæði um að- gengi að leikskólum milli hverfa. Innritunarreglur leikskóla voru samþykktar samhljóða á fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar á dögunum. Þá verður lögð áhersla á að leita leiða til að efla dagforeldraþjón- ustu í Suðurnesjabæ og horft til þess að húsnæðið Skerjaborg að Stafnesvegi 15 verði nýtt fyrir slíka starfsemi. SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is Loftvarnir í lagi við Norðurkot! VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON Frá Sveitarfélaginu Vogum. fimmtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg. S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.