Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 16

Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Það er bara alltaf rigning! Eymundsson „Slaggi“ Jón og ljúfa Gunna Þetta sumar er búið að vera svo geggjað. Júní er ekki einu sinni búinn og við erum öll brosandi út að eyrum, sólbrún og sæt. Algjörlega búin að gleyma sumrinu í fyrra. Eða kannski ekki. Við munum það nefnilega enn. Sér- staklega fólk eins og við fjölskyldan á Heiðarbrúninni, sem ákváðum í fyrra að njóta íslenska sumarsins heima í stað þess að fara í frí til útlanda. Við ætluðum að “tjilla” á pallinum, njóta bjartra sumarnótta og hafa það gott. Það varð svo ekki alveg þannig eins og alir muna. Rigningin tók sumarið yfir og við munum öll þennan eina miðvikudag í júní og þriðjudagana tvo í júlí sem sólin náði að skína smá. Svo þorðum við ekki einu sinni að fara norður eða austur þegar líða tók á sumarið vegna þess að við vorum viss um að þá myndi þetta snúast við. Þess vegna vorum við öll auðvitað innst inni að vona að okkur yrði þetta bætt upp í sumar, af því að okkur fannst við svo innilega eiga það skilið. Og réttlætið á alltaf að sigra að lokum. En á sama tíma vorum við dáldið eins og maðurinn með tjakkinn, handviss um það að helv... Norðlendingarnir og Austfirðingarnir myndu einoka sólina og sumarið eina ferðina enn. Og bólgna út af monti eins og vanalega. En svo kom hún þessi elska, blessuð sólin, og það sem meira er hún stopp- aði lengur en í korter. Ef einhver efast um áhrif veðurfars á sálina þá getur sá hinn sami gleymt því núna. Þessar sólarvikur hafa búið til nýja karakt- era, nöldurkallinn og fúla kellingin hafa horfið og við hafa tekið „slaggi“ Jón og ljúfa Gunna. Öllum var sama um orkupakkamálþófið og að þinglok væru að tefjast. Við vorum öll upp- tekin af því að sóla okkur, grilla og hafa það gott. Við vissum nefnilega aldrei nema að þetta væri seinasti sólardagur sumarsins og því um að gera að njóta hans í botn. Allt annað hefur setið á hakanum og óunnin verkefni hafa hlaðist upp um allt sunnanvert landið. Þegar þetta er skrifað er held ég bara fyrsti skýjaði dagurinn í júní og rigning í kortunum næstu daga. En vitiði, það er bara allt í lagi af því að í fyrsta lagi er það svo gott fyrir gróðurinn og í öðru lagi, og það sem er mikilvægara, er að samkvæmt spánni á alla vega að koma einn rigningar- laus dagur í næstu viku! Það er strax betra en næstum allt sumarið í fyrra og ljúfa Gunna á Heiðarbrúninni er bara óendanlega þakklát fyrir það. Nú dembir hún sér af krafti í öll óunnu verkefnin til að geta hent sér á pallinn um leið og sólin kemur aftur. Njótið sumarsins kæru lesendur! LOKAORÐ Ragnheiðar Elínar PENNAVINUR ÓSKAST Í LEIFSSTÖÐ • Góð tungumálakunnátta • Reynsla af afgreiðslustörfum æskileg • Góð almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur • Rík þjónustulund og jákvæðni • Hæfni í mannlegum samskiptum HÆFNISKRÖFUR SUMARSTÖRF Um framtíðarstarf er að ræða og er unnið eftir Nánari upplýsingar veitir Ásta Ben Sigurðardóttir, astas@penninn.is vaktafyrirkomulagi 2-2-3. Vinnutími frá kl. 05:00 til 17:00 Umsóknarfrestur er til 8. júlí nk. Vinsamlegast sækið um á heimasíðu Pennans Eymundsson https://www.penninn.is/is/laus-storf Óskum eftir harðduglegum og brosmildum starfsmanni í verslun okkar í Leifsstöð. Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Gildistími tilboða er frá 9. október, til og með 12. október. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. Surtsey í sjónmáli Verð: 7.499.- Manndómsár Verð: 3.299.- Út í vitann Verð: 3.499.- Hafnarfirði - Strandgötu 31 Keflavík - Sólvallagötu 2 Akureyri - Hafnarstræti 91-93 Akranesi - Dalbraut 1 Austurstræti 18 Skólavörðustíg 11 Laugavegi 77 Hallarmúla 4 Álfabakka 16, Mjódd Kringlunni norður Kringlunni suður Smáralind 540 2000 | penninn ev ritfe idnanumsm lavrúuröV Ísafirði - Hafnarstræti 2 Vestmannaeyjum - Faxastíg 36 LeifsstöðFlug töð Leifs Eiríkssonar Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Gildistími tilboða er frá 9. október, til og með 12. október. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. Út í vit nn Verð: 3.499.- Skrímslakisi Verð: 3.499.- 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is .ly go rulliv mu aravriryf ðem ratib ure ragnisýlppU .munulsrev ritfe idnanumsm lavrúuröV Ísafirði - Hafnarstræti 2 Vestmannaeyjum - Faxastíg 36 LeifsstöðFlug töð Leifs Eiríkssonar Húsavík - Garðarsbraut 9 Þurrkurinn segir til sín á Fitjum Langvarandi þurrkur á Suðurnesjum er farinn að segja til sín á Fitjum. Svona var umhorfs við tjarnirnar í byrjun vikunnar. Stór svæði sem vanalega eru umflotin vatni eru nú þurr og skorpin. Þó spáð sé vætu um helgina þá er hún ekki í því magni að mikil breyting verði á vatnasviðinu á Fitjum. VF-mynd: Hilmar Bragi SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.