Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 2

Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir, sími 421 0002, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. „Mikilvægt er að koma til móts við vaxandi starfsemi íþróttafélaganna í Reykjanesbæ og sett verði framtíðarsýn í uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir alla íbúa sem eru samnýtt af íþróttafélögum innan bæjarins.“ Þetta kemur fram í bókun íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar vegna stefnumótunar íþróttamannvirkja og íþróttasvæða Reykjanesbæjar. Þá segir: „Í framhaldi af vinnu Capa- cent á stefnumótun í aðstöðu og íþróttamannvirkjum í Reykjanesbæ er ljóst að sameiginleg nýting mann- virkja og íþróttabúnaðar er skynsöm nýting á skattfé, aðgengi betra fyrir íbúa og stuðlar að aukinni þátttöku barna í íþróttum. Íþrótta- og tómstundaráð (ÍT-ráð) er sammála ályktunum úr skýrslu Capacent um að bæta þurfi nýtingu á íþróttamannvirkjum í Reykjanesbæ í samstarfi við skóla og íþróttafélög. Framtíðarstefna Reykjanesbæjar skal stuðla að sameiginlegri nýtingu mannvirkja, uppbyggingu miðlægs íþróttasvæðis og hagkvæmri aðstöðu fyrir bæjarbúa. ÍT-ráð leggur áherslu á að eftirfarandi framkvæmdir við íþróttamannvirki verði settar á fjárhagsáætlun á næstu árum. Uppbygging aðstöðu og íþrótta- mannvirkja verði reglulega endur- skoðuð í samræmi við framtíðarsýn bæjarins.“ Á árinu 2019 verður unnið með niður- stöður Capacent og stillt upp þörfum íþróttafélaganna varðandi Afreksbraut. Þá verður teiknað upp framtíðarsvæði við Afreksbraut í samstarfi við USK og ÍT-ráð og áhersla lögð á að tengja hjóla- og göngustíga úr nærliggjandi hverfum. Á árinu 2020 verður hafist handa við byggingu á fullbúnum gervigras- keppnisvelli fyrir Keflavík og Njarðvík með stúku og búningaaðstöðu vestan Reykjaneshallar. Ný áhaldageymsla verður byggð við Reykjaneshöll. Árið 2021 verður hafist handa við hönnun á fjölnota íþróttahúsi við Afreksbraut sem staðsett verður á svæðinu milli æfingavalla Keflavíkur og Njarðvíkur í knattspyrnu. Í íþrótta- húsinu verður keppnisvöllur fyrir körfuknattleiksdeildir Reykjanes- bæjar, framtíðaraðstaða fyrir fim- leikadeild og bardagaíþróttir, aðstaða fyrir skotdeild, lyftingar, golfklúbb ásamt félagsaðstöðu fyrir allar deildir. Á árunum 2022–2026 verður hafist handa við byggingu fjölnota íþrótta- húss sem verður byggt í áföngum. ÍT-ráð leggur áherslu á að keppnishús fyrir körfuknattleik og aðstaða fyrir fimleikadeild verði byggð í fyrstu áföngum byggingarinnar. Fyrrgreindar tillögur verða unnar í samráði við aðalstjórnir beggja félaga og er íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að boða formenn til fundar,“ segir í fundargerð íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjanesbæjar. GERVIGRAS OG NÝTT FJÖLNOTA ÍÞRÓTTAHÚS Í REYKJANESBÆ Framkvæmdir við nýja þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Voga standa nú yfir í Vogum. Þjónustumiðstöðin er að rísa á lóðinni sem er næst bæjar- skrifstofunum, í Iðndal 4. Um er að ræða myndarlegt stál- grindarhús, sem mun uppfylla þarfir umhverfisdeildar sveitarfélagsins með öllum þeim tólum, tækjum og búnaði sem þeirri starfsemi fylgir. Í hönnuninni er gert ráð fyrir þvotta- stæði fyrir almenning þar sem fólk getur loks þrifið bíla sína. Síðast en ekki síst verður sérrými afmarkað í húsinu þar sem einn af dælubílum Brunavarna Suðurnesja verður fram- vegis staðsettur. Það styttir til muna útkallstíma slökkviliðsins, segir á vef Sveitarfélagsins Voga. Björgvin Bjarni Elíasson 14 ára: „Tortilla og hamborgari. Ég kann sjálfur að hita tilbúna pitsu.“ Logi Halldórsson 15 ára: „Sushi og hamborgari. Ég bý til samlokur heima og bý til pasta og stundum sýð ég pulsur handa öllum heima.“ Magnús Pétur Magnússon Landmark 13 ára: „Bjúgu, pylsur, makkarónusúpa og steinbítur. Ég kann sjálfur að elda pulsurétt með banana, eplum og bökuðum baunum.“ Ólafur Fannar Þórhallsson 16 ára: „Kjúklingaborgari frá Villa. Heima get ég ristað brauð.“ Steinþór Stefánsson 15 ára: „Pasta og allt ítalskt finnst mér gott. Stundum bý ég sjálfur til samlokur með osti, kryddsalti og smjöri, sem ég set í örbylgjuofn.“ SPURNING VIKUNNAR Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is Ný þjónustumiðstöð sveitarfélagsins rís í Vogum Nýja þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Voga rís nú við Iðndal 4 í Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi Fulltrúar dómsmálaráðuneytis funduðu á dögunum með velferðarráði Reykjanesbæjar um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd en Útlendingastofnun er með umfangsmikla starfsemi í Reykjanesbæ og þjónustusamning við Reykjanesbæ vegna hluta af sínum skjólstæðingum. Í fundargerð velferðarráðs segir: „Vel- ferðarráð þakkar fulltrúum dóms- málaráðuneytisins fyrir kynningu þeirra. Eins og áður hefur komið fram hafa Reykjavíkurborg, Hafnar- fjörður og Reykjanesbær gert þjón- ustusamning við Útlendingastofnun en önnur sveitarfélög alfarið getað neitað aðkomu. Velferðarráð minnir enn og aftur á mikilvægi þess að skýr stefna verði mótuð í málaflokknum og að fleiri sveitarfélög komi að borðinu. Huga þarf að stefnumótun á verklagi við móttöku með öðrum sveitarfélögum. Fulltrúar Reykjanesbæjar eru tilbúnir að taka þátt í þeirri vinnu. Velferðar- ráð leggur áherslu á áframhaldandi samstarf við dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun varðandi málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd.“ Fleiri sveitarfélög komi að borðinu í málefnum umsækj- enda um alþjóðlega vernd FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN 898 2222 Gervigrasvöllur vestan við Reykjaneshöll og nýtt fjölnota íþróttahús, skv. tillögu. 2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.