Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 27.06.2019, Blaðsíða 8
Dúntekja hófst í Norðurkoti árið 1936 þegar Eiríkur Jónsson og Sveinbjörg Ormsdóttir bjuggu þar. Í upphafi byrj- aði Eiríkur á því að hlúa að tólf kollum og svo stækkaði hópurinn ár frá ári, því þegar fuglinn fær aðhlynningu þá sækir hann aftur á þann stað þar sem hlúð var að honum. Norðurkot er lögbýli rétt fyrir utan Sandgerði og í dag búa þar hjónin Sigríður Hanna Sigurðar- dóttir og Páll Þórðarson en það var einmitt afi hennar sem byrjaði á dúntekjunni. Í daglegu tali eru þau hjónin alltaf kölluð Hanna Sigga og Palli og eru fuglabændur hluta úr ári. Annars er Palli trésmiður og Hanna Sigga stuðningsfulltrúi í grunnskóla þegar þau eru ekki að sinna fuglabúskap. Við tókum hús á þeim og fengum að kíkja ofan í nokkur hreiður í leiðinni. Afi byrjaði á þessu Það var notalegt að koma heim til þeirra hjóna einn morgun í júní þegar ilmur af nýbökuðu brauði tók á móti manni ásamt gestrisni hús- freyjunnar. „Þetta er nú bara brauðið sem ég baka oft, það er ekkert merkilegt,“ segir Hanna Sigga og býður blaðamanni að smakka og einnig heimabakaðar, ljúffengar kleinur. „Já, afi byrjaði á því að hlúa að þessum tólf kollum en þær sækja í það að fá vernd. Svo stækkaði hópurinn ár frá ári. Við Palli fluttum hingað í Norðurkot árið 2000 úr Keflavík með börnin okkar og tókum við af pabba mínum sem var með okkur í þessu á meðan hann lifði,“ segir Hanna Sigga og í því kemur eitt barnabarnið fram í eldhús og skömmu seinna fyllist eldhúsið af fleiri börnum og móður barnanna sem er elsta dóttir Palla og Hönnu Siggu. „Við erum í þessu öll fjölskyldan á sumrin, við og þau sem búa hér nálægt okkur. Í byrjun apríl hefst undirbúningur fyrir varpið. Það þarf að setja net á girðingar. Svo byrja fuglarnir að koma en fyrstu fuglarnir byrja að verpa í lok apríl. Það er æðarfuglinn sem er með þeim fyrstu sem verpa hjá okkur hér í landi Norðurkots Fuglabændur í  Norðurkoti Æðarfugl er algeng andartegund á Norðurslóðum og með stærstu andartegundunum. Karlfuglinn sem nefnist bliki er hvítur að ofan og svartur að neðan, með svarta hettu, roðalitaða bringu og græna flekki á hnakka en vængirnir eru svartir með hvítum fjöðrum. Kvenfuglinn sem nefnist kolla er brún á lit. Það er einmitt dúnninn frá þessari andartegund sem gefur mikið í aðra hönd en verð á dúni er það hátt að það er yfirleitt aðeins á færi kóngafólks og vellauðugs fólks að eignast sæng í rúmið sitt úr andardúni, munaðarvara ríka fólksins. Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL Kollan bíður átekta á meðan dúnninn er tekinn burt. Hjónin Páll Þórðarson og Sigríður Hanna Sigurðardóttir. 8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.